Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Page 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Page 12
12 – Sjómannablaðið Víkingur Sjómannablaðið Víkingur skipar sér- stakan sess hjá mér og það eitt að heyra blaðið nefnt færir mig nokkra áratugi aftur í tímann (látum alveg vera hversu marga!). Ég las blaðið reglulega sem krakki en afi minn, Jónas heitinn Sigurðsson, var skólastjóri Stýrimannaskólans og blaðið alltaf nálægt á heimili hans og Pálínu Árnadóttur, ömmu minnar. Í þá daga þurftu börn að hafa ofan af fyrir sér sjálf og ekki boðið upp á afþreyingu í þeim mæli sem nú er. Glanstímarit voru afar fátíð ef frá eru talin ,,dönsku blöðin“. Ég var því alltaf spennt þegar nýtt tölublað af Víkingnum kom út, og þarf vart að taka fram að það var Frívaktin sem hafði mest aðdráttarafl. Stundum lét ég þar við sitja en þó kom fyrir að einstakar greinar gripu auga ungrar stúlku, því blaðið var skemmtilega uppsett og margskonar fróð- leik þar að finna. Það var býsna spennandi að lesa um svaðilfarir jafnt aðmírála sem óbreyttra sjómanna auk þess sem fróðleiksmolar, oft á léttu nótunum, fylltu síð- urnar. Líka þótti mér áhugavert að rýna í auglýsingarnar og öll þau framandi tól og tæki sem þar voru boðin til sölu. Þrátt fyrir þessi léttúðugu áhugamál skynjaði barnshugurinn þó alvöruna og hættuna sem bjó að baki sjómennskunni, enda mjög ríkt í þjóðarsálinni að halda til haga bæði því mikilvæga starfi, sem sjómenn gegna, og því erfiða vinnuumhverfi sem hafið er. Mikil umræða hefur farið fram undanfarið um björgunar- þyrlur Landhelgisgæslunnar. Ég held ég megi fullyrða að sú starfsemi standi velflestum Íslendingum afar nærri og er uppi skýlaus krafa um að hún sé í lagi. Ekki síst krefjast sjómenn þess að öryggis þeirra sé gætt í hvívetna, og er það afar skiljanlegt. Rekstrarstaða Landhelgisgæslunnar er erfið í ljósi bágrar stöðu í ríkisfjármálun- um. Á vegum dómsmálaráðuneytisins og Gæslunnar er unnið að því að finna sem hagkvæmastar leiðir til sparnaðar og hverjum steini velt við. Þótt engir leyndir fjársjóðir finnist má aldrei gefast upp við að finna leiðir til að nýta fjárveitingar sem best og vernda ákveðna kjarnastarfsemi eins og frekast er kostur. Björgunarþyrl- urnar eru einmitt hluti hennar. Hér skal ekki látið staðar numið án þess að minnast á gleðitíðindi. Þegar þessi orð eru rituð er undirrituð nýkomin úr eftirlitsflugi með nýju eftirlitsvél Gæsl- unnar, TF-SIF. Er þetta magnaður tækja- kostur sem getur sinnt bæði eftirliti og leit, auk björgunar að ákveðnu marki. Þetta er mikil viðbót við núverandi getu og eru burðir Landhelgisgæslunnar stórauknir til þess að sinna öryggi sjófarenda og löggæslustörf- um á hafi úti. Er síst vægt til orða tekið þótt talað sé um bylt- ingu í þessu sambandi. Þá hefur hið nýja varðskip Þór nú verið formlega sjósett og tilhlökkunarefni að fá þann glæsilega far- kost í flota Landhelgisgæslunnar á næsta ári. Við þetta bætist, að Landhelgisgæslan hefur á að skipa fagfólki í hverju rúmi, sem leggur sig fram um að skila góðu dagsverki. Að mínu viti gæti blandan ekki orðið betri; góð tæki og afbragðsgott fólk. Ég vil að lokum óska Sjómannablaðinu Víkingi til hamingju með afmælið og vona að ungir jafnt sem aldnir geti notið blað- sins næstu 70 árin, hið minnsta! Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra Kynni mín af Víkingum Ragna Árnadóttir.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.