Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Side 23
Sjómannablaðið Víkingur – 23
undan NA vindstefnu sem ríkt hafði frá
skipstapanum þ.e.a.s. til SV. Síðan voru
flognar línur 90° á hana fram og aftur,
með upphafslínu um fundarstað braks-
ins. Voru hafðar 2 sml. milli lína og þær
lengdar visst eftir því sem fjær dró
upphafslínunni, þannig að leitarsvæðið
varð „trapisulagað“ með toppinn í
upphafslínu leitarinnar. Eftir að við
höfðum innbyrt brakið, sem tók svo-
lítinn tíma, sigldum við svo á hægri ferð
eftir miðlínu trapisunnar.
Þegar ég tók við vaktinni kl. 12:30 var
komið skaplegt veður og vorum við í
reglulegu sambandi við flugvélina sem
komin var nokkuð suður af okkur þótt
hún væri að sikk sakka eftir 20 sml.
löngum fluglínum sem alltaf lengdust.
Ákveðið var að hún myndi leita fram í
myrkur, þannig að þarna var kapphlaup
við tímann því litlar líkur voru taldar á
að eftirlifendur ef einhverjir fyndust
myndu lifa af aðra nótt. Vaktin leið og II.
stýrimaður tók við. Þegar ég leysti hann
af í kvöldmat milli kl. 18:00 og 18:30
hafði ekkert fundist og farið að styttast í
að leit flugvélarinnar yrði hætt vegna
myrkurs. Var hún komin suður fyrir
miðjan Breiðafjörð og sóttist hægt því
hver fluglína var orðin um 11 mín. löng.
Töldum við orðið útilokað að gúmmíbát
hefði getað rekið svona langt á rúmum
sólahring svo að frekar var litið svo á að
leit fram í myrkur væri réttlæting fyrir
samviskuna.
Harmleikur á hafinu
Kl. 18:22 kom skyndilega kall í tal-
stöðina sem gjörbreytti öllu. „Varðskip,
Sigurður Ingi Friðrik, við höfum séð
neyðarblys og gúmmíbát á reki 22 sml. í
241° frá Bjargtöngum og munum hring-
sóla yfir honum þar til hjálp berst frá
sjó“. Kallaði SIF síðan í nærstödd skip
og fékk svar frá breska togaranum Loch
Milford, sem sagðist hífa strax og halda á
staðinn. Áætlaði hann að vera þar eftir
u.þ.b. 2 klst.
Það eru ekki bara eldklárir fagmenn
heldur líka afburða listamenn sem halda
stöðugri sýn á agnarsmáum gúmmíbát á
kolsvörtu hafi þegar náttmyrkur er skoll-
ið á, á sama tíma og þeir þeytast sjálfir á
120 hnúta hraða í um 200 feta hæð,
hring eftir hring í tvær klukkustundir
samfleytt. Þrátt fyrir að varpað sé út ljós-
baujum og reykbombum er þetta hámark
einbeitingarhæfninnar. Vélin hoppar og
skekst til í ókyrrðinni yfir haffletinum,
stundum getur vængurinn farið fyrir
útsýnið að gúmmíbátnum, passa þarf
flughæðina, hraðann, stefnurnar og að
allar græjur vinni rétt. Til að bæta gráu
ofan á svart er radarinn ónothæfur við
svona aðstæður því vélin er aldrei bein í
loftinu. Loran C eða GPS þar sem læsa
má inn stað sem „waypoint“ og ýta svo á
takka sem segir „go to“ var ekki til.
Þegar SIF tilkynnti fundinn á gúmmí-
bátnum var sett á fulla ferð á Óðni og
stefnt beint á staðinn. En eftir að í ljós
kom að Loch Milford yrði fyrri til kom
okkur saman um að Loch Milford inn-
byrti mennina og kæmi svo undir Látra-
bjarg þar sem við tækjum við þeim. Loch
Milford kom svo að gúmmíbátnum kl.
20:08 og innbyrti tvo menn. Þá var ljóst
að fjórir höfðu farist. Hittum við svo
Loch Milford undir Látrabjargi og kl. um
23:30 fór ég á gúmmíbát að sækja skip-
brotsmennina og lífbát þeirra sem togar-
inn hafði innbyrt líka.
Þegar við aðfararnótt mánudagsins 12.
október komum til Flateyrar með skip-
brotsmennina, gúmmíbátinn og brakið
úr Mumma, voru tilfinningar blendnar
milli fagnaðar og sorgar. Þótt það yljaði
að sjá fögnuð þeirra sem tóku á móti
skipbrotsmönnunum sem heimtir voru
úr helju þá fylltist maður samkennd með
þeim sem horfðu hnípnir á brakið sem
sett hafði verið á bryggjuna og áttu ekki
von í endurkomu sinna. Að auki var
ekki heldur vitað um afdrif fjögurra
manna áhafnar Snæfellsins sem einnig
var frá Flateyri.
Þetta slys varð svo til þess að lagst var
í ýtarlegar rannsóknir á reki gúmmíbáta
því þarna sást að bátinn með mennina
tvo hafði rekið 64 sml. á þeim 29 tímum
sem liðu frá slysinu og þar til þeir fund-
ust, eða með rúml. 2 sml. hraða á klst.
Þótti þetta með ólíkindum löng vega-
lengd.
Við komum aftur til Ísafjarðar mánu-
daginn 12. okt. og voru sérfræðingarnir
þá komnir að sunnan og réttarhöldum
yfir Prince Philip haldið áfram. Úrskurð-
Guðjón er við mótorinn.