Lögmannablaðið - 2022, Blaðsíða 8
8 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/22
Í lok febrúar 2022 voru félagar í Lögmannafélagi Íslands
1058 talsins sem er 0,2% fjölgun frá sama tíma árið 2021
þegar þeir voru 1056. Fjöldi lögmanna sem flutt geta mál
fyrir héraðsdómstólum er 698 og fjöldi þeirra sem auk þess
hafa réttindi hafa til málflutnings fyrir Landsrétti er 61. Þá
hafa 297 félagsmenn aflað sér réttinda til málflutnings fyrir
Hæstarétti. Loks starfa 2 félagsmenn á grundvelli erlendra
málflutningsréttinda.
Alls eru 564 lögmenn sjálfstætt starfandi, eða 53%, og 172
lögmenn starfa sem fulltrúar sjálfstætt starfandi lögmanna,
eða 16%. Þá eru innanhússlögmenn hjá ýmsum fyrirtækjum
og stofnunum 270 talsins, eða 26%, en af þeim starfa
75 hjá ríki eða sveitarfélögum og 195 hjá fyrirtækjum
og félagasamtökum. Fjöldi lögmanna sem ekki stunda
lögmannsstörf sökum aldurs eða veikinda er 52, eða 5%.
Konur í lögmannastétt
Alls eru 329 konur í félaginu, eða 31,1%, og hefur þeim
fjölgað um fjórar frá sama tíma árið 2021. Þar af eru 39%
sjálfstætt starfandi lögmenn á móti 38% árið 2021 en á sama
tíma hefur hlutfall kvenna sem starfa sem fulltrúar sjálfstætt
FJÖLDI OG
SAMSETNING
FÉLAGSMANNA
LÖGMANNAFÉLAGS ÍSLANDS
LAGADAGURINN 2021
Þróun fjölda félagsmanna í Lögmannafélaginu á árabilinu 2013 til 2022.