Lögmannablaðið - 2022, Page 22
22 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/22
Málsmeðferðartími
Málshraði kom talsvert til umfjöllunar á málþinginu en
Almar sagði að vinna þyrfti upp málshraðann í öllum
málum. Til dæmis mætti athuga hvort unnt væri að lögfesta
einhvern tímaramma fyrir lögreglu við rannsókn mála eða
skilgreina rýmri heimildir fyrir lögreglu til niðurfellingar
mála ef hún teldi greinilegt að þau yrðu felld niður síðar.
Ævar sagði að rannsókn gríðarlegs fjölda kynferðisbrotamála
hvíldi á tiltölulega fáum starfsmönnum og í raun þyrfti að
forgangsraða málum innan forgangsmála. Inga Lillý sagði að
í kerfinu væru of fáar hendur og langur málsmeðferðartími
væri stærsta vandamálið. Þolendur upplifðu oft skelfingu
á þessum tímapunkti, jafnvel lífshótandi aðstæður, en svo
tæki við alltof langur viðbragðstími og upplifun þolenda
væri að mál þeirra væru ekki tekið alvarlega.
Opin þinghöld
Ævar sagði að mikil áhersla væri lögð á að koma vel fram
við alla aðila máls hjá lögreglu en neikvæð umfjöllun fengi
almennt miklu meira vægi í fjölmiðlum heldur en jákvæð.
Inga Lillý sagðist upplifa að fólk innan kerfisins reyndi að
koma til móts við brotaþola. Kerfið gæti virkað kalt og ýmsar
rannsóknaraðgerðir sem gripið væri til og beindust að
brotaþola eða hans aðstæðum gætu verið mjög þungbærar.
Það vantaði að hafa brotaþola meira með í ráðum þannig
að gagnsæið yrði betra. Halldóra sagði það oft gleymast
að upphaflega ástæðan fyrir lokuðum þinghöldum væri
að vernda hagsmuni brotaþola. Það væri nýtilkomið með
MeToo bylgjunum að brotaþolar vildu skila skömminni og
hafa þinghöld opin. Nú væri spurning í ljósi breytts landslags
hvort laga ætti meginreglur um opinbera málsmeðferð í
þessum málaflokki eftir vilja brotaþolans. Kristín kvað
það grundvallarreglu í samfélaginu að málsmeðferð
fyrir dómstólum væri opinber og með betra aðgengi að
upplýsingum myndi traust til réttarkerfisins aukast.
Í lokin
Þátttakendur voru almennt sammála um að frumvarpsdrög
dómsmálaráðherra fælu í sér margvíslegar réttarbætur
fyrir brotaþola en ítrekað kom fram hve langur málsmeð-
ferðartími væri í kynferðisbrotamálum og hversu íþyngjandi
hann væri fyrir brotaþola. Hátt í 150 lögfræðingar sóttu
þingið sem var haldið í Iðnó.
Arnar Vilhjálmur Arnarsson og Eyrún Ingadóttir tóku
saman.
Suðurlandsbraut 4, 3. hæð, 108 Reykjavík
Sími 414 4100 · www.law.is
Borgartúni 26
IS 105 Reykjavík
+354 580 4400
www.juris.is