Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2010, Page 18
18 – Sjómannablaðið Víkingur
okkur boðið að skoða litla skuttogara,
150–200 tonna skip, sem Bretar voru
farnir að smíða til brúks í Norðursjón-
um. Þessi, sem okkur var sýndur, var
aðeins búinn að fara tvo túra, en útlitið
sagði annað. Það var ótrúlegt, hvað hann
var illa farinn, nýtt skip, aðeins tvær
veiðiferðir. Bretar voru fyrsta togara-
þjóðin, með mikla hefð, fundu þessa
veiðitækni upp og voru byrjaðir að toga
hérna fyrir aldamótin 1900 á segltogur-
um ... gamlir togarar með strompinn
fyrir framan stýrishúsið sáust fram til
1960 í Norðursjó, ... „úr því að afi notaði
þetta, þá getum við notað það líka,“ —
það var hugsunarhátturinn.
Ólafur: Til er lýsing Eyjólfs R. Ey-
jólfssonar (Eyjólfs alkakrækis); hann hóf
togaramennsku í byrjun seinna stríðs,
var kyndari og háseti, sigldi á Fleetwood,
var rekinn af gamla Júpíter ásamt 11
öðrum fyrir rangar sakir og rekinn af bv.
Hafliða fyrir kjafthátt beint framan í fésið
á kallinum. Á Júpíter var vaskurinn í
lúkarnum brotinn og oftast ekkert vatn;
þvoðu sér úr köldum sjónum, ef þeir
þvoðu sér þá ... mönnum var haldið í
óvissu, hvort þeir héldu plássinu lengur
en túrinn, haldið í stöðugri spennu með
endalausum skömmum og jafnvel hót-
unum18. Sögur gengu, að karlinn í
brúnni henti þorskhausum í menn á
dekki, og borgaði sektir hjá lögreglunni
á eftir. Einn komst yfir vatnsbyssu og
sprautaði kaffi á mannskapinn, annar
öskraði í gegnum lúður, skall eins og
höggbylgja á mönnum. Hvað var gert í
alvöru, hvað sér til gamans?
Tilvísanir í rit, sem leitað var til
1 Trawler Safety. Final Report of the Committee
of Inquiry into Trawler Safety. Chairman:
Admiral Sir Deric Holland-Martin. London.
Her Majesty‘s Stationery Office, 1969, p. iv.
(Í lauslegri þýðingu.)
2 Feigðarför Röðuls GK í janúar 1963. Ægir,
89. árg., 8. tbl., bls. 24–29, 1996. — Oskar
Thorðarson, Gunnar Gudmundsson, Olafur
Bjarnason, Thorkell Jóhannesson. Metylklor-
idforgiftning. Nordisk Medicin, 73, 150–154,
1965. — Gunnar Gudmundsson. Methyl
Chloride Poisoning 13 Years Later. Archives
of Environmental Health, 32 (5), 236–237,
1977. — Vilhjalmur Rafnsson, Gunnar Gud-
mundsson. Long-Term Follow-Up after
Methyl Chloride Intoxication. Archives of
Environmental Health, 52(5), 355–359, 1997.
Í nýlegu viðtali, 31. okt. 2010, staðfesti Jón
Eðward C. Helgason, að hann vissi aðeins
um tvo, sem fengu sig metna öryrkja vegna
slyssins í Röðli, annar var metinn 70% öryrki
og hinn 100%. Bárður Steingrímsson fékk
einhverjar bætur, var ókunnugt um aðra.
Sjálfur fékk hann ekkert út úr þessu slysi
nema dagpeninga þann tíma, sem hann var
frá vinnu. Seinna fékk hann örorkubætur
vegna annars slyss.
3 Steinar J. Lúðvíksson. Þrautgóðir á rauna-
stund. Rvk. 1987, 18. bd, bls. 14–24. —
Eldsvoði um borð í Hallveigu Fróðadóttur í
fyrrinótt: Sex skipverjanna sem sváfu í neðri
lúkar fórust í brunanum. Þjóðviljinn, föstu-
daginn 7. marz 1969, 34. árg., 55. tbl., bls. 1
og 7.
4 Um Jón Antonsson (handrit, B. B.).
5 Banaslys í gærmorgun. Vélstjóri varð fyrir
togaraskrúfu er rann af vörubílspalli. Morgun-
blaðið, laugardagur 31. janúar 1959, 46. árg.,
25. tbl., bls. 16.
6 Leitað er togarans Júlí frá Hafnarfirði.
Þjóðviljinn, fimmtudaginn 12. febrúar, 24.
árg., 35. tbl., bls. 1.
7 Hafliði Magnússon. Saltstorkin bros. Vest-
firska forlagið. Hrafnseyri 2003, bls. 69–72.
Hafliði Þórður Magnússon var var um tíma
með Bensa sailor á bv. Júlí. Í sögunni er sagt
frá þeim tveimur á Þórscafé, og stríðnin bitn-
aði á Halla í næstu túrum á bv. Júlí (viðtöl
við höfund bókarinnar, Hafliða Þórð Magnús-
son, í júní 2010).
8 Bátinn tók út, en mennirnir voru eftir á kafi í
sjónum. Rætt við háseta á Pétri Halldórss.
um óveðrið mikla við Nýfundnaland.
Þjóðviljinn, laugardagur 14. febrúar 1959, 24.
árg., 37. tbl., bls. 12.
9 Viðtal við Gylfa Guðmundsson, skólastjóra,
29. júní 2010.
10 Viðtöl við Einar Örn Lárusson, kennara og
bókavörð, frá Miðgörðum í Kolbeins-
staðahreppi, og Stefán Þorvarðarson, bróður-
son Aðalsteins Júlíussonar; í júní 2010.
11 3 Íslendingar farast. Þjóðviljinn, 1951, mið-
vikudagur, 31. janúar, 16. árg., 25. tbl., bls.
12. – Um Ragnar Guðjón Karlsson, sjá
Gunnar M. Magnúss. Virkið í norðri (Helgi
Hauksson sá um útgáfuna), I. bd., Rvk. 1984,
bls. 111, 124–125, 124–144, 144m, 206–207.
12 Viðtöl við Sigurð Guðmundsson og Örn
Bjarnason, lækni.
13 Gunnar M. Magnúss. Virkið í norðri (Helgi
Hauksson sá um útgáfuna), I. Bd., Rvk. 1984,
bls. 111, 124–125, 124–144, 144m, 206–207.
14 Viðtöl við Guðmund Hallgrímsson, vélstjóra,
júní 2010 og Guðmund Heimi Pálmason,
togarasjómann, maí-sept. 2010.
15 Skipshafnarskrá, bv. Júlí GK 21, janúar/
febrúar 1959. Þjóðskjalasafn Íslands.
16 Síðasta veiðiferðin. Ingvi Rafn Jónsson tog-
arajaxl rifjar upp síðustu veiðiferð Júpiters.
Ægir, 1996, 89. árg., 5. tbl., bls. 20–21.
17 Ásgeir Jakobsson. Sagan gleymir engum.
Sjómennskuþættir. Rvk. 1989, bls. 15–16.
18 Eyrún Ingadóttir. Gengið á brattann. Ævisaga
Eyjólfs R. Eyjólfssonar „alkakrækis.“ Rvk.
1998, bls. 86–92.
Bv. Freyr RE 1 í Reykjavíkurhöfn; þeir kölluðust sjóborgir þessir þúsund tonna togarar, slík var sjóhæfnin; smíðaður hjá A. G. Weser, Werk Seebeck í Bermerhaven í
Þýzkalandi 1960; 987 brl. með 2300 ha. Werkspoor díselvél. - Ljósmynd: Jóhannes Haraldsson.