Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2009, Síða 41
tæki væru víðar smíðuð og full ástæða til að kanna það nánar. Þetta kveikti með mönnum neista og Sigurður og Hans fóru ásamt fulltrúa byggingarnefndar í vikuferð Noregs og kynntu sér gerð og notkun slíks búnaðar. Ítarleg skýrsla þeirra um ferðina, þar sem þeir benda á ótvíræða kosti þessa tækis til að mennta vélstjóra, varð til þess, að hafist var handa um að kaupa slíka búnað og með dyggri aðstoð bæjarstjórnar Akureyrar og annarra ráðamanna var hermir keyptur, sá fyrsti á landinu, og settur upp haustið 1987. Verkmenntaskólinn hafði þar öðr- um sterkari framtíðarsýn. Það var þessari nýju tækni og þó öllu fremur góðu og framsýnu kennaraliði að þakka, að Verkmenntaskólinn fékk haustið 1987 leyfi til að hefja kennslu á þriðja stigi vél- stjórnar og níu árum seinna á fjórða stigi, þannig að frá haust- inu 1997 hefur verið starfræktur fullgildur vélskóli á Akureyri. Þar starfaði Sigurður allt til vorsins 2003 að hann fór á eftir- laun. Hönnuðurinn Fyrr var nefnd bátasmíði Sig- urðar á bernskuárunum í Hrísey. Á Indónesíu-árunum lét hann eftir þeim áhuga sínum að teikna og smíða báta og innritaðist í banda- rískan bréfaskóla, Yacht Design Institut í Maine fylki. Þetta nám stundaði hann austur þar meðfram vinnu, en þegar hann ætlaði að taka upp þráðinn eftir að heim var komið, hafði skólanum verið breytt og var nú kominn á háskólastig. Skólastjórinn bauð honum þá að koma vestur, bréfaskólanámið skyldi metið sem eins árs fullt nám og lokapróf fengi hann að loknu einu námsári. Fékk ársleyfi frá kennslu og fór vestur 1986 og braut- skráðist vorið 1987 með gráðuna Associ- ate in Applied Science Degree in Small Craft Naval Architecture. Sigurður var fyrsti nemandinn, sem lauk þessarri námsbraut og fékk umsögnina „with high honours“. Þá var komið að Sigurveigu að setjast á skólabekk. Myndlist hafði heillað hana allt frá því hún var búsett í Róm og Sig- urður víðs fjarri við sín störf. Hún stund- aði fjögurra ára nám við Myndlistarskól- ann á Akureyri og lauk þaðan burtfar- arprófi vorið 1998. Á Verkmenntaskólaárunum teiknaði Sigurður nokkra báta, sá stærsti var 40 feta seglbátur, sem smíðaður var úr stáli vestur á Ísafirði, auk minni báta. Árið 1996 keyptu þau hjón gamla Vélskóla- húsið við Laufásgötu á Akureyri, sem fyrr var nefnt, og í fyllingu tímans gerðu þau það að vinnu- stað sínum, sem það er enn og þar er Sigurður nú að smíða 19 feta álbát, en áður hafði hann hannað og smíðað 20 feta segl- skútu, en Sigurveig hefur lagt undir austurhluta hússins, þar málar hún og heldur málverka- sýningar. Höfundur var skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri og samstarfsmaður Sigurðar Ólafs Jónssonar í fimmtán ár. Strákarnir mínir í Verkmenntaskólanum, segir Sigurður um þessa mynd. Sjálfur er hann fyrir miðjum hópi. Hróar siglir á Pollinum við Akureyri en hún er að öllu leyti afkvæmi Sig- urðar sem teiknaði hana og smíðaði. Sjómannablaðið Víkingur – 41

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.