Norræn tíðindi - 01.05.1956, Side 17
1956
Norræn tíöindi
búa áætlun um hópferð til Islands og hafa
tillögur þar að lútandi tilbúnar fyrir fulltrúa-
fundinn 1956; 3) að fela formanni Norræna
fél. danska, C. V. Bramsnæs, fyrrv. Þjóðbanka-
stjóra að ganga frá tillögum um samnorræn-
an menningarsjóð.
Framkvæmdastjórar og aðalritarar félag-
anna höfðu einnig fund með sér, þar sem tekin
voru fyrir helztu mál, sem fjallað var um á
fulltrúafundinum í Rvík á s. 1. sumri, og
auk þess var rætt um ýmis framtíðarverkefni,
svo sem mót og námskeið á vegum félaganna
á árinu 1956, útgáfustarfsemi félaganna, vina-
bæjarstarfsemina o. fl. Ákveðið var að ræða
nánar vinabæjatengsl og norrænt félagsstarf
meðal æskulýðsins á fundi sem haldinn yrði
í tengslum við 4. þing Norðurlandaráðsins x
Kaupmannahöfn í janúar 1956.
í nóvember.
Þriðjudaginn 15. nóv. hélt Norræna félagið
skemmtifund í Sjálfsæðishúsinu til heiðurs
Nóbelsverðlaunaskáldinu Halldóri Kiljan Lax-
ness. Skáldið og kona hans, frú Auður Sveins-
dóttir, heiðruðu samkvæmið með nærveru
sinni. Halldór las úr verkum sínum.
Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, form. fé-
lagsins, hélt ræðu um Halldór Laxness.
Þuríður Pálsdóttir söng nokkur lög við
ljóð eftir skáldið. Undirleik annaðist Jórunn
Viðar.
Halldór Kiljan Laxness las kafla úr skáld-
sögu sinni um Ölaf Kárason Ljósvíking og
auk þess kafla úr Gerplu.
Að lokum var dansað fram eftir nóttu.
Skemmtifundur þessi var mjög fjölmennur.
1 xlesember.
Luciuhátíð var haldin í Þjóðleikhúskjallar-
anurn 13. desember. Lucía var frú Anna
Stína Oddsson.
Gunnar Thoroddsen flutti ávarpsorð og fól
Magnúsi Gíslasyni að stjórna samkomunni.
Því næst hófst Lueíu-gangan, Lucían og
þernur hennar sungu sænska jólasöngva. Tvær
litlar stúlkur —- Þóra og Marta Magnúsdætur
komu fram sem „Stjárngossar" og sungu.
Guðrún Blöndal las söguna Nóttin helga
eftir Selmu Lagerlöf. Frú Britta Gíslason
söng jólalög með undirleik dr. Páls Isólfssonar.
Anna Larsson, sendikennari, sagði frá
sænskum jólasiðum og sýndi kvikmynd um
sænska jólaóttu.
Með kaffinu var sérstakt jólabrauð (lusse-
katter) borið á borð. Auk þess var boðið
upp á „jólaglögg" að sænskum sið.
Loks var dansað. Aðsókn var mjög góð
og um 30 nýir félagar gengu í félagið.
1 janúar 1956.
Ætlunin var að senda félagsmönnum eina
gjafabók í desember í stað Norrænna jóla.
Búið var að ákveða kaup á bókinni Nordens
provins, sem er norræn myndabók gefin út
af Norræna félaginu í Danmörku. Þegar til
átti að taka, sá danska félagið sér ekki fært
að láta svo mörg eintök af hendi sem við
þyrftum að fá. En þetta olli því að töf
varð á útsendingu væntanlegrar gjafabókar.
I stað myndabókarinnar var ákveðið að gefa
tvær bækur, söngbókina Nordens sangbok,
og skáldsöguna Bekánna fárg.
Nordens sángbok var gefin út af Norrænu
félögunum sameiginlega og hefur notið mik-
illa vinsælda á Norðurlöndum. Hún er að verða
uppseld. Bók þessi er um 300 síður að stærð
og fylgja nótur öllum söngvunum. 1 bókinni er
fjöldi vinsælla norrænna söngva.
Skáldsagan Bekánna fárg (Sýndu lit) er eftir
einn af þekktustu rithöf. Svía Olle Hedberg,
og er talin bezta skáldsagan sem hann hefur
samið. Bókin er á sænsku, en með dönskum
skýringum. Hér er um útgáfu Norræna fé-
lagsins danska að ræða.
Báðar þessar bækur hafa verið gjafabækur
félagsins í Danmörku.
Auk þessara bóka var ákveðið að senda
félagsmönnum félagsrit sem hefði hliðsjón af
hlutverki að gegna og félagsrit hinna Nor-
rænu félagarma: að vera málgagn félagsins
og jafnframt tengiliður milli félagsstjórnar-
innar og félagsmanna og þannig einnig deilda
viðsvegar um land.
1 febrúar.
Um miðjan júní kemur O. D. karlakórinn,
stúdentakórinn frá Uppsölum, hingað til lands.
Norræna félagið mun verða einn af þremur
aðilum, sem veita kórnum fyrirgreiðslu, með-
an hann dvelur hér á landi.. Hinir aðilarnir
eru: Tónlistarfélagið og Samband ísl. karla-
kóra.
Um miðjan júlí kemur fimleika- og þjóð-
dansaflokkur frá Stokkhólmi, er mun dvelja
hér nokkra daga og njóta fyrirgreiðslu Nor-
ræna félagsins. Flokkar þessir heita: K.F.U.
13