Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 2022, Blaðsíða 34

Sjómannadagsblaðið - 2022, Blaðsíða 34
34 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2 ekki bara nokkrar sjókonur, eða nokkra tugi sjókvenna, heldur hef ég nú komið upp gagnabanka yfir fleiri hundruð konur sem sóttu sjó frá Íslandi á sautjándu og átjándu öld.“ Læsi þjóðarinnar bjó til heimildir Þetta segir Margaret einung- is hafa verið hægt fyrir þá sök hvað íslensk þjóð var vel læs og skrifandi. Bændur hafi til dæmis sumir hverjir tekið viðtöl við fólk sem séu ómetanlegar heimildir, hvort sem það er í formi bréfa- skrifta eða dagbókarskrifa. „Allir skrifuðu hjá sér hluti og þó að þetta hafi að stærstum hluta verið karlar skrifuðu þeir líka um athafnir kvenna ef svo bar undir. Ég veit ekki um neinn stað annan í heiminum þar sem við- líka finnst, því á Íslandi var þessi mikla útbreiðsla á læsi og skrift og meðvitund um mikilvægi sagnaarfsins.“ Og af því að þessar heimildir all- ar eru til segir Margaret hafa verið hægt að stuðla að endurskoðun sögunnar, frá því sem fólk taldi hafa verið yfir í hlutina eins og þeir sannarlega voru. „Það eru líka heimildir frá konum þar sem þær lýsa því með eigin orðum hvernig var að sækja sjóinn.“ Hún segir nokkuð mismunandi eftir lands- hlutum hversu ríkir þeir séu af heimildum og því erfitt að alhæfa á landsvísu um hlutfall þátttöku kvenna í sjósókn. Mikið hafi þó verið skráð á vesturhluta landsins og af þeim heimildum megi ráða að þriðjungur sjómanna hafi í eina tíð verið konur. „Ef ekki meira.“ Þá segir Margaret líka að finna heimildir í Íslendingasögunum um sjósókn kvenna. „Ef horft er eftir þeim.“ Datt full af baki Eitt dæmi sem Margaret rakti á fyrirlestrinum er Halldóra formað- ur, sem gerði út á Breiðafirði um miðja átjándu öld. „Hún var vel þekkt og keppti líka í sjósókn við tvo bræður sína á tíæringi sínum, en hún var aðeins með konur í áhöfn, aldrei karla.“ Til er málverk sem sýnir Hall- dóru sækja sjóinn, en Margaret benti á að ákveðin ónákvæmni væri í verkinu, því á myndinni mætti sjá karla í bát hennar. Hall- dóra hefði líka einatt haft betur í aflabragðakeppninni við bræður sína og þannig átt sinn þátt í að gera þá sterkefnaða, því aflinn fór allur í eitt púkk hjá þeim. Margaret sagðist meðvituð um að hún hefði rétt dansað á yfir- borði sögunnar í rannsóknum sín- um, enda útlendingur að stunda rannsóknir á Íslandi. „Og ég er viss um að ef fólk hér kafar dýpra er meira að finna um Halldóru.“ Tilviljanir hafa einnig ráðið því hvort vitað er um íslenskar sjókon- ur. Þannig segir Margaret að eina ástæða þess að heimildir séu um Þórunni formann, sem í 30 ár gerði út frá Ólafsvík, sé að hún hafi í bæjarferð einni keypt þó nokkrar flöskur af brennivíni og gerst ölv- uð mjög á heimleiðinni. „Hún datt af baki í fjörunni og lá þar meðan flæddi að henni. Fólk bar að og fór að huga að henni og þá sagði hún: Guði sé lof að Jónsi er ólæs. Maðurinn hennar hét Jón, en hún kallaði hann Jónsa. Svo bætti hún við: Það má enginn frétta af þessu, ekki einu sinni guð.“ Um þessa konu segir Margaret að annars sé lítið vit- að, utan að hún hafi verið ölkær úr hófi. „En ég er viss um að það er meira um hana að finna. Og hún var formaður í 30 ár, lengur en Þuríður.“ Sögurnar segir hún að séu mik- ið fleiri, svo sem úr verbúðum á borð við Dritvík. Konur hafi sótt í að vinna á slíkum stöðum sam- kvæmt heimildum frá átjándu og nítjándu öld. „Konur sóttu í þessi störf því þarna sluppu þær burt af bæjunum og úr sveitinni.“ Þuríður er frægust Margaret segir að efniviðurinn sé mikill og fleiri hundruð konur undir sem fjalla mætti um. „Og ég fjalla einungis um brot þeirra í bók minni. En það var Þuríð- ur formaður sem var kveikjan að áhuga mínum og hún er lang- frægust þessara kvenna.“ Vegna þessa hafi Margaret ráðist í frekari rannsóknir á Þuríði sem nú bera ávöxt í væntanlegri bók hennar, Kona, skipstjóri, uppreisnarmaður (á ensku: Woman, Captain, Rebel). Launamunur skýrist af ólíkum launum í landi og á sjó n „Við í ráðuneytinu höfum haft mikinn hug á því að reyna að jafna stöðu kynja á sem flestum sviðum,“ sagði Ásta Þorleifsdóttir, formaður Siglinga- ráðs og verkefnastjóri verkefnisins Konur og siglingar hjá Innviðaráðuneytinu, í kynningu sinni fyrir fyrirlestur Margaret Willson sem fram fór í Sjávarklasan- um í lok mars. Hún áréttaði um leið að með því væri ekki sagt að steypa ætti alla í sama mót eða að allir ættu að vinna sömu störf, heldur ætti að vera til staðar möguleikinn á vali um sömu störf. Konur eru eitt prósent „í rannsóknum okkar hefur komið fram að hvergi er meiri munur á kynjum en í sjósókn, í störfum á sjó. Þegar við fáum opinberar tölur virðist staðan hafa skánað, en það er vegna þess hve margar konur eru í störfum í landi sem tengjast sjávarútvegi og sjósókn.“ Ásta benti á að konur væru rétt um eitt prósent þeirra sem lokið hefðu skipstjórnarnámi og hlutfallið væri enn lægra þegar horft væri til vélstjóra. Ásta segir misjafna stöðu kynjanna endurspeglast víða. Hún hafi til að mynda skoðað notkun kynjanna á innanlandsflugi. Karlar hafi verið fleiri í morgun- og síðdegisflugi, en konur fremur flogið með vélum síðar um daginn eða seinna á kvöldin. „Ástæðan er sú að afsláttarflugferðirnar eru á þessum tíma.“ Þarna telur hún að speglist líka launamunur kynjanna, sem sé hvergi meiri en í sjávarútvegi. „Þar sem verst er eru konur með þriðjung af heildar- launum karla.“ Skýringin sé munurinn á því að starfa í landvinnslu eða á sjó. Konur eru eitt prósent „Við reynum að vekja athygli á þessu,“ sagði Ásta og kvað reynt að heimsækja skóla og vekja athygli stúlkna á því að á sjó væru góðir tekjumöguleikar. „Þá kemur kannski spurningin um það hvort hefð sé fyrir því að konur sæki sjó og það er þá sem frábærar konur eins og Margaret koma og hjálpa okkur með því að segja sannleikann um fortíð íslenskra sjókvenna.“ Þar séu víða fordæmi og allt aftur til landnámsins, til dæmis hafi Þuríður sundafyllir, sem settist að á Bolungarvík, verið fyrsta kvótadrottning landsins og selt aðgang að fiskveiði innan strandsvæða sinna. Og ef farið sé nógu langt aftur inn á íslendingabók séu þar nöfn á borð við Ólöfu ríku og Helgu ríku, konur sem hafi verið mjög stórtækar í útflutningi á fiski. Ásta segir rannsóknarefni af hverju konur hafi horfið úr sjáv- arútvegi hér á landi og séu fyrst að snúa aftur núna síðustu ár, en til þessa sé Margaret Willson sú sem mestar rannsókn- ir hafi stundað á þessu. Eftir hana liggur bókin Seawomen of Iceland, sem Ásta segir að gæti heitið Sjókonur á íslandi þegar hún verði loks þýdd á íslensku, en einnig sé vænt- anleg ný bók hennar um Þuríði formann. Segir Ásta að í bókinni sé að finna margvíslegar upplýsingar um Þur- íði sem ekki hafi komið fram áður. – óká ásta Þorleifsdóttir, sérfræðingur í innviðaráðuneytinu. Bókin kemur út í janúarbyrjun á næsta ári en gestir fyrirlestursins á Granda voru þeir fyrstu sem fengu að sjá kápumynd bókarinnar. Hana er nú hægt að forpanta í erlendum vefverslunum á borð við Amazon og Barnes & Noble. „En eftir því sem ég kafaði dýpra dáðist ég æ meira að Þuríði. Og svo eru til svo mikil gögn um hana, bréf, hennar eigin bréf, dómsskjöl og pappírar sem ekki hafa verið birtir áður. Fyrir það fyrsta var hún frábær formaður og svo lét hún sig réttindi kvenna varða, barðist fyrir þær og sótti jafnvel fyrir dómi mál kvenna sem orðið höfðu fyrir heim- ilisofbeldi.“ Til eru frægar sögur af Þuríði, svo sem í tengslum við Kambsránið, sem hún átti þátt í að upplýsa, en Margaret nefnir að í tengslum við það mál hafi kviknað sagan um að hún hafi þurft að fá sérstakt leyfi til að ganga í buxum. „Hið rétta er hins vegar að það þurfti ekkert sér- stakt leyfi,“ sagði hún. Sýslumaður- inn á þeim tíma notaði þetta til að knýja hana til að aðstoða við lausn málsins. Þetta atriði hafi verið rannsakað sérstaklega í samvinnu við íslenska fræðimenn og hvergi finnist dæmi um að konur hafi þurft sérstakt leyfi til að ganga í buxum. „Í Laxdælasögu segir frá ákvæði um að klæðskipti, hvort sem var karla eða kvenna, væru skilnað- arsök og síðar voru sett lög um að hægt væri að dæma hvort heldur sem er karla eða konur til útlegðar fyrir klæðskipti, en þau lög voru af- numin 1280.“ Þá segir Margaret líka að Þuríður hafi skilið eftir sig skrif þar sem fram kom að sýslumað- urinn vildi ekki viðurkenna þátt hennar í að Kambsránið upplýstist. „En þetta vitum við aðeins út frá öðr- um heimildum.“ Breyttir tímar um aldamót Framan af þótti sjálfsagt að allir tækju til hendinni við hvers konar störf, með það að markmiði hrein- lega að lifa af, segir Margaret. „En seint á nítjándu öld varð breyting í íslensku samfélagi hvað varðaði stöðu kvenna. Þá tók sú skoðun að ná yfirhöndinni að hlutverk Fyrirlestur margaret Willson var vel sóttur, en að viðburðinum stóðu Félag kvenna í sjávarútvegi, innviðaráðuneytið og Sjávarklasinn. Mynd/ókÁ nýjasta bók margaret Willson er væntanleg snemma í janúar á næsta ári. Hún er um Þuríði formann, fræg- asta kvenkyns skipstjóra íslendinga og þá sem upplýsti um eitt frægasta rán sögunnar, Kambsránið. Sú tilfinning að sjórinn sé og hafi verið yfirráðasvæði karla endurspeglar það sem við höldum, mun fremur en raunveruleikann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.