Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 39
togaði útþráin í okkar mann. Í febrúar 1977 fór hann einn til Róm- ar og ætlaði að taka að sér smáverkefni fyrir FAO, nokkrar vikur, en úr teygðist og varð að lokum að tveggja og hálfs árs útivist. Konan og dóttirin komu á eftir honum, en synirnir voru í skóla á Akur- eyri og á Englandi. Þennan tíma var Sig- urður eins og jójó, hann fór stað úr stað og land úr landi. Hann var við viðhald og eftirlit á bátum og skipum fyrir „Fleet Management Unit“ stofnunarinnar. Þessi floti var lánaður stjórnum hinna ýmsu ríkja til þróunarvinnu og var viðhaldi því oft ábótavant eins og von var. Nafna- rununa verður að lesa með landakorti: Róm-Malawi-Tanzanía-Aden-Tanzanía- Malawi-Róm-Mobasa í Kenya-Malawi- Róm-Conacry í Guineu í V-Afríku-Dakar í Senegal-Casablanca í Marokkó-Róm- Dar Es Salam í Tanzaníu-Túnis-Malta- Uganda-Tanzanía. Þá var komið fram í nóvember 1978 og Sigurður skipti um heimsálfu, því nú brá hann sér til Bang- kok í Tælandi. Þannig var, að FAO í sam- vinnu við Norðmenn, hélt þar viðamikið námskeið í hönnun fiskiskipa fyrir Asíu og Austurlönd fjær. Fyrirlesarar voru úr hinum ýmsu heimshornum. Þar hélt Sig- urður ellefu fyrirlestra um fyrirkomulag í vélarrúmi og fleira því viðvíkjandi. Allir fyrirlestrarnir, sem haldnir voru á nám- skeiðinu, voru gefnir út á bók í Englandi undir titlinum „Design of Small Fishing Vessels“. Eftir áramótin lá leiðin svo til Amster- dam og þaðan til Trinidad við strendur Suður-Ameríku, þar var hann með skip frá FAO í slipp sex vikur og aftur svo til Rómar, en þaðan lá leiðin til Gineu, en síðan aftur vestur yfir Atlantshafið, til Panama og Dóminíska Lýðveldisins. Þá var kominn tími til að taka sér frí og það gerði Sigurður, en til þess þurfti hann að segja upp starfi sínu, sem hann og gerði. Nú var komið haustið 1979 og leiðin lá aftur til Akureyrar, heim í Suðurbyggð- ina og í frystihús ÚA. Eftir ár heima, haustið 1980, lá leiðin aftur út í heim. Nú var það Indónesía. Sigurveig og Anna María fóru með, syn- irnir voru í námi heima og í Danmörku. Þar bjuggu þau til sumarsins 1983. Eitt af verkefnum hans var að mennta unga menn til ráðgjafarstarfa, en þeirra var brýn þörf, því vélvæðing fiskibáta var á algeru byrjunarstigi, líkt og var hér heima eftir aldamótin 1900, þegar menntun nýrrar stéttar, mótoristanna, hófst. Ráðgjafarnir áttu síðan að fara milli fiskiþorpanna og leiðbeina og hjálpa sjómönnum eftir því þörf krafði. Alls voru menntaðir 36 ráðgjafar, sem allir fengu tíu daga stíft námskeið. Þar fetaði Sigurður í fótspor föður Á HÆKJUM SÉR Nú er það til siðs, í Indónesíu og líkast til víðar austur þar, að menn sitja á hækjum sínum við flest sín störf, ef því verður við komið. Ekki gefst það jafn vel við öll verk, eins og Sigurður komst að á einu námskeiðanna, sem hann hélt. Hann var bara með eina vél, tvær voru ókomnar. Hann sagði hópnum að skoða gripinn og velta fyrir sér því, sem þeir sæu. Þeir gerðu það og þar sem vélin var enn á gólfinu, en þar léku leir og sandur aðalhlutverkið, settust þeir á hækjur sínar. Þetta líkaði Sigurði ekki, því, eins og allir vita, eru sandur og mold óæskilegir hlutir við vélarrupptekt. Hann bað þá því setja gripinn upp á stórt borð, vinnuborðið og dunda sér meðan hann sækti næstu vél. Nemendur tóku því vel, enda komnir til að læra. Þegar Sigurður kom til baka, alllöngu síðar, var vélin kominn upp á borðið og nemendurnir líka, allir sátu þeir þar á hækjum sér rétt eins og önnur vinnustelling væri ekki til. RÆÐAN HENNAR VEIGU Sigurveig var duglegust fjölskyldunnar að læra mál innfæddra í hvaða landi sem þau voru. Þegar þau hjón voru á Jövu í Indónesíu lærði hún Bahasa Indonesa, aðalmál inn- fæddra og náði góðum tökum á því. Hún settist einfaldlega á skólabekk og stóð sig vel. Það var svo um þessar mundir, hvernig sem það er nú í dag, að Kínverjar áttu mikl- ar eignir þar á eyjunni, þar á meðal heilu einbýlishúsahverfin. Sigurður og Sigurveig bjuggu í einu slíku húsi. Innfæddir voru afskaplega argir, svo ekki sé meira sagt, út í auð Kínverjanna og vildu þá sem lengst í burtu. Að lokum sauð upp úr og innfæddir gengu berserksgang, fóru hús úr húsi og skemmdu og eyðilögðu eignir íbúanna. Þeir tóku allt sem hönd á festi innandyra og köstuðu út, húsbúnaður, sjónvörp og allt, sem ekki var naglfast, var mulið mélinu smærra. Hverfið var auðvitað umlukið öryggis- girðingu, en sá fyrsti, sem tók til fótanna, var öryggisvörðurinn sjálfur. Þegar berserkjahópurinn kom að Jalan Rinjani númer fimmtán og bjóst til skemmd- arverka, gekk frú Sigurveig Sigurðardóttir frá Dalvík út á tröppurnar og hélt ávarp á Bahasa Indonesi, blandað tærri íslensku. Hvort þessir andskotar héldu, að hún væri Kínverji, ljós á hörund og bláeygð. Nei takk, íslensk væri hún og íslensk yrði hún og þeir skyldu bara hypja sig. Íslenska víkingseðlið varð indónesískri reiði yfirsterkara og húsið númer fimmtán var það eina í hverfinu, sem fékk að vera í friði. Eitt af rannsóknaskipum FAO sem Sigurður hafði eftirlit með. Sjómannablaðið Víkingur – 39

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.