Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 23
Sjómannablaðið Víkingur – 23 undan NA vindstefnu sem ríkt hafði frá skipstapanum þ.e.a.s. til SV. Síðan voru flognar línur 90° á hana fram og aftur, með upphafslínu um fundarstað braks- ins. Voru hafðar 2 sml. milli lína og þær lengdar visst eftir því sem fjær dró upphafslínunni, þannig að leitarsvæðið varð „trapisulagað“ með toppinn í upphafslínu leitarinnar. Eftir að við höfðum innbyrt brakið, sem tók svo- lítinn tíma, sigldum við svo á hægri ferð eftir miðlínu trapisunnar. Þegar ég tók við vaktinni kl. 12:30 var komið skaplegt veður og vorum við í reglulegu sambandi við flugvélina sem komin var nokkuð suður af okkur þótt hún væri að sikk sakka eftir 20 sml. löngum fluglínum sem alltaf lengdust. Ákveðið var að hún myndi leita fram í myrkur, þannig að þarna var kapphlaup við tímann því litlar líkur voru taldar á að eftirlifendur ef einhverjir fyndust myndu lifa af aðra nótt. Vaktin leið og II. stýrimaður tók við. Þegar ég leysti hann af í kvöldmat milli kl. 18:00 og 18:30 hafði ekkert fundist og farið að styttast í að leit flugvélarinnar yrði hætt vegna myrkurs. Var hún komin suður fyrir miðjan Breiðafjörð og sóttist hægt því hver fluglína var orðin um 11 mín. löng. Töldum við orðið útilokað að gúmmíbát hefði getað rekið svona langt á rúmum sólahring svo að frekar var litið svo á að leit fram í myrkur væri réttlæting fyrir samviskuna. Harmleikur á hafinu Kl. 18:22 kom skyndilega kall í tal- stöðina sem gjörbreytti öllu. „Varðskip, Sigurður Ingi Friðrik, við höfum séð neyðarblys og gúmmíbát á reki 22 sml. í 241° frá Bjargtöngum og munum hring- sóla yfir honum þar til hjálp berst frá sjó“. Kallaði SIF síðan í nærstödd skip og fékk svar frá breska togaranum Loch Milford, sem sagðist hífa strax og halda á staðinn. Áætlaði hann að vera þar eftir u.þ.b. 2 klst. Það eru ekki bara eldklárir fagmenn heldur líka afburða listamenn sem halda stöðugri sýn á agnarsmáum gúmmíbát á kolsvörtu hafi þegar náttmyrkur er skoll- ið á, á sama tíma og þeir þeytast sjálfir á 120 hnúta hraða í um 200 feta hæð, hring eftir hring í tvær klukkustundir samfleytt. Þrátt fyrir að varpað sé út ljós- baujum og reykbombum er þetta hámark einbeitingarhæfninnar. Vélin hoppar og skekst til í ókyrrðinni yfir haffletinum, stundum getur vængurinn farið fyrir útsýnið að gúmmíbátnum, passa þarf flughæðina, hraðann, stefnurnar og að allar græjur vinni rétt. Til að bæta gráu ofan á svart er radarinn ónothæfur við svona aðstæður því vélin er aldrei bein í loftinu. Loran C eða GPS þar sem læsa má inn stað sem „waypoint“ og ýta svo á takka sem segir „go to“ var ekki til. Þegar SIF tilkynnti fundinn á gúmmí- bátnum var sett á fulla ferð á Óðni og stefnt beint á staðinn. En eftir að í ljós kom að Loch Milford yrði fyrri til kom okkur saman um að Loch Milford inn- byrti mennina og kæmi svo undir Látra- bjarg þar sem við tækjum við þeim. Loch Milford kom svo að gúmmíbátnum kl. 20:08 og innbyrti tvo menn. Þá var ljóst að fjórir höfðu farist. Hittum við svo Loch Milford undir Látrabjargi og kl. um 23:30 fór ég á gúmmíbát að sækja skip- brotsmennina og lífbát þeirra sem togar- inn hafði innbyrt líka. Þegar við aðfararnótt mánudagsins 12. október komum til Flateyrar með skip- brotsmennina, gúmmíbátinn og brakið úr Mumma, voru tilfinningar blendnar milli fagnaðar og sorgar. Þótt það yljaði að sjá fögnuð þeirra sem tóku á móti skipbrotsmönnunum sem heimtir voru úr helju þá fylltist maður samkennd með þeim sem horfðu hnípnir á brakið sem sett hafði verið á bryggjuna og áttu ekki von í endurkomu sinna. Að auki var ekki heldur vitað um afdrif fjögurra manna áhafnar Snæfellsins sem einnig var frá Flateyri. Þetta slys varð svo til þess að lagst var í ýtarlegar rannsóknir á reki gúmmíbáta því þarna sást að bátinn með mennina tvo hafði rekið 64 sml. á þeim 29 tímum sem liðu frá slysinu og þar til þeir fund- ust, eða með rúml. 2 sml. hraða á klst. Þótti þetta með ólíkindum löng vega- lengd. Við komum aftur til Ísafjarðar mánu- daginn 12. okt. og voru sérfræðingarnir þá komnir að sunnan og réttarhöldum yfir Prince Philip haldið áfram. Úrskurð- Guðjón er við mótorinn.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.