Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Page 28
28 – Sjómannablaðið Víkingur
eftir Hilmar Snorrason
Ég geri ráð fyrir að nú sé hugur allra
netverja við að tjá sig um það hvenær
þeir fara að sofa, vakna, komast á frívakt
eða vitlaust fiskerí á Facebook. Það er
ekki annað að heyra á sjómönnum, sem
hafa netaðgang um borð, en að „fésið“ sé
tómstundaiðkunin sem margir eyði í
öllum frívöktunum. En viti menn þá er
líf fyrir utan kjaftaganginn á fésinu og þá
er gaman að láta uppbyggilegar heima-
síður dæla fróðleik til okkar.
Sjómannablaðinu Víkingi er mikill
heiður að kynna fyrstu síðuna að þessu
sinni en það er www.timarit.is. Tímarit.
is er stafrænt bókasafn með yfir 3 mill-
jónir blaðsíðna að fletta í og nýtist hún
öllum þeim sem eru í einhverjum
rannsóknum á sögunni, ómetanleg
hjálparhella. Nýlega var lokið við að
skanna alla árganga Sjómannablaðsins
Víkings til ársins 2008 inn á vefinn
þannig að nú geta allir áhugasamir hafið
lestur á blaðinu frá upphafi. Þau eru
orðið ófá tölublöðin sem gefin hafa verið
út en í eina tíð komu 10 blöð út árlega.
Til að geta fengið aðgang að vefnum
þarf að skrá sig inn og er aðgangur
ókeypis.
Næst ætlum við að skoða USAToday
síðu um farþega- og skemmtiferðaskip á
slóðinni http://www.usatoday.com/travel/
cruises/default.aspx. Þarna má fá fréttir
af því sem er að gerast hjá þessum skip-
um. Þeir sem hyggja á ferðalög geta líka
með þessum hætti fundið tilboðsferðir á
síðunni. Til að fræðast um þá aðila sem
bjóða upp á skemmtiferðir eru ýtarlegar
upplýsingar um margar útgerðir sem og
hafnir sem þessi skip sigla til. Sem sagt,
þá er hægt að leggja drög að sumarfríi
þegar loks fer að birta til í kreppunni hjá
okkur.
Á vormánuðum voru tíðar frétti af
íslenskum skipstjórnarmanni sem var
um borð í skipi sem flutti hjálpargögn
frá Indlandi til Sri Lanka. Skipið komst
sannarlega í heimsfréttirnar enda áttu
hjálpargögnin að fara til tamila en stjórn-
völd á Sri Lanka meinuðu skipinu að
koma til hafnar þrátt fyrir fyrri vilyrði
þar um. Á slóðinni http://vannimission.
org/ er hægt að fræðast um þetta mann-
úðarverkefni og má einnig sjá viðtöl þar
við Kristján Guðmundsson sem var með
í för.
Það hefur ekki farið leynt að margir
Íslendingar hafa flust búferlum úr landi
eftir að kreppan skall á. Sjómenn hafa
sannarlega verið í þeim hópi þrátt fyrir
að tekjur þeirra hafi vænkast örlítið með
slakara gengi en menn
muna líka mögru árin
þegar gengið var það
sterkt að tekjurnar urðu
að engu. Ef einhverjir
eru enn eftir sem hafa
hug á að fara út í heim
er ekki úr vegi að skoða
síðuna www.crewplanet.
eu þar sem menn geta
skráð sig inn og vinnu-
veitendur í leit að skip-
verjum geta haft sam-
band. Þegar ég skoðaði
síðuna var verið að
bjóða skipstjórum á
milli 8 og 9300 € á
mánuði miðað við fjóra
mánuði um borð og
fjóra heima. Þetta mun
gera eitthvað um 1,6 á
mánuði. Þarf nokkuð
að spá í hlutina meira?
Ég rakst á síðu sem
heitir www.shipsandhar-
bours.com þegar ég var í
leit að ákveðnu skipi og
vildi kanna hvort
mögulegt væri að mynd-
ir frá viðkomandi höfn
væri að finna á netinu. Á þessari síðu eru
myndir frá mörgum höfnum sem og af
skipum. Þessi síða er alveg þess virði að
eyða góðum tíma í hana.
Þeir lesendur sem hafa áhuga á her-
skipum ættu að skoða síðu um belgíska
sjóherinn á slóðinni www.zm-fn.be. Að
vísu er síðan á hollensku en það gerir
ekkert til því nóg er af ljósmyndum á
síðunni. Þar má sjá myndir af herskip-
um flotans sem og frá styrjaldarárum
seinni heimsstyrjaldarinnar.