Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 2022, Side 22

Sjómannadagsblaðið - 2022, Side 22
22 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2 Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn „Þetta er allt svo stórt“ S kipstjóri Dettifoss, stærsta skipsins í sögu íslenska kaupskipaflotans, segir það besta skip sem hann hafi nokkurn tímann siglt. Ekki aðeins sé það öflugt og með mikla flutningsgetu heldur fari það „vel með mann“ þegar vont er í sjóinn, sem hafi skipt sköpum undan Grænlandsströndum í aftakaveðri síðasta vetrar. Vélstjórinn segir að þrátt fyrir að góð reynsla sé komin á Dettifoss sé áhöfnin enn að læra á skipið, sem er gríðarlega vel tækjum búið. Það sé ekkert grín að bregðast við óvæntum uppákomum í ferlíkinu sem Dettifoss er, því „þetta er allt svo stórt“. Sjómanna- dagsblaðið fékk að kíkja um borð og hér til hliðar má sjá afrakstur heimsóknarinnar með augum Hreins Magnússonar, ljósmyndara blaðsins. -sój dettifoss er engin smásmíði. Skipið er um 180 metra langt, 31 metra breitt, getur borið 2.140 gáma og siglir að jafnaði á um 18 hnúta hraða. dettifoss er hár á síðuna og því þarf mikið til að sjór fari upp á dekk. Þá er skipið jafn- framt með öflugar hliðarskrúfur, sem koma sér vel í hvassviðri. Mynd/eiMskip Til að knýja skip eins og dettifoss áfram þarf gríðaröflugar vélar. aðalvél skipsins er rúmlega 23 þúsund hestöfl, keyrir að jafnaði á rúmlega 80 snúningum og brennir allt að 60 tonnum af olíu á sólarhring. Þá eru jafnframt fjórar ljósavélar í dettifossi og þar af eru þrjár 1.880 kílóvött. Í skipinu er jafnframt margvíslegur aukabúnaður sem gerir það öruggara og umhverfisvænna. „Við erum endalaust að læra á skipið,“ segir Gunnar Stein- grímsson vélstjóri. Þrátt fyrir byrjunarörðugleika, eins og venjan er með ný skip, hefur aldrei komið upp „alvarlegt vesen“ á dettifossi að sögn Gunnars. Slíkar uppákomur væru heldur ekkert grín þegar unnið er með jafn öflugar vélar. „Þetta er allt svo stórt.“ Áhöfnin á dettifossi hefur komið sér upp vel útbúnum líkamsræktarsal þar sem hún getur „rifið í lóðin“ á milli anna. Það eru þó ekki bara lóðin sem eru á fleygi- ferð í salnum, heldur losnaði hlaupabrettið einu sinni í aftakaveðri. Enginn slasaðist, ekkert skemmdist og brettið hefur verið rækilega fest. MD Vélar óskar útgerð Samherja og áhöfn til hamingju með nýtt og glæsilegt skip, Vilhelm Þorsteinsson EA 11 VAGNHÖFÐA 12, REYKJAVÍK | S. 567 2800 | mdvelar@mdvelar.is | mdvelar.is    

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.