Sjómannadagsblaðið - 2022, Blaðsíða 12
12 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2
þannig að það eru alltaf dálitlir
útúrsnúningar í þessu.“
Kjör sitt í formannsembætti LÍÚ
á þriggja daga aðalfundi samtak-
anna sem haldinn var í Vest-
mannaeyjum síðla árs 1970 segir
Kristján hafa verið afar óvænt. „Á
þessum tíma var búið að titla mig
erindreka, því ég ferðaðist mikið
um landið og heimsótti útgerðar-
menn og var í góðu sambandi við
þá.“ Samkoman var svo fjölmenn
að samtökin fengu lánaða verbúð
undir gestina og bætir Kristján
við að þar hafi allt verið til fyrir-
myndar, ólíkt því sem ætla mætti
um verbúðir af samnefndum
sjónvarpsþáttunum. Á fundin-
um hafi svo komið upp deilur um
formannsembættið þegar ráðandi
menn í samtökunum, þeirra á
meðal Sverrir Júlíusson fráfarandi
formaður, Sveinn Benediktsson
og Loftur Bjarnason, voru búnir
að koma sér saman um að gera
Þorstein Gíslason, sem var skóla-
stjóri í Sjómannaskólanum, að
formanni. „En það fer eitthvað
illa í menn að gera Þorstein að for-
manni.“ Þá hafi hans nafn borið á
góma, en það hafi ekkert verið rætt
áður. „Þegar Björn Guðmundsson,
útgerðarmaður í Eyjum, finnur að
ekki er fylgi við Þorstein ákveður
hann að bjóða sig fram. Ég segi
að ég fari aldrei á móti honum, sé
heimagangur hjá þeim hjónum og
hann einstakur vinur minn. Þetta
komi ekki til greina. Þá leggjast
þeir á Björn og fá hann til að draga
sig til baka og úr verður að ég er
kosinn formaður sjöunda nóvem-
ber, byltingardaginn, 1970.“ Svo
lauk fundi og Kristján hélt heim
að segja eiginkonunni tíðindin,
að hann væri orðinn formaður.
„Strákurinn á skrifstofunni eins og
sagt er.“ Kristján var þarna 32 ára.
Styrk sinn í starfi segir Krist-
ján hafa verið að hafa þekkt alla
útgerðarmenn í kringum landið.
„Ég var búinn að fara og heim-
sækja alla einhvern tímann og
mæta á fundi hjá útvegsmanna-
félögum Vestfjarða, Austfjarða,
Norðurlands, Vestmannaeyja og
Suðurnesja. Ég var búinn að koma
á alla þessa fundi þannig að menn
vissu hver ég var.“ Hann neitar
því þó ekki að verkefnið hafi ver-
ið ærið, enda útgerðarmenn síst
meiri lömb þá en nú og svo hafi
hópurinn verið mun stærri.
Fékk aldrei mótframboð
En þótt átök væru og umbrota-
tímar var greinilega mikil sátt
um Kristján í starfi formanns, en
til marks um það er að í öll þau
ár sem hann gegndi formennsku
fékk hann aldrei mótframboð.
Einu sinni var mótframboð þó orð-
að við hann. „Þetta var fyrir alda-
mótin, líklega nálægt 1995, þegar
við vorum niðri í Hafnarhvoli,
áður en við fluttum í Hús atvinnu-
lífsins,“ rifjar hann upp. „Ég hafði
alltaf opnar dyrnar hjá mér, nema
það væru gestir, og svo var allt í
einu maður kominn inn og sestur
á móti mér við skrifborðið. Hann
segir: Ég er kominn hérna Kristján
til að tilkynna þér að ég ætla að
bjóða mig fram gegn þér.“ Þarna
var kominn ungur útgerðarmaður,
Guðmundur Kristjánsson sem átti
eftir að láta meira að sér kveða og
er núna kenndur við Brim. Krist-
ján hugsaði sig um augnablik og
svaraði svo að það þætti honum
ánægjulegt, því hann hafi verið
sjálfkjörinn öll þessi ár og aldrei
vitað raunverulega hvað hann ætti
sterkt bakland. „Þú gerir mér mik-
inn greiða með þessu, Guðmund-
ur. Þakka þér bara kærlega fyrir
að koma og segja mér frá þessu.
Núna veit ég hvar ég stend eftir að
búið verður að kjósa á milli okkar.
Hann fór út, lokaði dyrunum og ég
heyrði aldrei af þessu aftur,“ segir
Kristján og hlær, en bætir um leið
við að þeir Guðmundur hafi alla
tíð verið góðir vinir og unnið vel
saman. „Ég þekkti pabba hans,
Kristján Guðmundsson, útgerðar-
mann á Rifi.“
Í vetur kviknaði á ný umræða
um tilurð kvótakerfisins, ekki
síst fyrir tilstilli sjónvarpsþáttar-
aðarinnar Verbúðarinnar. „Já, ég
fylgdist með þessum þáttum,“ seg-
ir Kristján og bætir við að sér hafi
að mörgu leyti þótt þeir vel gerðir
og sagan þannig upp sett að hvatti
til áhorfs. „En mér fannst efnið
samt aldrei koma til skila upphafi
kvótakerfisins, breytingunum
sem voru gerðar og ástæðunum
sem lágu að baki.“ Tilurð og inn-
leiðingu kvótakerfisins segir hann
hafa verið mikla lífsreynslu og
rekur upphafið til aðalfundar LÍÚ
á Akureyri 1983.
Snerist hugur í Kanada
„Um haustið kom út þessi svarta
skýrsla um að aflinn verði tekinn
niður í 200 þúsund tonn. Þá kemur
til umræðu, sérstaklega meðal
Austfirðinganna, hvort rétt sé að
stjórna veiðunum með kvótakerfi.“
Þessu segist hann hafa lagst
eindregið gegn, því það væri svo
mikil frelsissvipting. „Menn hefðu
hingað til gengið frjálsir til veiða
og fráleitt væri að setja einhverjar
slíkar hömlur.“ Kristjáni snerist
hins vegar hugur í ferð til Kanada
og Nýfundnalands sem vinur hans
Magnús Gústafsson, þá forstjóri
Hampiðjunnar, bauð honum að
vera með í. Þar í landi voru miklar
ráðagerðir um leiðir til að ná upp
afla þarlendra í milljón tonn. Krist-
ján og Magnús fóru vítt og breitt og
hittu forstjóra. „Og ég kem aftur
heim uppfullur af því að ég verði
að skipta um skoðun. Fyrirséð var
að með óbreyttri stýringu yrðum
við að leggja öðru hverju skipi.“
Heima bjó Kristján svo um
hnúta að hann gæti sótt Fiskiþing
sem fulltrúi Reykjavíkurfélagsins
og kynnti hugmyndir sínar. „Þar
er samþykkt að kanna til hlítar að
setja kvóta á hvert skip og stýra
veiðunum þannig.“ Kristján fór
svo, ásamt Hilmari Bjarnasyni á
Eskifirði og Eyjólfi Ísfeld Eyjólfs-
syni, forstjóra Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, á fund Hall-
dórs Ásgrímssonar, sem þá var
nýtekinn við sem sjávarútvegsráð-
herra, til að kynna honum hug-
myndirnar. „Hann tekur okkur
nú ekki vel í fyrstu en fer svo að
hugsa málið og hefur samband
við mig og fer að hugleiða hvernig
þetta gæti verið innleitt.“ Þarna er
komið fram í desemberbyrjun 1983
og ljóst að Alþingi þyrfti að klára
málið fyrir áramót ef innleiða
ætti breytingarnar fyrir árið 1984.
„Halldór setti upp samráðsnefnd
sem Jón Sigurðsson, þá forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, fór fyrir og
mér fannst mjög gott að vinna
með alla tíð, en að nefndinni áttu
líka aðild sjómannasamtökin, fisk-
vinnslan og LÍÚ.“
Síðan var breytingin samþykkt
á Alþingi með góðum meirihluta,
en til eins árs. „Það var nú það
sem menn keyptu, að þetta væri
tilraun í eitt ár.“ Kristján segir
andstöðuna hafa verið mesta hjá
Alþýðubandalaginu, en flestum
hafi verið ljóst að þetta gæti ekki
gerst öðruvísi. „Gerð var sátt um
val á milli sóknardaga og kvóta
á skip, en þó takmarkað við að
enginn mætti veiða meira en 70
prósent af því sem hann hefði veitt
áður. Svo var opið með grálúðuna,
þar sem Vestfirðingar héldu sig við
sóknarmark því þeir voru búnir
að byggja upp mjög góða reynslu
í veiðum á henni. En með það að
kerfið opnaðist fóru aðrar útgerð-
ir að stórauka sínar veiðar, sem
þýddi að kvóti Vestfirðinganna
minnkaði ár frá ári.“
Kristján var 32 ára þegar hann var nokkuð óvænt og með afar skömmum aðdraganda kosinn formaður Líú á aðalfundi samtakanna í Vestmannaeyjum árið 1970.
Í breiðafirði sögðu menn
að þeir ættu að fá meiru
úthlutað af því að þessi
ár hefði sjórinn verið
óvenjukaldur og þess
vegna fiskast minna. Og
svona voru viðbárurnar
allt í kringum landið, allir
með einhverjar sérstakar
skýringar á sínum högum.
Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn