Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 2022, Blaðsíða 36

Sjómannadagsblaðið - 2022, Blaðsíða 36
36 S J ó m a n n a d a G S b L a ð i ð j ú n í 2 0 2 2 kvenna væri á heimilinu.“ Í text- um frá þessum tíma endurspeglist þetta í skrifum um sjókonur, þar sem heimilisverkin eru ætíð nefnd í sömu andrá og önnur verk, að kona hafi verið jafndugleg á sjó og hún var við prjónaskapinn, og þar fram eftir götum. „Þegar kemur fram á tuttugustu öld koma setningar á borð að kona hafi litið jafnvel út í kjól og í sjó- klæðum, hún hafi ekki verið nein skessa. Á þessum tíma fer konum til sjós líka að fækka og sú vinna er ekki talin henta þeim.“ Konur hafi sótt sjó á smærri bátum að einhverju marki, en svo þegar fram komu stærri bátar og vélknúnir hafi orðið meiri skil, segir Margaret. „Svo komu fram togarar og stærri skip og þá gekk þessi breyting alveg í gegn að kon- ur unnu fiskinn í landi en karlar sóttu einir sjóinn. Og þarna kom líka til þessi mikli launamunur.“ Margaret telur líklegt að hefði Þuríður, sem var fædd 1777 og lést 1864, verið fædd hundrað árum síðar, seint á nítjándu öld, hefði hún aldrei sótt sjóinn með þeim hætti sem hún gerði. Ákall um þýðingu Bók Margaret um íslenskar sjó- konur var á síðasta ári þýdd á japönsku en enn er ekki komin ís- lensk þýðing. Þetta telur Margaret bagalegt, því að til þess að verða kveikja frekari og dýpri rann- sókna hér heima þyrfti bókin að vera til á íslensku. Hún nefndi dæmi um hvernig fyrri bók hennar hefði vakið mikla athygli víða um heim, svo sem í Alaska, bæði með- al karla og kvenna. Þangað var henni boðið til fyrirlestrahalds og sagði hún það hafa verið stórkost- lega upplifun og djúpar samræður hefðu kviknað um stöðu kvenna til sjós. Hér á landi hefur Margaret líka farið um og haldið fyrirlestra og minnist hún sérstaklega ferðar um Snæfellsnes, þar sem hún hitti fólk á Arnarstapa, Grundar- firði og Stykkishólmi. „Alls staðar komu fram sögur í umræðum eftir fyrirlesturinn þar sem fólk sagði frá ömmum sínum og langömm- um.“ Í kjölfarið hafi svo átt sér stað frekari rannsóknir hjá hópi á Snæfellsnesi sem Margaret gaf aðgang að eigin gagnabanka um íslenskar sjókonur. „Og þau fóru á Íslendingabók, sem ég hafði ekki aðgang að, og köfuðu enn dýpra, sáu hver var skyldur hverjum og hvaðan konurnar voru og enn meira. Og þetta er það sem ég var að vonast eftir.“ Hugsun Margaret var að rannsóknir hennar yrðu grunnurinn að frekari rannsókn- um. „En þær þola ekki mikla bið, því fólk eldist og hlutir gleym- ast. Samfélagið er að breytast og sjávarþorpin, eins og Stokkseyri, taka breytingum þegar íbúum fjölgar vegna húsnæðisverðs í Reykjavík.“ Eins styðji það leiðina til auk- ins jafnréttis kynjanna að hlutur kvenna sé réttur af í sögunni, seg- ir Margaret. Þó að hér hafi margt unnist í þeim efnum sé enn verk að vinna. Í þekkingu á sögunni felist valdefling kvenna. „Dýpri þekking á fortíð okkar getur hjálp- að okkur að ná meira jafnrétti kynjanna í samtímanum.“ – óká Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á sjómannadaginn Bókin Sjókonur á íslandi kom út árið 2016 og hefur verið þýdd á fjölda tungumála. Svo komu fram togarar og stærri skip og þá gekk þessi breyting alveg í gegn að konur unnu fiskinn í landi en karlar sóttu einir sjóinn. Á síðustu 32 árum hefur Hampiðjan framleitt og selt yfir þúsund Gloríur til útgerða í 28 löndum. 58 s j ó m a n n a d a g s b l a ð i ð j ú n í 2 0 1 7 Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á Sjómannadaginn Eggjabúið og kjúklingabúið Hvammur ehf. að sjómönnum sé gert erfitt að skrá slys. Jónas Þór segir að finna megi dæmi um ofangreint. „Skipstjórn- armenn eru misjafnir eins og þeir eru margir. Þess eru því miður dæmi að menn hafi fengið neitun þegar þeir ætluðu að láta skrá atvik. Gjarnan með þeim rökum að það sé ekki hægt að standa í því að skrá öll tilvik, stór sem smá, sem eiga sér stað um borð. Þetta er þó sem betur fer undantekning og ég held að menn séu alltaf betur að átta sig á því hversu mikilvægt þetta er, líka skipstjórnarmenn. Skrán- ingarnar eru til fyrirmyndar hjá mörgum útgerðum en því miður eru til útgerðir þar sem þessi mál eru ekki í eins góðu lagi.“ Þá minnir Jónas Þór á að skylt sé samkvæmt reglum að skrá öll atvik í skipsdagbók, eigi síðar en í lok vaktar. Þá er einnig skylt sam- kvæmt lögum að tilkynna öll slys til Rannsóknarnefndar sjóslysa og til Sjúkratrygginga Íslands. „Ég hef bent á það áður að það eru kannski um fimm prósent slysa tilkynnt til rannsóknarnefndar- innar. Það er mjög sorgleg staða,“ segir Jónas Þór. „Tilgangur rann- sóknarnefndarinnar er ekki síst sá að safna gögnum og byggja þannig upp mikilvægan grunn sem kann að gera mögulegt að fyr- irbyggja slys síðar meir.“ Jónas Þór minnir á að það séu tryggingarfélögin sem séu bóta- skyld en ekki útgerðinar. Það ætti því ekki að vera feimnismál fyrir sjómenn að tilkynna útgerðinni um slys og óhöpp sem verða um borð. „Þetta er trygging sem bæði sjómenn og útgerð greiða fyrir, útgerðin þó meira.“ Um leið hafi þó heyrst af ástæðum fyrir því að einstaka útgerðir kunni að pirrast yfir svona hlutum. „Ef það verða mörg slys þá hækkar iðgjaldið og einhverjar útgerðir eru með eigináhættu og sjálfsábyrgð. En þetta eru ekki það miklar fjárhæð- ir að þær valdi því að útgerðirnar berjist gegn því að menn nái sínu fram, sem þó kemur fyrir. Um leið og það er búið að skrá slys í skipsdagbók ber útgerðin ábyrgð á því að tilkynna það til rann- sóknarnefndarinnar og til Sjúkra- trygginga Íslands. Þar er víða pottur brotinn því miður. Það þarf að skerpa á þessum atriðum – bæði gagnvart sjómönnum og útgerðum. Ef þetta er í lagi þá er búið að komast fyrir helsta vand- ann.“ -gfv „Þess vegna er mjög mikilvægt að fyrstu skrefin eftir óhapp séu rétt færð til bókar.“ Framtak-Blossi er orðinn umboðsaðili fyrir Volvo penta rafstöðvar og skrúfuvélar á Íslandi Dvergshöfða 27 - 110 Reykjavík www.blossi.is - blossi@blossi.is Sala á Volvo Penta varahlutum og viðgerðarþjónusta 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.