Læknablaðið - 01.05.2021, Qupperneq 48
264 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
Andmælendur voru Fernando Bess-
one, prófessor við Háskólann í Rosario í
Argentínu, og Helga Eyjólfsdóttir, öldr-
unarlæknir við Landspítala. Umsjónar-
kennari og leiðbeinandi var Einar Stefán
Björnsson. Auk hans sátu í doktorsnefnd
Ásgerður Sverrisdóttir, Gerður Gröndal og
Raul J. Andrade.
Ágrip
Lifrarskaði af völdum lyfja (drug-induced
liver injury: DILI) er sjaldgæf aukaverkun
fjölmargra lyfja og getur valdið allt frá
einkennalausum hækkunum lifrarprófa
til lifrarbilunar og dauða. Í doktorsverk-
efninu er leitast við að meta nýgengi DILI
í almennu þýði á Íslandi, finna helstu
orsakavalda og reikna út hlutfall þeirra
sjúklinga sem fá lifrarskaða af tiltekn-
um lyfjum. Einnig er kannað mikilvægi
DILI sem orsakavalds hjá sjúklingum
með verulegar hækkanir á lifrarprófum
auk þess sem áhætta á DILI er könnuð
í sjúklingum á blóðþynningarlyfjum
og krabbameinslyfjum. Enn fremur er
rannsakaður lifrarskaði af völdum líf-
tæknilyfsins infliximab og ávinningur af
sterameðferð í þeim sjúklingahópi metinn.
Nýgengi DILI á Íslandi var 19,1 á hver
100.000 persónuár.
Verkefnið undirstrikar að lyf eru
mikilvæg orsök lifrarskaða í almennu
þýði. Áhættan af lifrarskaða af völdum
blóðþynningarlyfja og krabbameinslyfja
reyndist vera lág. Sterameðferð virtist
hraða bata í sjúklingum með lifrarskaða af
völdum infliximab, en frekari rannsóknir
þarf til að staðfesta orsakasamhengi.
Doktorinn
Helgi Kristinn lauk embættisprófi í lækn-
isfræði frá Háskóla Íslands 2015. Að loknu
kandídatsári hóf hann sérnám í almennum
lyflækningum á Landspítala og lauk þar
þriggja ára námi með MRCP-gráðu 2020.
Samhliða námi og starfi sem læknir hefur
Helgi stundað rannsóknarvinnu.
Doktorsvörn frá Háskóla Íslands:
Helgi Kristinn Björnsson
Helgi Kristinn Björnsson varði doktorsritgerð sína í læknavísindum við læknadeild Háskóla
Íslands 16. apríl. Ritgerðin ber heitið Lifrarskaði af völdum lyfja: Faraldsfræði, áhætta af völdum
tiltekinna lyfja og gagnsemi sterameðferðar við lyfjaorsakaðri lifrarbólgu
Hversu erfitt er að verða doktor á skalanum 1-10?
Erfitt að segja. Þetta er langhlaup en líklega er meðaltalið 7. Góð-
ur leiðbeinandi er lykilatriði og ég var heppinn þar.
Hvað er framundan í námi og starfi?
Sérnám í almennum lyflækningum og meltingarlækningum á
Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg.
Hvað yrði þitt fyrsta verk sem heilbrigðisráðherra?
Hlusta á raddir lækna, sem almennt vilja það besta fyrir sjúk-
linga og eru merkilega samhljóma varðandi stóru atriðin. Að
leggja lækna- og hjúkrunarráð Landspítala niður og semja ekki
við sjálfsstætt starfandi sérgreinalækna segir allt um hvaða leið
hefur verið valin síðustu ár.
Hvað segir nýdoktorinn?
Helgi Kristinn Gíslason tók doktorspróf
16. apríl frá læknadeild Háskóla Íslands.
Mynd/Gunnar Sverrisson
Hvaða bók, þættir, músík, líkamsrækt er best?
Besta bókin sem ég hef hef lesið nýlega er Truflunin eftir Steinar
Braga.
Er þessa dagana að horfa á Gösta sem er ein fyndnasta sjónvaps-
sería sem ég hef séð síðustu ár.
Hlustað mikið á Christine and the Queens, Jessie Ware og Little
Dragon undanfarið, annars er Stevie Wonder alltaf skammt undan
enda besti tónlistarmaður síðustu aldar. Besta en jafnframt hættu-
legasta líkamsræktin er bumbubolti með góðum vinum.
Hvað er skemmtilegast að gera þegar þú ert ekki í vinnunni?
Þamba kaffi, horfa á fótbolta og lesa bækur. Svo koma vonandi
bráðlega post-covid tímar með ferðalögum, þétt pökkuðum
tónleikum og íþróttaviðburðum. Ef ekki, þá hugga ég mig við
að hversdagurinn er almennt ánægjulegur, kærasta mín er
blessunarlega þeim eiginleika gædd að hversdagslegir hlutir eru
merkilega skemmtilegir í hennar návist.