Sjómannadagsblaðið - 2022, Blaðsíða 8
8 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2
afleiðingar. Að sama skapi getur
lítið sjálfstraust og ofuráhersla á
að halda í hefðir haft margvísleg
eftirmál, sem oft birtist í hroka eða
„besserwisseratöktum“ að sögn
Einars.
„Margt af því sem við nefnum í 12
hnútum er ekki endilega þættir sem
menn tengja beint við slysahættu.
Tökum hreinlæti sem dæmi. Sjó-
menn ættu þannig að spyrja sig:
„Er allt í drasli um borð í bátnum?
Erum við að flækjast í rusli sem á
heima á afmörkuðum stað eða þurf-
um við að klofa yfir eitthvað til að
komast í björgunarbátinn?“ Við hjá
Samgöngustofu höfum séð myndir
úr bátum þar sem það er raunveru-
lega staðan og hætta hefur skapast.
Hreinlæti er því ekki bara einhver
pempíuskapur, þetta er mikilvægt
öryggisatriði.“
Fyrirmynd úr fluginu
12 hnútar sækja innblástur í sam-
bærilegt átak Samgöngustofu
fyrir fólk í flugrekstri sem kynnt
var fyrir nokkrum árum. Átakið
bar nafnið „The Dirty Dozen“, þar
sem einnig var litið á tólf þætti í
mannlegri hegðun sem leitt geta
til slysa – og eiga það til að leiða
til slysa. Þar var um að ræða þætti
eins og þreytu eða íþyngjandi
kröfur frá yfirmönnum, rétt eins
og í 12 hnútum.
„Við hugsuðum með okkur að
við hlytum að geta gert þetta fyrir
sjómennskuna líka, þrátt fyrir
að hún sé annars konar heimur
og öðruvísi uppbyggður. Það
að vera í áhöfn flugvélar í fjóra
klukkutíma er ekki eins og að vera
í marga daga á túr. Þá er viðhald
tækjabúnaðarins jafnframt ólíkt,“
segir Einar. Þrátt fyrir það geti
sömu mannlegu þættirnir leitt til
slysa í lofti og á legi, enda starfi
manneskjur á báðum sviðum.
The Dirty Dozen, sem unnið
var með aðkomu sérfræðinga í
fluggeiranum, fór á mikið flug að
sögn Einars. Þannig vakti átakið
svo mikla athygli í flugbransanum
að flugvélaframleiðandinn Airbus
nýtir það nú í forvarnafræðslu
sinni. Flugfélagið Lufthansa gerir
slíkt hið sama og EASA, evrópska
flugöryggisstofnunin, hefur deilt
„The Dirty Dozen“ í aðildarlöndum
sínum. Vonir Einars standa því til
að 12 hnútar muni vekja viðlíka
athygli en ekki síst að verkefnið
skili árangri og fækki slysum.
Draumurinn að enginn brjóti nögl
Fyrstu upplýsingaspjöld 12 hnúta
hafa þegar litið dagsins ljós. Þau
eru gefin út rafrænt og henta vel
til margs konar dreifingar. Þannig
má auðveldlega prenta þau út,
nýta sem skjáhvílu eða deila þeim
á samfélagsmiðlum. Spjöldun-
um hefur verið dreift til nokkur
hundruð aðila að sögn Einars, þar
á meðal aðildarfélaga Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka
ferðaþjónustunnar og annarra
haghafa í greininni. Þá stendur
jafnframt til að gefa út dagatal
með spjöldunum þegar fram líða
stundir. Sem fyrr segir má nálgast
spjöldin með einföldum hætti á
heimasíðu Samgöngustofu eða
með því að leita að „12 hnútar“ í
leitarvélum internetsins.
Vinnan við spjöldin hófst í fyrra
þegar Samgöngustofa settist niður
með hinum ýmsu sérfræðingum
í öryggismálum og sjómennsku,
meðal annarra fulltrúum Lands-
bjargar og Slysavarnaskóla sjó-
manna. Einar segir að vinnan hafi
verið yfirgripsmikil og vönduð,
enda málefnið mikilvægt. Ótal
hugmyndir hafi kviknað en að
endingu hafi þeim verið fækkað
niður í 12 handhæg auglýsinga-
spjöld. „Þau hefðu getað orðið
miklu fleiri,“ segir Einar og hlær.
Spurður hver draumaniðurstað-
an af átakinu sé segir Einar kím-
inn: „Að menn, í mesta lagi, brjóti
á sér nögl við störf sín. Með öðrum
orðum: Að það verði helst engin
atvik til að skrásetja.“
Einar segir að sjómenn og at-
vinnugreinin öll eigi mikinn heið-
ur skilinn fyrir frábæran árangur
í öryggismálum á undanförnum
árum. „Sá árangur er að hluta
til hugarfarslegur. Fræðsla og
þjálfunarkröfur sem gerðar eru til
sjómanna fela nú í sér víðtækara
öryggisviðhorf en áður, þetta er
ekki bara spurning um að passa í
einhvern björgunargalla eða vera
með hjálm. Þetta snýr í auknum
máli að félagslegum þáttum um
borð, t.d. að standa vörð um ör-
yggi sitt og félaga sinna. Þú vilt
geta treyst á næsta mann, að hann
stígi inn ef hætta steðjar að þér, og
hann vill sömuleiðis að þú aðstoð-
ir hann,“ segir Einar.
„Félagslegi þátturinn er nefni-
lega vanmetið öryggisatriði sem
er nauðsynlegt að ala stöðugt á. 12
hnútar verða vonandi liður í því.“
– sój
Fyrsta upplýsingaspjaldið var birt í janúar.
Þar er sjónum beint að hagnýtum öryggisatriðum.
í febrúar var áhersla lögð á að temja sér öguð vinnubrögð og
að hafa vaðið fyrir neðan sig.
upplýsingaspjald marsmánaðar undirstrikar mikilvægi
þess að þekkja eigin takmörk og annarra.