Sjómannadagsblaðið - 2022, Page 33
A lmennt er litið svo á að
sjórinn sé yfirráðasvæði
karlmanna,“ segir Margaret
Willson, mannfræðingur og að-
stoðarprófessor við Washington-
háskóla í Bandaríkjunum. Um leið
kom fram á fyrirlestri hennar í
Sjávarklasanum 31. mars sl. að svo
hefði alls ekki alltaf verið. Margar-
et hefur gert ítarlegar rannsóknir
á sjósókn íslenskra kvenna allt frá
landnámi og fjallaði um þær og
nýja bók sína um Þuríði formann á
viðburðinum, sem nefndist „Saga
íslenskra sjókvenna“. Að sögust-
undinni stóðu Félag kvenna í sjáv-
arútvegi (KIS), Innviðaráðuneytið
og Sjávarklasinn.
Margaret hóf mál sitt á því að
benda á hversu merkilegt það væri,
þegar skoðuð væri saga kvenna á
sjó, hvernig við mótuðum þessa
sögu sjálf. „Við búum til söguna
sem við speglum nútímann í. Sú
tilfinning að sjórinn sé og hafi
verið yfirráðasvæði karla endur-
speglar það sem við höldum, mun
fremur en raunveruleikann.“ Þessi
ranghugmynd kæmi fram víða,
svo sem í málverkum og annarri
list, þar sem mestmegnis mætti sjá
karla og baráttu þeirra við Ægi.
Íslandsheimsókn kveikti neista
Með rannsóknum sínum hefur
Margaret hins vegar leitt annað í
ljós, því sjómennska kvenna þótti
sjálfsögð fram á miðja nítjándu
öld. Rannsóknirnar segir hún að
megi rekja til Íslandsheimsóknar
fyrir allmörgum árum. „Sú heim-
sókn breytti lífi mínu,“ segir hún,
en á þeim tíma var hún við mann-
fræðirannsóknir í Brasilíu. „Ég átti
íslenska vinkonu úti í Seattle sem
bauð mér hingað til Íslands.“
Þegar hún heimsótti Þuríðar-
búð á Stokkseyri rann upp fyrir
Margaret að skipstjórinn sem verið
var að fræða hana um hefði verið
kona. Henni fannst það merki-
legt og tengdi við heimaslóðir
við Kyrrahafið í norðvesturhluta
Bandaríkjanna, þar sem fjölskyldur
stunduðu sjóinn og hún hafði sem
ung kona líka starfað við sjávar-
útveg. „Eftir nokkurn tíma, árið
2008, tókst mér að verða mér úti um
styrk til að snúa aftur til Íslands
og kynna mér sögu sjókvenna hér.“
Niðurstöðurnar hefðu svo aftur
komið mjög á óvart. „Við fundum
Notar heimildir til að rétta af
sýn nútímafólks á sjósókn kvenna
Væntanleg er á ensku glæný bók eftir margaret Willson um Þuríði
formann. Hún kynnti nýverið rannsóknir sínar á sjósókn íslenskra
kvenna á fyrirlestri sem fram fór í Sjávarklasanum við granda-
garð í reykjavík. gestir hennar voru fyrstir til að berja augum kápu
væntanlegrar bókar. Fyrri bók hennar um sjósókn íslenskra kvenna
hefur verið þýdd á fjölda tungumála en ekki enn á íslensku.
margaret Willson
er áfram um að
bækur hennar,
með rannsóknum
á íslenskum sjó-
konum og vænt-
anleg bók um
Þuríði formann,
fáist þýddar á
íslensku, en fyrri
bók hennar hef-
ur verið þýdd á
fjölda tungumála
og komið út um
allan heim.
M ynd /ókÁ
33 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2
hfj.is/sjomannadagur
Sjá dagskrá:
Við fögnum Sjómannadegi með hátíðarhöldum á höfninni sem Hafnarfjörður er
kenndur við. Skemmtidagskrá við Flensborgarhöfn, fiskasýning á Háabakka,
sögusýning á Strandstíg, handverk og hönnun, vinalegir veitingastaðir og kósí
kaffihús í hjarta Hafnarfjarðar. Gleðilegan Sjómannadag!
Sjómannadagurinn
12. júní í Hafnarfirði