Lögmannablaðið - 2022, Qupperneq 14

Lögmannablaðið - 2022, Qupperneq 14
14 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/22 John Stuart Mill taldi yfirráð karla yfir konum rótgrónasta yfirráðakerfi í heimi. Catherine MacKinnon, sem setti einna fyrst fram hugtakið „kynferðisleg áreitni“ upp úr miðri 20. öld og var þá talin alger öfgamanneskja, setti fram mismuna (e. difference) kenninguna sem varpar ljósi á að karlar væru í raun viðmið laganna. Karlar settu lögin, framkvæmdu lögin og dæmdu eftir lögunum framan af. Með þetta í farteskinu væri því ekki óeðlilegt í sögulegu samhengi að kynjamismunun væri innbyggð í lögin, enda liggja rætur feðraveldisins djúpt í vestrænni menningu. Samspil laga og samfélags er náið og lögin geta haft stýrandi áhrif á hegðun fólks. Þá er ríkjandi sjónarmið í íslenskri lögfræði að lögin séu hlutlaus en að sjálfsögðu eru þau þó speglun á samfélaginu. Merki þessa eru meðal annars þær breytingar sem hafa orðið á löggjöf í vestrænum ríkjum og varða ofbeldi gegn konum. Í því samhengi verður þáttur „brjálaðra“ kvenna seint ofmetinn. Í fræðunum er hægt að segja að þetta séu fjórar bylgjur eða kynslóðir femínista. „Brjálaðar borgaralegar konur“ börðust fyrir kosningarétti, eignarrétti og grundvallar borgarlegum réttindum sem við sjáum merki um í löggjöf frá seint á 19. öld og framundir miðja 20. öld. Upp úr 1970 fóru að tínast til konur með lögfræðipróf í krafti baráttu borgaralegu brjáluðu kvenna fyrstu bylgjunnar fyrir að aðgengi kvenna að menntastofnunum sem hafði áhrif á grundvallar lagalegan skilning á kynferðislegu ofbeldi. Á níunda áratug síðustu aldar var þriðja bylgja femínismans greind í tvær áttir; annars vegar konur sem „halla sér fram“ (e. lean in) til að sækja jafnrétti á vinnumarkaði og „róttækar brjálaðar konur“ sem kröfðust kerfisbundinna viðbragða gegn kynbundnu ofbeldi. Fjórða bylgjan er svo yfirstandandi #metoo bylgja sem er leidd af „brjáluðum (ungum, pc, vegan) konum með aðgang að internetinu“. Þegar þessar bylgjur eru skoðaðar í samhengi við breytingar sem hafa orðið tengdar kynferðisofbeldi og meðferð þess hafa kynjafræðingar vísað til fyrirmyndar úr náttúruvísindunum um skjálftavirkni og eldgos. Þannig megi segja að samfélagslegar breytingar tengdar kynferðisbrotum lýsi sér eins og aðdragandi eldgoss, þar sem fyrst kemur skjálfi, síðan þrýstingur og loks gýs. Heildarendurskoðun kynferðisbrotakafla hegningarlaganna árið 1992 má skoða sem dæmi um þetta. Árið 1984 komu upp nauðungarmál sem vöktu sterkt ákall um breytingar. Nauðgunarmálanefnd var sett á laggirnar og árið 1992 áttu sér stað umfangsmiklar breytingar á kynferðisbrotakafla hegningarlaga þar sem meðal annars var í fyrsta sinn kveðið á um kynferðislega áreitni í lögum. Þarna varð skjálfti sem orsakaðist af meðferð tiltekinna mála, samfélagslegur þrýstingur með ákalli um breytingar og gos í formi lagabreytinga. Ef við notum sömu nálgun á nútímann hefur skjálftahrina og þrýstingur staðið yfir talsvert lengi, eða frá árinu 2007 þegar kynferðisbrotakaflinn var síðast endurskoðaður. Merki þessa sjást meðal annars í löggjöf um kynferðislega friðhelgi, aðgerðum stjórnvalda á borð við stofnun Bjarkarhlíðar og breytingum á verklagi lögreglu í heimilisofbeldismálum. Það er ýmislegt hægt að gera til að sporna gegn áhrifum kynjakerfisins í framkvæmd en þrjú atriði voru nefnd. Í fyrsta lagi hvernig sé tekið á kvenfyrirlitningu í lögum, en í mörgum Evrópuríkjum er verið að skoða að lögfesta kvenfyrirlitningu sem grundvöll haturs og hatursbrota. Í öðru lagi er full ástæða til að skýra kynferðislega áreitni í lögum. Það eru nú þrjú ákvæði í íslenskum rétti og þau eru ekki öll samhljóða sem gæti verið ástæða fálmkenndra viðbragða við #MeToo. Í þriðja lagi þarf að huga að úrræðum réttarvörslukerfisins með hliðsjón af því hvernig sá sem brotið er gegn upplifi að hlutur hans sé réttur, en ekki síður hvaða áhrif það á að hafa fyrir þá sem brjóta gegn kynferðisbrotakaflanum til lengri tíma. Í því samhengi er ekki víst að lögin séu eina svarið. Réttarstaða brotaþola á Íslandi Dr. Hildur Fjóla Antonsdóttir tók í doktorsverkefni sínu viðtöl við fólk sem hafði reynslu af því að ganga í gegnum réttarkerfið í kynferðisbrotamálum og var niðurstaða hennar sú að réttur brotaþola væri mjög takmarkaður, málsmeðferð tæki oft óheyrilega langan tíma og að brotaþolar upplifðu að kerfið sneri við þeim baki. Árið 2018 stofnaði forsætisráðherra stýrihóp um heildstæðar úrbætur að því er varðar kynferðisofbeldi og var Hildur fengin til að skrifa greinargerð um leiðir til að styrkja stöðu brotaþola. Í dag eru lögin þannig að réttargæslumaður fær einungis aðgang að þeim gögnum sem varða þátt brotaþola og eru honum nauðsynleg til að gæta hagsmuna hans á rannsóknarstigi. Einkum er um að ræða lögregluskýrslu brotaþola sjálfs og gögn lækna. Lögreglu ber ekki skylda til að upplýsa brotaþola um framgang máls en árið 2015 var þó sett ákvæði um að brotaþolar hafi rétt til að kæra ákvörðun héraðssaksóknara eða lögreglustjóra til ríkissaksóknara. Brotaþoli má ekki hlýða á framburð ákærða en réttargæslumanni er þó heimilt að vera viðstaddur öll þinghöld í máli en má ekki beina spurningum til ákærða eða vitna og er einungis heimilt að tjá sig munnlega fyrir

x

Lögmannablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.