Lögmannablaðið - 2021, Blaðsíða 23
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/21 23
Þagnarskylda
Til að varpa skýrara ljósi á hvað felst í þagnarskyldu lögmanna
er lagt til að 6. grein gildandi siðareglna verði felld niður
en breyta og bæta við 17. grein. Með þessu er ekki verið
að breyta eðli eða inntaki trúnaðar- og þagnarskyldu
lögmanna heldur verið að árétta að lögmaður sé bundinn
þagnarskyldu gagnvart skjólstæðingi sínum og það gildi um
öll lögmannsstörf, hvort um sé að ræða rekstur dómsmála
eða önnur verkefni. Þá er áréttað að allar upplýsingar um
skjólstæðing, eða málefni hans, sem lögmaður verður áskynja
í starfi sínu séu háðar þagnarskyldu og hún gildi ótímabundið.
Undantekningar á þagnarskyldu snúa að skýlausu lagaboði;
endanlegri dómsúrlausn í þágu skjólstæðings eða að hans
ósk, enda standi lög því ekki í vegi. Eins er gert ráð fyrir
undanþágu frá þagnarskyldu í ágreiningsmálum milli
lögmanns og skjólstæðings séu upplýsingarnar nauðsynlegar
málarekstrinum.
Á fundinum gerði Marteinn Másson athugasemd við að 6.
gr. yrði felld brott, enda væri ákvæðið þörf og ágæt brýning
til lögmanna um að fara varlega með upplýsingar í starfi
sínu. Gerði Marteinn að tillögu sinni að ákvæðið yrði látið
standa óbreytt. Þá taldi Marteinn að skoða þyrfti betur 5.
mgr. 17. gr., þar sem fjallað er um í hvaða tilvikum lögmanni
er heimilt að miðla áfram upplýsingum. Leggja þyrfti meiri
áherslu á að það yrði að vera háð mati lögmannsins þar sem
skjólstæðingur gæti verið undir þrýstingi. Óttar Pálsson
svaraði því til að nefndin hefði viljað tryggja samræmi í
notkun hugtaka og til dæmis ekki nota orðið „trúnaðarskylda“
í grein sem fjallaði sérstaklega um þagnarskyldu.
Þóknun
Mörg mál sem úrskurðarnefnd lögmanna fær til meðferðar
lúta með einum eða öðrum hætti að ágreiningi um þóknun.
Nokkrar af fyrri greinum siðareglna fjölluðu um þóknun
lögmanna en í tillögum siðareglunefndar hafa þær verið
felldar undir sömu grein til að skýra og skerpa inntak
þeirra. Í tillögunni er talið upp hvað sé mat á hæfilegri
þóknun fyrir störf lögmanna með tilliti til umfangs og
eðlis máls, undirliggjandi hagsmuna, þýðingu fyrir
Þær greinar siðareglna varðandi þagnarskyldu sem lagt
er til að breyta:
6. gr. Upplýsingum, sem lögmaður fær í starfi, skal haldið
frá óviðkomandi, þótt lögboðin þagnarskylda banni ekki.
Þá reglu skal lögmaður brýna fyrir starfsfólki sínu.
– Fellur niður.
17. gr. [1] Lögmaður skal aldrei án endanlegs
dómsúrskurðar, sem beint er að honum sjálfum, eða
skýlauss lagaboðs, láta óviðkomandi aðilum í té gögn
og upplýsingar, sem lögmaður hefur fengið í starfi um
skjólstæðing sinn eða fyrrverandi skjólstæðing. [2] Sama
gildir um fulltrúa lögmanns og annað starfslið svo og
félaga lögmanns að lögmannsskrifstofu og starfslið hans.
[3] Lögmaður getur að beiðni skjólstæðings afhent
gögn þau eða upplýsingar, sem um getur í 1. mgr.,
enda krefjist augljósir hagsmunir skjólstæðings þess. [4]
Trúnaðarskyldan helst þótt verki sé lokið.
- Fellur niður en í staðinn orðast greinin svo:
[1] Lögmaður er bundinn þagnarskyldu gagnvart
skjólstæðingi sínum vegna starfa sinna. [2] Þagnarskyldan
gildir ótímabundið. [3] Allar upplýsingar um skjólstæðing
eða málefni hans sem lögmaður tekur við eða verður
áskynja í starfi eru háðar þagnarskyldu óháð því hvaðan
upplýsingarnar eru komnar. [4] Öll skjöl og önnur gögn
sem lögmaður útbýr eða afhendir skjólstæðing sínum
eru háð þagnarskyldu. [5] Þrátt fyrir þagnarskyldu er
lögmanni heimilt að miðla upplýsingum sem ella væru
háðar þagnarskyldu: a) Á grundvelli skýlauss lagaboðs
eða til að verða við endanlegri dómsúrlausn; b) Í þágu
skjólstæðings eða að hans ósk enda standi lög því ekki
í vegi; eða c) Í ágreiningsmálum milli lögmanns og
skjólstæðings enda séu upplýsingarnar nauðsynlegar
málarekstrinum. Málarekstur á hér við um ágreiningsmál
sem rekin eru fyrir dómstólum, gerðardómi, stjórnvöldum,
úrskurðarnefnd lögmanna eða öðrum. [6] Lögmaður
skal gera tilhlýðilegar ráðstafanir til að tryggja að
löglærðir fulltrúar sem starfa í hans umboði, starfsfólk
á lögmannsstofu hans eða aðrir sem hann leitar til
eða á samstarf við í tengslum við lögmannsstörfin gæti
þagnarskyldu með sama hætti.