Læknablaðið - 01.05.2021, Síða 49
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 265
Ragnheiður Erla Magnúsdóttir
07:00 Vekjaraklukkan gefur frá sér ró-
lyndistóna frá ónefndu svefnsnjallforriti.
Lít á símann og fæ skýrslu um hversu vel
ég hef sofið í % talið, hversu margar mín-
útur ég hraut, hversu mikið ég talaði upp
úr svefni og fleira gagnlegt. Gott að byrja
daginn á naflaskoðun.
Einkasonurinn vakinn og kveikt á
kaffivélinni. Allt gengur eins og í sögu og
við á góðri leið með að mæta tímanlega í
skóla og vinnu – svo fær barnið blóðnasir.
Lífið gefur og lífið tekur.
08:10 Lagt af stað frá Mosfellsbæ til
Keflavíkur. Þetta er vissulega tæplega
klukkutíma akstur og hann er alltaf vel
nýttur. Öll podcöst undir sólinni hafa
fengið að hljóma um mín eyru síðastliðna
mánuði og nánir vinir og fjölskyldumeð-
limir hafa aldrei talað jafn mikið við mig
í síma (í handfrjálsri bluetooth-tengingu
altsvo). Enda svo rúntinn með slagara frá
Rihönnu vinkonu minni – Work. Viðeig-
andi og peppandi.
09:00 Mætt á Heilsugæsluna í Keflavík.
Stefnan tekin rakleiðis inn í matstofu,
gripinn kaffibolli og vatnsbrúsinn fylltur
af sódavatni. Strangheiðarlegur morgun-
matur.
09:10 Geri fyrstu drög að áverkavottorði
að beiðni lögreglunnar á Suðurnesjum
fyrir konu sem ég hafði skoðað á bráða-
móttökunni vikunni áður. Þakka fortíðar-
mér fyrir að hafa skrifað þokkalega nótu
þá. Helst ekki nota nein latnesk orð, og þá
aðeins í sviga. Hlýt að geta orðið við því.
09:20-10:40 Viðtöl á heilsugæslunni.
Svimi, bakverkir, VIRK-umsókn, liðverkir.
Þetta hefðbundna.
10:40 Viðtal við konu á fertugsaldri –
erindið var blóðþrýstingseftirlit og lyfja-
yfirferð eftir magahjáveituaðgerð og mik-
ið þyngdartap. Megnið af tímanum fór þó
í að reyna að sannfæra viðkomandi um
að Bill Gates stæði reyndar ekki á bakvið
covid-bólusetningarnar, hann væri ekki
að reyna að erfðabreyta alheiminum né sé
verið að sprauta okkur með 5G.
11:00 Símatímar: Fylgt eftir lyfjameð-
ferðum, farið yfir rannsóknarniðurstöð-
ur og fólk bókað í endurmat á stofu.
Fólk er að mestu búið að hrista af sér
skjálftasvimann.
11:30 Hádegismatur á HSS – sem er alltaf
til fyrirmyndar. Metnaðarfyllsta mötu-
neyti landsins heyrði ég einhvern segja –
kannski var það ég.
12:00-15:30 Förinni heitið á bráðamót-
tökuna. Unglæknar sem og seniorar rótera
á milli bráðamóttöku og heilsugæslu
hér, sem hressir, bætir og kætir. Brýtur
upp daginn og maður sér ný tilfelli og
lærir nýja hluti á hverjum degi. Til okkar
koma alls kyns sjúklingar á öllum tím-
um sólarhringsins og yfirleitt eru það
einhver þemu í gangi. Kviðverkjaþemu,
skurðþemu, brjóstverkjaþemu ... hjarð-
hegðunin, þið vitið.
Tekið við sjúklingum morgunvakt-
arinnar. Kona á fertugsaldri, preseptísk,
með tvo nýrnasteina í stærra lagi í safn-
kerfi í vinstra nýra, hydronephrosa. Sjálf
taldi hún sig aðeins vera með „takíbaki".
Ber sig ótrúlega vel, hvorki „bráðveikinda-
leg né meðtekin að sjá”. Ræði við urolog-
ana á Landspítala og þeir vilja fá hana
í nephrostómíu í Fossvogi eftir nokkra
klukkutíma. Svo í innlögn í HSS. Færi
konunni fregnirnar, ordinera sýklalyfjum
IV og TLC. Niðurstaðan var henni skiljan-
lega mikið áfall.
Næsti sjúklingur – maður á sextugs-
aldri. Margra vikna slappleiki, polyuria,
polydipsia. Nýlega greindur með þvag-
færasýkingu. Skánaði lítið við meðferðina.
Blóðprufur sýna hækkaðan blóðsykur (24)
og verulega hækkaðan langtíma blóðsyk-
ur (199 í HbA1c). Blóðgös og sölt innan
marka. Engar ketónur í þvagi. Meðhöndl-
aður með NaCl vökva IV og fljótvirku
insúlíni.
Engin slys frá Geldingadal komu eftir
þessa hádegisvakt, en þau hafa verið ansi
mörg undanfarna daga. Koma þó yfirleitt
í kringum miðnætti. Skurðir, tognanir,
beinbrot, astmaköst og gasmenganir. Gos-
ið er nefnilega fallegast um ljósaskiptin.
15:30 Primervaktin tekur við mér á
BMT. Hún stendur vaktina fram að næsta
morgni. Ég rapportera um sjúklinginn
minn á HSS sem er nær því HHS (hyper-
osmolar hyperglycemic, svæsin blóðsykur-
shækkun með osmólareitrun) en sem er
allur að braggast og kominn með tíma á
sykursýkismóttökunni daginn eftir. Skrifa
upp á Toujeo og metformín.
15:30 Nú tekur næsta partí við. Það er
læknavaktin. Á læknavaktinni á HSS eru
þrír læknar í kapphlaupi við sjúklingana.
Það er forbókað á vaktina svo það myndist
ekki biðraðir og múgæsingur. Sjúklingar
eru bókaðir á 10 mínútna fresti, þrír í
hvert slott, til kl. 20:00.
20:00 Kveð síðasta sjúklinginn. Nú skal
klára þessar nótur og gera upp vaktina.
Fer nú ekki að gera framtíðar-sjálfri mér
að skilja þessar 30 ókláruðu nótur eftir.
Sæki mér kvöldmat úr sjálfsalanum sæta
fína. Súkkulaðibitakaka og Kristall plús.
Strangóheiðarlegt.
21:30 Kíki á stöðuna á bráðamóttökunni.
Allir í banastuði, ekkert þema þennan
daginn þó, fyrir utan fjölbreytileika og
annríki.
21:40 Ferðalagið heim hefst. Sunnudags-
tvíhöfðapodcastið hefur aldrei kætt jafn
mikið. Lít yfir gufustrókinn frá eldgosinu
á leiðinni heim. Pappírsdagur fyrir hádegi
á morgun og sérnámskennsla eftir hádegi
á Teams. Sem þýðir bara eitt – heimadag-
ur!
Dagur í lífi læknis í Keflavík
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) í Reykjanesbæ er með
starfsemi í Keflavík, Vogum og Grindavík. Í umdæminu búa
um 20.000 manns og þar mjög margt að gerast: eldsumbrot,
jarðskjálftar, gífurleg umferð og álag, og stórir vinnustaðir:
til dæmis hin alþjóðlega flugstöð Leifs Eiríkssonar og Bláa
lónið. Þarna unir Ragnheiður Erla sér vel. – Myndina tók
Valdís Björg Hilmarsdóttir, læknanemi á HSS.