Lögmannablaðið - 2021, Qupperneq 21
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/21 21
framkvæmd við mat á miska, enda sé slík grundvallar
breyting ekki í samræmi við skaðabótalög.
Dómurinn í máli nr. 5/2021 kann að hafa töluvert almennt
gildi í ljósi þess að undanfarin ár hafa tryggingafélögin
ítrekað borið fyrir sig hlutfallsreglu til lækkunar bóta. Í það
minnsta í þeim tilfellum þar sem metið hefur verið eftir
miskatöflum örorkunefndar frá árinu 2006 og bætur verið
lækkaðar með vísan til hlutfallsreglu kunna einstaklingar
að eiga rétt á bótum sem nema lækkuninni.
Til stuðnings áfrýjunarbeiðni sinni til Hæstaréttar lagði
Vörður fram bréf frá Sjúkratryggingum Íslands. Í því
bréfi kom fram að stofnunin hefði beitt hlutfallsreglu við
ákvörðun um varanlega læknisfræðilega örorku allt frá
árinu 2012. Stofnunin liti á hlutfallsregluna sem meginreglu
í matsfræðum og henni væri ávallt beitt við ákvörðun um
varanlega læknisfræðilega örorku og miska. Nú hefur
Hæstiréttur eins og áður segir kveðið upp dóm þess efnis
að hlutfallsreglan sé ekki meginregla í matsfræðum. Í ljósi
eðlis og tilgangs slysatrygginga almannatrygginga telja
greinarhöfundar að stofnuninni sé skylt að endurupptaka
að eigin frumkvæði þau mál þar sem hlutfallsreglu hefur
verið beitt, sbr. einkum 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1999.
Þá er það von greinarhöfunda að dómur Hæstaréttar í máli
nr. 5/2021 verði til þess að matsmenn í líkamstjónamálum
hverfi af þeirri braut að lækka möt sín með vísan til
,,reglu‘‘ sem Hæstiréttur hefur kveðið skýrt á um að er
ekki meginregla í matsfræðum.
GÖNGUFERÐ FÉLAGSDEILDAR LMFÍ LAUGARDAGINN 14. ÁGÚST 2021
GRÆNIHRYGGUR
FÉLAGSDEILD LMFÍ STENDUR FYRIR GÖNGU Á GRÆNAHRYGG LAUGARDAGINN
14. ÁGÚST 2021 FYRIR FÉLAGSMENN
OG FJÖLSKYLDUR ÞEIRRA
Lagt verður af stað frá Reykjavík kl. 7.00 að morgni
á eigin jeppum að Kirkjufelli við Kýlingavatn nærri
Landmannalaugum. Þeim sem ráða ekki yfir slíkum
bílakosti verður reynt að útvega far.
Gangan
Gangan er um 15 km löng og tekur um 6-8 klukku-
stundir. Gengið verður inn og uppúr Halldórsgili og
síðan niður í Jökulgilið en vaða þarf Jökulgilskvíslina
a.m.k. fjórum sinnum áður en komið er að hinum
stórkostlega Grænahrygg. Best er að taka létta gönguskó, t.d. íþróttaskó sem mega blotna, til að ganga í síðustu
kílómetrana þegar jökulkvíslarnar eru þveraðar. Gangan er krefjandi og gerð er sú krafa til þátttakenda að þeir
séu í góðu gönguformi. Gott viðmið er að geta gengið upp að Steini á Esju á einni klukkustund.
Kostnaður kr. 12.000,- fyrir félagsmenn félagsdeildar og fjölskyldur en kr. 18.000,- fyrir aðra.
Skráning á www.lmfi.is