Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 2022, Blaðsíða 16

Sjómannadagsblaðið - 2022, Blaðsíða 16
16 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2 Ö ll er þessi saga æsileg, flókin og marghliða en grunnurinn, meginþráður- inn, er sá að við Íslendingar vild- um skiljanlega tryggja full yfirráð okkar yfir auðlindum hafsins um- hverfis Ísland en Bretar voru ekki á þeim buxunum að samþykkja það og ekki heldur Vestur-Þjóð- verjar, sem sóttu hér líka á þessi mið. Einhvers konar átök voru því nánast óumflýjanleg,“ segir Guðni Th. Jóhannesson um væntanlega bók sína sem kemur út 1. septem- ber næstkomandi, í tilefni af því að þá eru 50 ár liðin frá því að lögsaga Íslands var færð í 50 mílur. Ritun bókarinnar á sér nokkurn aðdraganda. „Þegar ég var í dokt- orsnámi á Englandi undir lok síðustu aldar og í byrjun þessarar tókust samningar við ritnefnd um sögu landhelgismálsins um að ég skrifaði þá sögu með tíð og tíma,“ segir Guðni. „Árið 2006 setti ég saman lítið rit, Þorskastríðin þrjú, og svo var alltaf hugmyndin að ég segði þessa sögu í ítarlegra máli.“ Skriður komst á söguritunina árið 2013 þegar Guðni fékk stöðu við Háskóla Íslands og var hann í miðjum klíðum við verkið þegar örlögin tóku í taumana árið 2016 og hann varð að leggja til hliðar öll bókaskrif, enda kominn í hlutverk þjóðhöfðingja. „En í heimsfaraldr- inum fann ég stund milli stríða og tók upp þráðinn og út er að koma hjá Sögufélagi bók mín um sögu landhelgismálsins frá árinu 1961, þegar átökunum um útfærslu landhelginnar í 12 mílur lauk, og til 1971 þegar ný ríkisstjórn komst til valda á Íslandi og lýsti því yfir að fiskveiðilögsagan yrði færð út í 50 sjómílur, 1. september 1972.“ Um leið áréttar Guðni að hann hafi vitanlega haft nægu að sinna í heimsfaraldrinum, líkt og öllum stundum í embætti forseta, en um leið hafi honum verið hollt að finna stund hér og þar til að hverfa frá ys og þys samtímans og sökkva sér ofan í fyrri hugðarefni. „Það veitti ákveðna sálarró sem ég kunni afar vel að meta. Ég er viss um að fólk í ábyrgðar- og áhrifastöðum hefur gott af því að hverfa um stund frá amstri dagsins, hvort sem það er til að skella sér á skíði, leika á gítar eða skrifa bók um þorskastríðin,“ segir hann kankvís. Fetar gullinn meðalveg Bókin fjallar um aðdraganda útfærslunnar í 50 sjómílur þegar annað þorskastríðið hófst. Guðni segir Breta þá reyndar ekki strax hafa sent verndarskip á miðin og raunar vonað í lengstu lög að þess þyrfti ekki. „En raunin varð sú að átök blossuðu upp á miðunum og þessum átökum lauk ekki fyrr en haustið 1973 þegar gert var bráða- birgðasamkomulag um réttindi Breta innan 50 mílnanna.“ Guðni segir að við ritun bók- arinnar hafi hann leitast við að feta hinn gullna meðalveg sem sagnfræðingar flestir vilji helst rata. „Þá horfum við til þess að virða í hvívetna fræðileg vinnubrögð, vitna í heimildir og styðja mál okk- ar rökum, en reynum um leið að segja frá á þann máta að lesandinn leggi bókina ekki frá sér á fyrstu síðunum.“ Í þeirri viðleitni hafi hann líka notið aðstoðar einvala- liðs, svo sem Margrétar Tryggva- dóttur myndaritstjóra, sem séð hafi til þess að bókin sé líka ríkulega myndskreytt. Í sögunni segir Guðni líka að séu þættir sem óneitanlega séu efnivið- ur í afskaplega spennandi frásögn. Í bókinni sé til dæmis ítarleg frá- sögn af eltingaleik við Aberdeen- togarann Milwood árið 1963 sem hafi verið æsilegur í alla staði. Eins sé í henni að finna frásögn af töku togarans Brands frá Grimsby árið 1967 og flótta hans frá Reykjavík. „Þá ákvað skipstjórinn að hverfa úr höfn í skjóli nætur og freista þess að halda alla leið til Englands með tvo íslenska lögregluþjóna um borð og var það fáránlegt feigðarflan frá upphafi, en lýsti ákveðinni ör- væntingu.“ Um leið bætir Guðni því við að saga þorskastríðanna gerist ekki bara á hafi úti. „Á vettvangi stjórnmálanna er aðdragandinn að útfærslunni í 50 mílur mjög spennandi á sinn hátt því á þessum tíma var alls ekki um það eining á Íslandi að stækka lögsöguna.“ Deilur hafi verið um málið milli ríkisstjórnarflokkanna sem tóku við 1971, sem voru Framsóknar- flokkur, Alþýðubandalag og Sam- tök frjálslyndra og vinstri manna. „Innan þessarar stjórnar var hver höndin upp á móti annarri. Síðan var stjórnarandstaðan með Alþýð- uflokk og Sjálfstæðisflokk, þar sem leiðtogar vildu fara mun hægar í sakirnar, leita sátta og málamiðl- ana, bíða um stund og sjá hvernig þróun mála yrði á alþjóðavett- vangi.“ Höfðum ákveðinn meðbyr Guðni segir skipta miklu máli og ekki mega gleymast þegar rætt er um útfærslu lögsögunnar að Ísland hafi á þessum tíma notið mjög þró- unar á alþjóðavettvangi. „Hafréttur í haust, þegar 50 ár eru liðin frá því að fiskveiðilögsaga íslands var færð í 50 mílur, kemur út hjá Sögufélagi fyrsta bókin af þremur í ritröð guðna Th. Jóhannessonar, sagnfræðings og forseta ís- lands, um þorskastríðin. guðni segir mikilvægt að segja söguna eins og hún var, ekki aðeins sem helgisögu um samstöðu og forystustarf þjóðar í baráttunni við ofríki. íslendingar nutu alþjóðlegr- ar þróunar á sviði hafréttar og voru síður en svo einhuga um skrefin sem tekin voru í baráttunni við Breta og Vestur-Þjóðverja um útfærslu landhelginnar. Átök voru nánast óumflýjanleg guðni Th. Jóhannesson, forseti íslands, gat í heimsfaraldri COVid-19 notað lausar stundir til að halda áfram ritun sögu landhelgisdeilunnar. á 50 ára afmæli færslu lögsögu íslands í 50 mílur kemur út eftir hann ný bók þar sem sú saga er reifuð. Mynd/Anton Brink HAnsen Ég er viss um að fólk í ábyrgðar- og áhrifastöðum hefur gott af því að hverfa um stund frá amstri dagsins, hvort sem það er til að skella sér á skíði, leika á gítar eða skrifa bók um þorskastríðin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.