Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 8
in sterlingspundinu síðan haustið 1925. Sósíalistar ærðust. Það sem í þessu frumvarpi felst er grímulaus „þjófnaður úr vasa almenn- ings,“ þrumaði Brynjólfur Bjarnason á Alþingi og Þjóðviljinn var ekki í nein- um vafa um tilgang ríkisstjórnarinnar: „... gengisfellingin var í þeim eina til- gangi gerð að safna fé í tóma sjóði Kveldúlfs og annarra stórútflytjenda og bjarga þannig skuldasúpu þeirri, er þessi fyrirtæki stóðu í við Landsbankann.“3 Og Einar Olgeirsson spurði hvort ein- hver hefði séð með eigin augum að „... togaraeigendur væru að sligast undir tapinu á útgerðinni? Og hann svaraði sjálfur að bragði: „Ég veit ekki betur en að forstjóri stærsta togaraútgerðarfélagsins hér í Reykjavík, Richard Thors, hafi verið að byggja sér eina „villuna“ enn hér í Reykjavík, þótt hann muni hafa átt aðra fyrir, og svo hefir mér verið sagt, að byggð hafi verið yfir þessa sömu bræður „luxusvilla“ á Hjalteyri. Sýnir þetta, hvernig þeir eru að sligast undir út- gerðinni?“4 Það var við þessar aðstæður að FFSÍ ákvað að bera sig upp við Fiskifélag Ís- lands (FÍ). Því ekki að efla Ægi í stað þess að stofna nýtt blað sem yrði jafnvel sett honum til höfuðs að einhverju leyti? En Fiskifélagsmenn voru á varðbergi. Þeim fannst eins og grundvöllurinn væri smám saman að skriðna undan félaginu. Stofnun Farmanna- og fiskimannasam- 3 Alþingistíðindi 1939, B, 171; „Stríðsgróði hjá auðmönnum ATH nafn“, Þjóðviljinn 14. nóvember 1939. 4 Alþingistíðindi 1939, B, 111. bandsins hafði síður en svo róað þá. „Þó er eitt félag, sem ég tel eiga sáralítið erindi á vettvang fiskveiðimálanna. Það er svonefnt Fiskimanna- og farmanna- samband [svo]“, skrifaði Kristján Jóns- son frá Garðsstöðum í Ægi sumarið 1939 en hann var erindreki Fiskifélagsins í Vestfirðingafjórðungi og málsmetandi innan samtakanna. Og nú vildu þessi sömu samtök fá ítök í Ægi. Hugmynd farmannanna var að stækka Ægi um 24 síður – sem FFSÍ fengi til umráða – og sameina hann Sjó- manninum sem var þá nýlega byrjaður að koma út á vegum Stýrimannafélags Ís- lands. Síðan áttu til dæmis skipstjórnar- menn, vélstjórar og loftskeytamenn að fá tiltekinn blaðsíðufjölda, hver hópur, undir sín mál. Það kom líka til greina af hálfu FFSÍ að kaupa tímaritið. Fiskifélagsmenn voru hikandi. Sjáum til, sögðu þeir, sjáum til. Svo var látið reka á reiðanum uns FFSÍ gafst upp á því að bíða og stofnaði Víkinginn. Draumur- inn um eitt sjómannablað lifði samt áfram. Ýfi ngar Það er reyndar ekki fyllilega réttmætt að segja Fiskifélagið hafa skotið sér und- an að taka afstöðu til uppástungu FFSÍ um eitt blað handa íslenskri sjómanna- stétt. Tillagan var fyrst borin upp á Fiski- þingi 1938 og var þá samþykkt einum rómi að heimila stjórn Fiskifélagsins að ræða málin við FFSÍ og að ganga til bráðabirgðasamninga við félagið, „ef til- tækt þykir“, um blaðaútgáfuna. En það var pirringur í loftinu og orð Kristjáns, erindreka Fiskifélagsins, um að FFSÍ ætti ekkert að skipta sér af fiskimönnum og útvegsmönnum voru sem olía á eld. Hallgrímur Jónsson, formaður Vélstjóra- félags Íslands, skrifaði í Víkinginn og vandaði Kristjáni ekki kveðjurnar. „Mér detta í hug harðar umræður, sem urðu einu sinni við matborðið, er ég var á togara. Héldu hásetarnir því fram, að við vélstjórarnir værum alls ekki sjó- menn, og rökstuddu það með því, að við gengjum ekki í sjómannastökkum, jafn- vel ættum þá ekki til. Svipaðar eru röksemdir erindrekans og annarra, sem ekki eru nógu víðsýnir til þess að sjá, að eigi merki sjó- mannastéttarinnar ekki að falla í gras, þá þarf hún að hefja sig yfir hreppapólitík starfs- flokkanna og starfa sameinuð að einu marki.“ Forseti Fiskifélagsins, Kristján Bergsson, varð líka fyrir hvössum skeyt- um á síðum Víkings vegna erindis er hann flutti í útvarpi haustið 1939. Maðurinn ætlaði víst að fjalla um hag sjó- manna, sagði Á. S., en það var nú eitthvað ann- að. Hann fór með stað- lausa stafi og firrur. „Mikið á maðurinn bágt“, var lokaniður- staða A. S. Um þessa mundir reru Fiskifélagsmenn að því öllum árum að ná undir sig Fiskimálanefnd og Fiskimálasjóði sem sætti harðri gagnrýni í Vík- Halló! Halló! Nú, þegar síldveiðitíminn er að hefjast, vil ég í snarheitum nota tækifærið, og skjóta fram þeirri beiðni til mikils meirihluta þeirra manna, sem með talstöðvar hafa að gera í sumar, að æpa ekki eins ógurlega í þessi tæki, eins og algengt hefir verið, því raunveru- lega heyrist ekkert betur með þeim gauragangi. Styrkur stöðvarinnar eykst ekkert við það, þótt sá, sem í hana talar, öskri af lífs og sálar kröftum. Allt öskur hlýtur óhjákvæmilega að afskræma röddina, einkum þegar hrópað er í viðkvæman hljóðnema, og gera erfiðara um að skilja það, sem sagt er. Til þess að fá sem mest út úr talstöðinni, þurfa menn aðeins að finna út, í hvaða námunda við mikrofoninn talið nýtur sín bezt, og tala svo bara skýrt og rólega, án blóts og formælinga. Loftskeytamaður. (1. tbl. júní 1939) Hefir þú lent í járnbrautarslysi? - Ég held nú það! Einu sinni fór ég í gegnum jarðgöng, og í myrkrinu kyssti ég föðurinn í staðinn fyrir dótturina? (1.-2. tbl janúar 1940) Hér er forsíða Víkings maí 1941) (5. tbl. 1941) 8 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.