Norræn tíðindi - 01.12.1962, Side 24
Norrœn tíðincU
196S
ar var ekki að vita, hvernig á stæði í
vinabæjum okkar um móttöku tuttugu
manna hóps á jafn bundnum tíma og
hér var um að ræða. Leitað var strax
bréflega til norrænu deildanna í vina-
bæjum okkar um vilja og aðstæður til
móttöku. Bárust strax svör frá Lange-
sund í Noregi og Vástervik í Svíþjóð.
Var hópurinn sagður velkominn og því
fagnað að vænta mætti heimsóknar.
Hin norska flugvél kom með skátana
til Reykjavíkur 24. júlí og fór samdæg-
urs aftur til Oslóar. Með henni tók
knattspyrnuliðið frá Akranesi sér far.
1 hópnum voru seytján drengir á aldr-
inum fjórtán til sextán ára. Fararstjór-
ar voru: Þórleifur Bjarnason, formaður
norrænu deildarinnar á Akranesi, Óðinn
Geirdal, skrifstofustjóri, og Hallgrímur
Árnason, kaupmaður. Þjálfari liðsins
var Georg Elíasson, prentari.
Gist var í Osló fyrstu nóttina, en
strax næsta morgun haldið af stað til
Langasunds, og þangað komið um miðj-
an dag. Þar tók á móti hópnum formað-
ur norrænu deildarinnar í Langasundi,
Jac Lund-Tangen, skrifstofustjóri bæj-
arins og mikill ráðamaður í bæjarmál-
efnum Langasunds. Hópnum var vísað
til gistingar í farfuglaheimili bæjarins
og naut þar ókeypis uppihalds þá þrjá
og hálfan dag, sem hann dvaldist í
Langasundi. Voru móttökur allar og
viðurgerningur með ágætum.
Langasund er lítill, en fallegur bær
á strönd Þelamerkur. Um tvö þúsund og
fimm hundruð íbúar eru í bænum. Hann
stendur að mestu á lágum, skógivöxnum
hæðarás meðfram ströndinni, en hús
dreifast niður ásinn beggja megin og eru
sífellt í feluleik innan um skógarlunda.
Fram undan ströndinni, skammt undan
landi, er allmikil skógivaxin eyja, er
Langey nefnist, en inn af gengur lang-
ur fjörður, Langasundsfjörðurinn.
I Langasundi voru tveir knattspyrnu-
leikir háðir, annar við lið frá Langa-
sundi, en hinn við flokk úr nágrenninu.
Sigruðu Akurnesingar í báðum leikjum.
Meðan dvalist var í Langasundi var
sólskin hvem dag og fremur hlýtt í
veðri. Nutu ferðamennirnir þess ríku-
lega. Þeim var sýndur bærinn, athafna-
svæði, merkar byggingar og sögustaðir.
Farið var með þá í skerjagarðsför undir
forustu forseta bæjarstjómarinnar og
fleiri fulltrúa í stjórn bæjarins. Siglt
var í sólskini og hægri innlögn um þröng
sund milli skógivaxinna eyja og skerja,
framandi umhverfi fyrir unga Akur-
nesinga, enda þótti þeim mikið til koma.
Þá var einn daginn farið um helzta iðn-
aðarsvæði Þelamerkur og heimsóttur
höfuðstaður fylkisins, bærinn Skien,
fæðingarstaður Henriks Ibsen. I byggða-
safni fylkisins í Skien er sérstök deild
helguð skáldjöfrinum, var hún vandlega
skoðuð og einnig æskuheimili Ibsens að
Venstöp. Leiðsögumaður var kunnur
fræðimaður um sögu Ibsen, dr. Einar
Östved. Var leiðsögn hans með miklum
ágætum.
Eftir að hafa notið einstakrar gisti-
vináttu Langasundsbúa var förinni hald-
ið áfram til Vesturvíkur, vinabæjar
Akraness í Svíþjóð. Var sá áfangi far-
inn á einum degi. Reyndist það löng og
þreytandi dagleið.
Viðtökur í Vesturvík voru hinar
beztu, en þær önnuðust íþróttafélögin
þar í samráðum við norrænu deildina.
Var flestum gestum komið til gistingar
á heimilum. Var öllum dvölin ókeypis.
1 Vesturvík dvaldist hópurinn í þrjá
daga. Þreyttir voru tveir knattleikir,
annar við lið úr Vesturvík og töpuðu
Akurnesingar þeim leik. Hinn leikurinn
var við lið í Överum, smábæ skammt
22