Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Blaðsíða 33
Sjómannablaðið Víkingur – 33
Rýmkun fyrir útgerðir
Skráningafánalöndin gera margt til að laða að skip og þar
með tekjur til landa sinna. Nú nýlega kynnti Panama um nýja
tegund skráningar skipa eða „skip í legu“. Þau skip sem lenda
í verkefnaskorti og hefur verið lagt er hægt að færa á þessa
skráningu sem gerir eigendum þeirra kleyft að spara peninga
því skráning undir þessum formerkjum er 40-50% ódýrari.
Samhliða því að lækka skráningargjöldin rýmkast fyrir eigendur
að fækka skipverjum um borð þar sem skipin fá ný mönnunar-
skírteini sem og veruleg rýmkun á tímalengd reglubundinna
skoðana. Í byrjun júní var talið að rúmlega 380 stórflutninga-
skip yfir 10.000 tonn DW hefðu ekki verið hreyfð í meira en
mánuð vegna verkefnaskorts auk þess sem um 10% af gáma-
skipum heimsins liggja verkefnalaus um allan heim.
Nýjar hafnarríkisreglur
Paris Memorandum of Understanding samkomulagið um
Hafnarríkiseftirlit (Port State Control) boðar byltingarkenndar
breytingar á framkvæmd eftirlitsins frá og með árinu 2011. Þá
verða innleiddar nýjar skoðunarleiðir þar sem tekið verður tillit
til vel rekinna skipa og útgerða. Slíkar útgerðir og skip verða
verðlaunuð með minni skoðunum en sjónum beint að áhættu-
samari skipum sem ekki hafa gott orðspor hvað rekstur varðar.
Þau skip munu aftur á móti verða fyrir auknum og ýtarlegri
skoðunum en áður. Tekið verður til skoðunar árangur útgerða
svo og útkoma úr ISM skoðunum skipa til að greina þau skip
sem falla í áhættuhópa. Þá verður einnig horft til frammistöðu
fánaríkis gagnvart öryggi skipa. Nú er bara að vona að íslenskir
farmenn lendi í betri hópnum en lítið verður hægt að horfa til
íslenska þjóðfánans þar sem ekkert kaupskip í alþjóðasiglingum
hefur þann fána við hún.
Sjóránssögur
Það er eiginlega ekki hægt annað en að minnast á sjórán í
þessum pistlum enda eru þau ein mesta ógnun sem steðjar að
sjómönnum um þessar mundir. Þegar þetta er skrifað er nýbúið
að frelsa maltneska timburflutningaskipið Arctic Sea úr hönd-
um sjóræningja þótt sagan á þessum tímapunkti hafi ekki verið
upplýst til fullnustu. Rússneskri áhöfn skipsins hafði verið
haldið í 25 daga áður en tókst að frelsa hana með herafla. Það
var þó ekki herafli sem frelsaði áhöfnina á dráttarbátnum Yene-
goa Ocean sem sómalskir sjóræningjar hafðu haldið í 10 mán-
uði heldur kænska skipstjórans. Honum tókst að telja sjóræn-
ingjunum trú um það að skipið væri orðið olíulaust og gæti því
hvergi farið en skipið hafði legið við strönd Sómalíu. Ræningj-
unum þótti því óþarft að hafa nema einn varðmann um borð.
Þetta nýtti svo áhöfnin sér eina nóttina þegar henni tókst að
yfirbuga sjóræningjann og sigla dráttarbátnum á haf út. Það var
síðan hollensk freigáta sem kom til móts við dráttarbátinn og
veitti skipverjunum læknisaðstoð. Var honum síðan fylgt til
Yemen.
Meiri sjórán
Skipstjórinn á olíuskipinu Dubai Princess, sem er 115
þúsund tonn að stærð, var lofaður af breska sjóhernum fyrir
kænsku við að losna undan sjóræningjum á Adenflóa. Hrað-
bátur með sex sjóræningjum um borð reyndi að komast um
borð í skipið en þeir voru meðal annars vopnaðir vélbyssum og
sprengjuvörpu. Skotið var á skipið en skipstjórinn jók ferðina
eins og kostur var sem og að sigla í krákustíga. Að lokum sáu
sjóræningjarnir að þeir myndu aldrei komast um borð enda
sigldi skipið í átt að verndarflotanum og hjálparþyrlur á leið-
inni. Ekki sluppu sjóræningjarnir alveg þar sem þeir voru
stoppaðir og afvopnaðir af hermönnum. Í apríl mánuði var
tilkynnt um 30 árásir á skip undan Sómalíu og 29 mánuðinn á
eftir. Í byrjun júni voru 13 skip og 193 sjómenn í haldi sjóræn-
ingja í Sómalíu og voru flestir þeirra Filippseyingar. Þrátt fyrir
þessar tölur hefur árásum fækkað eftir að verndarskip voru
staðsett á svæðinu en einnig hefur verið bent á að skipstjórar
bregðast af sífellt meiri hörku við sjóræningjaógninni.
Dæmdur
Nýlega var skipstjóri birgðaskipsins Vos Viper sektaður af
skoskum dómstóli fyrir að hafa leyft skipverja að koma um
borð í skipið, þar sem það lá í höfn, undir áhrifum áfengis.
Dómsorð voru þau að skipstjórinn hefði brotið gagnvart örygg-
isreglum fyrirtækisins sem og öryggisstjórnunarkerfi skipsins
(ISM). Umræddur skipverji lést eftir að hann féll niður stiga í
íbúðum skipsins en skipstjórinn, Alexander Phimister, lýsti sig
sekan um ákæruna. Málsatvik voru þau að skipið lá í höfn í
Lerwick á Shetlandseyjum og fór skipstjórinn ásamt vélstjóra
og yfirstýrimanninum á krá til að halda upp á afmæli skip-
stjórans. Fleiri skipverjar voru þar einnig en eftir að þeir komu
aftur til skips ákvað yfirstýrimaðurinn að ná í kaffi en féll í
stiga og lést af völdum áverka sem hann hlaut. Við krufningu
kom í ljós að áfengismagn í blóði hans var yfir leyfilegum
mörkum útgerðarinnar og ISM kerfi skipsins. Talsmaður breska
stéttarfélags sjómanna NUMAST sagði að dómsniðurstöður
sköpuðu fleiri spurningar eins og hvað hefði gerst ef skipverj-
anum hefði verið meinað að fara um borð í skip sitt. Skip-
stjórinn var sektaður um 1.800 pund.
Vöxtur þrátt fyrir kreppu
Í nýlegri skýrslu Lloyd’s Register – Fairplay er bent á að þrátt
fyrir skelfilegt ástand á fragtmörkuðum þá er gert ráð fyrir
áframhaldandi vexti í fjölda gámaskipa. Þessi niðurstaða er
reyndar mjög svört fyrir eigendur þessa skipa þar sem þetta
mun einungis hafa þau áhrif að búast megi við mjög lágum
farmgjöldum í langan tíma. Heimsfloti gámaskipa telur 4.671
skip með samtals 12,4 milljón TEU’s flutningsgetu. Búist er við
um 13% vexti á árinu 2009 sem aðallega kemur til af pöntun-
um á nýsmíðum meðan góðærið varði en eigendurnir eru að fá
skipin afhent nú. Búist er við að árlegur vöxtur á árunum 2010
til 2013 verði aðeins minni eða um 9,3%. Ef litið er til ákveð-
innar stærðar gámaskipa kemur í ljós að mestur vöxtur verður í
skipum yfir 8.000 TEU’s eða um 25% til ársins 2013. Sem
lýsandi dæmi fyrir ástandið þá tapaði AP Möller-Mærsk nærri
400 milljónum dollara á fyrsta ársfjórðungi 2009 en í fyrra varð
hagnaðurinn um milljarður dollara. Meginástæðu þessa við-
snúnings má rekja til gámaflutningasviðs útgerðarinnar.
Sómalskir sjóræningjar vopnaðir vélbyssum og sprengjuvörpu að reyna að kom-
ast um borð í 115 þúsund tonna olíuskip.