Lögmannablaðið - 2022, Side 39

Lögmannablaðið - 2022, Side 39
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 01/22 39 Í fyrsta lagi hafi leikið vafi á því hvort nauðungarsölubeiðnin lyti að ráðstöfun sameignar málsaðila, sbr. frumskilyrði 2. mgr. 8. gr. nauðungarsölulaga, en varnaraðilar héldu því fram að sóknaraðilar ættu einungis umferðarrétt um vegstæðið. Í öðru lagi með vísan til þess að fyrirmæli skipulagslaga og jarðalaga stæðu í vegi að nauðungarsalan næði fram að ganga, sbr. niðurlag 2. mgr. 8. gr. nauðungarsölulaga. Vísað var til þess að beiðnin lyti að nauðungarsölu á afmörkuðum hluta tiltekinnar eða tiltekinna fasteigna sem ekki hefði verið skipt út úr landi þeirra. Samkvæmt 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 skyldi skipting lands á landbúnaðarsvæðum samrýmast skipulagsáætlun en ákvæðið vísar til 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í 1. mgr. þess ákvæðis segði að óheimilt væri að skipta jörðum, löndum eða lóðum, breyta landamerkjum og lóðamörkum, nema með samþykki sveitarstjórna. Af þessu leiddi að vegstæðinu yrði ekki skipt úr landi aðila án samþykkis skipulagsyfirvalda og gæti nauðungasalan því ekki náð fram að ganga. Sjónarmið við skiptingu lands Telja verður niðurstöðuna rétta og eðlilega m.t.t. þeirra reglna sem gilda um skipulag og skráningu fasteigna og þeirra sjónarmiða sem búa að baki. Skipulagslög nr. 123/2010 byggja á meginreglunni um skipulagsskyldu en í 12. gr. laganna segir að skipuleggja beri allt land og hafsvæði innan marka sveitarfélaga. Jafn- framt að bygging húsa og annarra mannvirkja, ofan jarðar og neðan, aðrar framkvæmdir og aðgerðir sem hafi áhrif á umhverfið og breyti ásýnd þess skuli vera í samræmi við skipulagsáætlanir. Í samræmi við framangreint skal ákvörðun um skiptingu lands að jafnaði tekin í deili- skipulagi skv. 1. mgr. 37. gr. skipulagslaga. Ákvörðun um skiptingu lands í fleiri fasteignir er í skipulagslegu tilliti meiriháttar ákvörðun sem hefur mjög víðtæk áhrif. Horfa þarf til ýmissa atriða sem hafa grundvallarþýðingu varðandi réttindi eigenda, nágranna og annarra s.s. varðandi aðkomu og umferðarrétt, tengingar við vegi, landnotkun o.fl. Skipting á landi í fleiri eignir eykur og líkur á ýmsum skipulagslegum og eignaréttarlegum úrlausnarefnum til framtíðar sem nauðsynlegt er að líta til þegar í upphafi. Í undantekningartilvikum geta sveitarstjórnir mögulega samþykkt útskiptingu lands eingöngu á grundvelli 48. gr. skipulagslaga án þess að deiliskipulag liggi fyrir áður. Í slíkum tilvikum þarf engu að síður að horfa til sömu skipulagslegu þátta og við gerð skipulags s.s. varðandi aðkomu og umferðarrétt. Ef nauðungarsala fasteignar, sem ekki hefði verið skipt út úr landi á grundvelli ákvæða skipulagslaga, myndi fara fram væri með beinum hætti stigið inn í skipulagsvald sveitarfélaga og teknar ákvarðanir um skipulag án þess að huga að þeim atriðum sem nauðsynleg væru við slíka ákvarðanatöku. Mögulegt er að með slíkum ákvörðunum væri raskað mikilsverðum almannahagsmunum og/eða einstaklingshagsmunum annarra. Fleiri dómsmál um slit á sérstakri sameign Úrskurður Landsréttar í málinu nr. 664/2021 á sér nokkra samsvörun í dómi Hæstaréttar í máli nr. 234/2005. Hæstiréttur vísaði því máli frá dómi þar sem kröfugerð laut að því að dómstólar skiptu tilteknu landi út úr sameign í stað þess að gerð væri krafa til viðurkenningar á rétti til skiptingar sameignarinnar. Vísað var til þess að ákvæði þágildandi skipulags- og byggingarlaga áskildu m.a. samþykki sveitarstjórnar fyrir skiptingu jarða og því væri ekki unnt að krefjast beinnar skiptingar þó játa yrði aðilum því úrræði að leita atbeina dómstóla til slita á sameign. Hins vegar kemur mögulegur ágreiningur um landamerki aðliggjandi jarða ekki í veg fyrir nauðungarsölu til slita á sérstakri sameign, að því gefnu að landskipti hafi farið fram með samþykki skipulagsyfirvalda. Á það reyndi t.a.m. í dómi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 6/2007, þar sem m.a. var vísað til þess að stofnun landspildu hefði verið staðfest í Landskrá fasteigna og sameiginlegu eignarhaldi verið þinglýst. Var komist að þeirri niðurstöðu að taka bæri nauðungarsölubeiðni á landspildunni til afgreiðslu jafnvel þó að ágreiningur væri um landamerki aðliggjandi jarða og vísað til þess að réttarstaða uppboðskaupanda yrði ekki önnur né meiri en réttarstaða þáverandi eigenda. Af framangreindu má ráða að ekki er unnt að ráðstafa hluta sameignarlands með nauðungarsölu, sem ekki hefur verið skipt út úr öðru landi með samþykki skipulagsyfirvalda. Það hefur þó ekki þýðingu þó merki sameignarlands og aðliggjandi landa séu óljós, hafi slík skipting farið fram. Nokkur fjöldi dómsmála hafa verið rekin um sérstaka sameign og ýmis álitaefni tengd þeim. Í niðurstöðum þeirra hefur, auk óskráðra reglna, verið vísað til reglna laga um fjöleignarhús nr. 26/1994, meðal annarra. Til að eyða óvissu og skerpa á reglum sem gilda um sameign, þ.m.t. um möguleg slit sameignar með nauðungarsölu, er tímabært að huga að endurskoðun laga á þessu sviði og má í því sambandi má benda á að í Noregi eru í gildi sérstök lög um sameign sem líta mætti til við slíka vinnu.

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.