Lögmannablaðið - 2022, Síða 15
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/22 15
dómi um einkaréttarkröfur skjólstæðings síns. Þó má
hann tjá sig um réttarfarsatriði ef þau snúa sérstaklega að
skjólstæðingi.
Samkvæmt jafnræðisreglu sakamálaréttarfars er litið
svo á að sakborningur standi höllum fæti í samanburði
við ákæruvaldið og því skuli tryggja sakborningi ýmis
réttarfarshagræði til að koma í veg fyrir að saklaus maður
verði dæmdur sekur. Sjónarmið hafa verið uppi um að
styrkari staða brotaþola leiði sjálfkrafa til veikari stöðu
sakbornings, ríkið og brotaþoli á móti sakborningi, en Anne
Robberstad lögfræðingur og prófessor við Óslóarháskóla
hefur gagnrýnt þessa túlkun á jafnræðisreglunni og segir
að hún byggi á þeirri hugmynd að réttarhöld séu eins
konar einvígi eða íþróttaleikur þar sem tvö lið séu að
keppa. Robberstad greindi dóma MDE og færði rök fyrir
því að jafnræðisreglan komi ekki í veg fyrir að styrkja megi
réttarfarslega stöðu brotaþola, svo lengi sem réttur ákærða
sé ekki skertur.
Réttarstaða brotaþola á Norðurlöndum
Á meðfylgjandi mynd er borin saman réttarstaða brotaþola
á Norðurlöndum. T.a.m. hafa brotaþolar í Finnlandi og
Svíþjóð rétt á að gerast aðilar að sakamáli og almennan
rétt á að hefja einkarefsimál ef saksóknari ákveður að láta
málið niður falla. Þá geta þeir lagt fram eigið ákæruskjal og
sönnunagögn, spurt ákærða og vitni spurninga og áfrýjað
máli.
Í Finnlandi er almennt litið á brotaþola sem málsaðila
frá upphafi og hafa þeir aðgang að gögnum máls á
rannsóknarstigi en í Svíþjóð geta brotaþolar aðeins gerst
aðilar máls ef og þegar saksóknari gefur út ákæru. Frá
2008 hefur réttarstaða brotaþola í Noregi verið styrkt. T.d.
er lögreglu og ákæruvaldi skylt að upplýsa brotaþola um
framgang málsins, þeir hafa almennan aðgang að gögnum
á meðan á lögreglurannsókn stendur nema að lögregla telji
það geti skaðað rannsókn málsins. Brotaþolar bera nú vitni
fyrir dómi á undan ákærða og geta því setið inni í réttarsal
í gegnum öll réttarhöldin. Þá eiga brotaþolar rétt á að taka
þátt í réttarhöldunum í gegnum réttargæslumann sinn, t.d.
leggja fram viðbótar sönnunargögn og spyrja ákærða og
vitni til viðbótar spurninga á eftir saksóknara og verjanda,
auk þess að ávarpa dóminn.
Samkvæmt niðurstöðum erlendra rannsókna um brotaþola
og réttarkerfið þá er viðmót fagaðila innan réttarkerfisins,
og hvernig mál er meðhöndlað, afar mikilvægt fyrir
andlega og líkamlega heilsu þeirra sem kæra brot. Þá
er einnig mikilvægt fyrir brotaþola að vera mætt með
skilningi og virðingu af fagaðilum innan réttarkerfisins, fá
upplýsingar um hvernig kerfið virkar og máli miðar innan
þess sem og að hafa val um að taka þátt í réttarferlinu.
Samkvæmt tillögum stýrihóps forsætisráðherra er lagt til
að brotaþolar fái flest þau réttindi sem aðilar máls hafa á
hinum Norðurlöndunum, t.d. aðild að sakamáli. Þá ber
að tryggja að brotaþolum sé ekki mismunað að neinu
leyti samanber tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr.
2012/296/EU. Lagður er til aukinn réttur til upplýsinga
og þátttöku á rannsóknarstigi sem og á ákæru- og dómstigi.
Einnig er lagt til aukinn réttur til upplýsinga að dómi
loknum. Hildur sagði að frumvarpi til laga um breytingu
á lögum um meðferðsakamála og lögum um fullnustu