Sjómannadagsblaðið - 2022, Blaðsíða 40
40 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2
S jómannadagsráð hefur frá
upphafi alfarið starfað án
arðgreiðslumarkmiða og er
tiltæku ráðstöfunarfé á hverjum
tíma eingöngu varið til viðhalds
og uppbyggingar í starfsemi og til
greiðslu fjárhagsskuldbindinga
sem tengjast rekstri.
Fjórðungur hjúkrunarrýma
hjá Hrafnistu
Sjómannadagsráð helgar krafta
sína uppbyggingu á húsnæði
og rekstri fjölbreyttrar þjónustu
við eldra fólk og þjónustar á degi
hverjum hátt í tvö þúsund einstak-
linga í fimm sveitarfélögum. Í
því sambandi gegnir Hrafnista,
dótturfélag Sjómannadagsráðs,
stóru hlutverki sem leiðandi aðili
í öldrunarþjónustu með rekstri
átta hjúkrunarheimila í fimm
sveitarfélögum á suðvesturhorni
landsins. Þar búa alls um átta
hundruð manns í rúmlega fjórð-
ungi tiltækra hjúkrunarrýma á
landinu. Auk íbúanna sækja á
fjórða hundrað dagdvalargesta
margvíslega þjónustu og þjálf-
un til Hrafnistu á degi hverjum,
bæði þeir sem búa sjálfstætt á
eigin heimili og íbúðarleigjendur
Naustavarar, sem einnig er dóttur-
félag í eigu Sjómannadagsráðs.
Sjálfstæð búseta svo
lengi sem kostur er
Naustavör er íbúðaleigufélag sem
stofnað var árið 2001. Félagið hefur
byggt á þriðja hundrað sérhannaðra
leiguíbúða í Reykjavík, Kópavogi
og Hafnarfirði í næsta nágrenni við
Hrafnistuheimilin. Þjónustumark-
mið Naustavarar er að veita íbúum
aðgang að margvíslegri afþreyingu
og tómstundum, fjölbreyttum þjón-
ustumöguleikum og öruggu um-
hverfi til búsetu á efri árum.
Með því leitast Sjómannadagsráð
við að gera hverjum og einum kleift
að halda áfram sjálfstæðri búsetu
svo lengi sem kostur er með þeim
úrræðum sem standa til boða hjá
félagsþjónustu sveitarfélaga og
heilbrigðisþjónustu opinberra aðila.
Vinsældir leiguíbúðanna hafa aldrei
verið meiri en um þessar mundir, en
upplýsingar um helstu kosti þeirra
má nálgast á Naustavör.is.
Meðal stærstu vinnustaða
Sjómannadagsráð hefur í áratugi
þróað starfsemi sína í takti við
breytilegar og vaxandi kröfur sam-
félagsins um fjölbreytt búsetuúr-
ræði eldra fólks. Því felst þjónusta
Sjómannadagsráðs ekki aðeins í
því að veita þeim hjúkrunarþjón-
ustu sem þurfa á varanlegri um-
önnun á hjúkrunarheimili að halda,
heldur einnig og ekki síður í því
markmiði að gera eldra fólki kleift
að búa lengur í sjálfstæðri búsetu.
Í heild búa um þrettán hundruð
manns á Hrafnistuheimilunum
átta og í leiguíbúðum Naustavar-
ar, sem njóta fjölbreyttrar og að
verulegu leyti sérhæfðrar þjónustu
sautján hundruð starfsmanna,
jafnt faglærðra sem ófaglærðra.
Eru starfsstöðvar Sjómannadags-
ráðs því sem heild meðal fjölmenn-
ustu vinnustaða landsins.
Fjórir lífsgæðakjarn-
ar Sjómannadagsráðs
Lífsgæðakjarni er hugtak yfir
heildstæða hugmyndafræði sem
Sjómannadagsráð hefur þróað
undanfarna áratugi, en fékk ekki
sérstakt heiti fyrr en nýlega. Lífs-
gæðakjarni nær yfir húsnæði, að-
búnað og þjónustu þar sem eldra
fólk hefur aðgang að starfsemi sem
eykur lífsgæði fólks sem nýtur
þjónustunnar. Hann samanstend-
ur af hjúkrunarheimili, leiguí-
búðum og þjónustumiðstöð. Með
virku samstarfi þeirra sem þar búa,
starfa eða sækja þangað þjónustu
verður til kjarni með fjölbreyttri
þjónustu, sem stuðlar að auknu
öryggi, félagstengslum, meiri
vellíðan og almennt auknum
lífsgæðum eldra fólks. Sjómanna-
dagsráð starfrækir í dag fjóra
lífsgæðakjarna á höfuðborgar-
svæðinu; við Boðaþing í Kópavogi,
Hraunvang í Hafnarfirði og við
Laugarás og Sléttuveg í Reykja-
vík. Með nýju samkomulagi sem
Sjómannadagsráð og Hrafnista
hafa gert við Reykjavíkurborg um
að taka að sér ábyrgð á sjálfs-
eignastofnuninni Skógarbæ opn-
ast tækifæri til að þróa fimmta
lífsgæðakjarnanum við Skógar-
bæ, þar sem veitt verði fjölþætt
þjónusta við aldraða í samstarfi
við Reykjavíkurborg. - bv
Sjómannadagsráð er
stærsta fyrirtæki
landsins sem sérhæfir sig
í þjónustu við aldraða
Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins voru upphaflega grasrótarsamtök sjómanna í reykjavík og
Hafnarfirði, stofnuð árið 1937, sem í dag standa að Félag skipstjórnarmanna, Félag vélstjóra og
málmtæknimanna og Sjómannafélag íslands.
afmælisfögnuður þar sem tímamótum var fagnað með harmonikkuleik. nýtt fjölbýlishús naustavarar við Sléttuveg.
Púttvöllurinn við Sléttuveg tilbúinn fyrir sumarið.