Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Page 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Page 13
Þegar ég var beðinn um grein í Sjó- mannablaðið Víking í tilefni 70 ára útgáfuafmælis blaðsins, tók ég að íhuga hvað varð þess valdandi að ég var á sjó í 27 ár – ég fór í land eins og sagt er fyrir rúmu ári – og hvað veldur því að margir starfa svo stutt á sjónum sem dæmin sanna? Mesta byltingin Ég var yfirvélstjóri á togurum allan þennan tíma, fyrir utan eina loðnuvertíð. Þetta var mér alltaf mjög gefandi og krefjandi starf, þar sem sífellt var tekist á við að leysa vandamál. Það hjálpaði líka að starfa hjá útgerðum þar sem ýtt var undir að menn gætu staðið sig og þeim var gert kleift að vera skapandi. Það er ekki lítið atriði til að menn endist í svona starfi. Lengst af var ég á tveimur skipum, Sléttanesi ÍS 808 í 8 ár og á Gnúp GK 11 í 17 ár, hjá Þorbirni í Grindavík. Það hefur í sjálfu sér lítið breyst varðandi sjómennskuna sjálfa síðan ég fór í janúar 1981, eftir Vélskól- ann og smiðjutímann, vestur á Þingeyri á togarann Framnes ÍS 708. Fjarvera frá fjölskyldu og vinum er sá hluti starfsins sem reynir mjög á marga en alltof lítið er talað um. Mesta byltingin sem hefur orð- ið á þessum tíma, og sem snýr að áhöfn- inni, felst í því hversu miklu auðveldara er nú en áður að vera í sam- bandi við fjölskyldu og um- heiminn en þessari fjarskipt- abyltingu fylgir líka mikill kostnaður sem vonandi fer lækkandi. Vonandi rætist sá draumur minn sem fyrst að sjómenn á miðunum við landið verði settir inn í hug- takið, allir landsmenn, en fjarskiptalögin tryggja (í orði kveðnu) öllum landsmönnum fjarskipta- þjónustu burtséð frá búsetu - og það á sama verði. Um borð hefur hver og einn sitt hlut- verk svo atvinnutækið virki, þó svo að allir álíti framlag sitt mikilvægara en annarra, þá er það nú þannig að allir eru jafn nauðsynlegir svo að þetta stóra at- vinnutæki, sem skipið er, megi þjóna tilgangi sínum. Vélstjórinn hefur það verkefni að halda öllum tækjum og tólum gangandi og í lagi. Þar reynir á víðfeðma kunnáttu á mörgum sviðum og kröfurnar eru sífellt að aukast með fleiri og fullkomn- ari tækjum og tæknibúnaði. Starfið er mjög fjölbreytt og gefur mikla möguleika á að þróa og vinna að hagræðingu á búnaði skipsins. Hinn mannlegi þáttur Að mínu viti er það mannlegi þáttur- inn sem ræður mestu um hversu lengi menn halda út á sjónum. Það hafa orðið miklar breytingar varðandi það val sem horft er til þegar ákvörðun er tekin um starfsvettvang. Miklar breytingar hafa orðið á þjóð- félaginu og kröfum okkar. Hugmyndafræðin um hið heilbrigða fjölskyldulíf hefur tekið algerum stakkaskiptum síðasta áratug. Nútíma mæli- kvarðar ganga út frá því að báðir aðilar skapi sér starfs- frama á vinnumarkaðnum, barnauppeldið og heimilisstörfin deil- ist jafnt á báða og svo framvegis. Þessi breyting hefur þrýst mörgum til að skipta um starf, þótt þeim hafi líkað sjó- mennskan ágætlega. Óneitanlega spyr maður sjálfan sig þeirrar spurningar hvernig sjómennskan passi inn í þessa nútíma fjölskyldumynd? Illa, er svarið. Að starfa á sjó er orðið í margra aug- um tímabundið neyðarástand. Hvernig getum við breytt þessu þannig að sjó- mennskan breytist á ný í framtíðarstarf? Það fylgir nefnilega þessu viðhorfi leið- inda mórall, menn verða neikvæðir og gleðin ríkir sjaldan. Mannauðurinn Allra seinustu ár hefur þó orðið mikil bylting í að gera þessi störf fjölskyldu- vænni og hefur það frumkvæði verið mikill hvati til að menn horfa enn á ný á Sjómannablaðið Víkingur – 13 Guðmundur Ragnarsson, formaður VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna Hugleiðing eftir 27 ár til sjós Guðmundur Ragnarsson. Ljósmynd: Torben Hestbæk Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra Kynni mín af Víkingum

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.