Fréttablaðið - 03.09.2022, Side 30
getur það fengið það í bakið
síðar meir. Karl segist hafa fengið
að upplifa það á eigin skinni: „Fíflið
getur alveg komist upp á kant við
konunginn, getur lent í alls konar
hremmingum fyrir það einmitt
að reyna að vera fyndið á kostnað
valdhafans. Þannig var þetta líka á
mínum ferli.“
Lentu upp á kant við valdhafa
Næst liggur að nefna Spaugstofuna
í tengslum við fíf lið en Karl viður
kennir fúslega að þeir félagar, Örn,
Pálmi, Randver og Sigurður, hafi
gegnt því hlutverki árum saman.
„Ég hef skilgreint okkur þannig í
mörg ár. Það var okkar hlutverk að
snúa út úr því sem var efst á baugi,
vekja athygli og draga fram í dags
ljósið hluti sem jafnvel f lokkast
undir spillingu, óeðlilega fram
komu gagnvart þeim sem minna
mega sín, óeðlilega valdastöðu
þeirra sem eru sterkir og eiga nóg af
peningum,“ segir Karl Ágúst.
Spaugstofumenn lentu sjálfir
ítrekað upp á kant við yfirvöld og
valdamikla aðila í þjóðfélaginu en
eitt frægasta dæmið er líklega þegar
biskup Íslands, Ólafur Skúlason,
kærði þá fyrir guðlast eftir umdeild
an páskaþátt Spaugstofunnar 1997.
„Við vorum kærðir fyrir guðlast,
við vorum kærðir fyrir klám, við
fengum á okkur hótanir um lög
bann og vorum sakaðir um ofsóknir
á ákveðnu fólki í valdakerfinu. Það
voru menn sem reyndu bókstaflega
að fá þættina tekna af dagskrá og
beittu áhrifum sínum til þess, sem
við bara fréttum utan frá, en það
heppnaðist ekki,“ segir Karl Ágúst.
Tók sjálfan sig mjög alvarlega
Þótt Karl Ágúst sé þekktastur sem
gamanleikari þvertekur hann fyrir
að það hafi verið meðvituð ákvörð
un að fara út í grínið.
„Ég tók sjálfan mig ofsalega
alvarlega sem listamann þegar ég
var nýútskrifaður. Ég skil það ekki
alveg þegar ég hugsa til þess í dag
hvað ég hafði óbilandi sjálfstraust
og fannst ég geta allt, sem ég auð
vitað gat ekki. Kannski hefði ég
varla gert helminginn af því sem ég
hef gert ef ég hefði ekki haft þessa
trú,“ segir hann.
Fyrsta vísbendingin að því sem
verða skyldi kom árið 1982 þegar
Karl lék í uppfærslu Alþýðuleikhúss
ins á verki Guðmundar Steinssonar
Þjóðhátíð. Þá komst gagnrýnandi
Morgunblaðsins svo að orði: „Karl
Ágúst sýnir það hér að í honum býr
kómíker.“
„Þetta var það fyrsta sem ég hafði
heyrt eða séð um það að ég væri
gamanleikari í einhverri merkingu.
En svo gerist þetta náttúrlega mjög
fljótlega,“ segir Karl Ágúst.
Skömmu áður hafði Karl fengið
lítil hlutverk í tveimur bíómynd
um, annars vegar Útlaganum eftir
Ágúst Guðmundsson þar sem hann
lék Ingjaldsfíf lið, og hins vegar í
Jóni Oddi og Jóni Bjarna eftir Þráin
Bertelsson þar sem hann lék sund
laugarvörðinn. Bæði hlutverk vöktu
athygli og í kjölfarið byrjaði boltinn
að rúlla.
„Þar byrjaði samstarf okkar
Þráins, þar hittumst við í fyrsta
skipti. Þá einhvern veginn blasti
þessi braut svona við mér og það
varð framhald á henni án þess að
ég endilega veldi það. Ég fæ náttúr
lega annað aðalhlutverkið í Nýju lífi
sem verður gríðarlega vinsæl mynd,
slær í gegn og gengur í bíó lengur en
nokkurn mann hafði órað fyrir. Svo
bara hver myndin á fætur annarri,“
segir Karl Ágúst.
Upphafið að Spaugstofunni
Skömmu eftir að Karl Ágúst lék í
Löggulífi 1985, síðustu myndinni
í þríleik þeirra Þráins Bertelssonar
og Eggerts Þorleifssonar, varð svo til
fyrsti vísirinn að því verkefni sem
hann er þekktastur fyrir, Spaugstof
unni. Hann kveðst ekki hafa þekkt
tilvonandi kollega sína mikið fyrir
en kannaðist við þá úr Leiklistar
skólanum og bransanum.
Feðgarnir
Karl Ágúst og
Eyvindur leika
á móti hvor öðr-
um í sýningunni
Fíflinu. Kona
Karls, Ágústa
Skúladóttir, sér
um leikstjórn.
Fréttablaðið/
anton brink
Karl segir fíflið
vera í senn
heimspeking,
samfélagsrýni
og gagnrýnanda
valdsins.
Mynd/María
björt
Við vorum kærðir fyrir
guðlast, við vorum
kærðir fyrir klám, við
fengum á okkur
hótanir um lögbann og
vorum sakaðir um
ofsóknir á ákveðnu
fólki í valdakerfinu.
Ég tók
sjálfan mig
ofsalega
alvarlega
sem lista-
mann
þegar ég
var nýút-
skrifaður.
„Þegar ég er í miðjum tökum á
Löggulífi þá hringir þáverandi dag
skrárstjóri RÚV sjónvarps í mig og
spyr hvort ég sé til í að taka að mér
Áramótaskaupið. Ég náttúrlega jafn
bilaður og ég var og með þessa ofur
trú á sjálfum mér segi bara já við
því og hélt ég væri ráðinn og myndi
skrifa og leikstýra Áramótaskaup
inu án þess að hafa nokkurn tíma
komið nálægt slíkri vinnu, korn
ungur maður og bara rétt skriðinn
úr skóla.“
Skömmu síðar urðu svo dag
skrárstjóraskipti á RÚV og Hrafn
Gunnlaugsson tók við starfinu. Að
sögn Karls sá Hrafn strax að það var
ekkert vit í því að ráða svo óreyndan
mann til að stýra skaupinu og fékk
hann því Sigurð Sigurjónsson sem
leikstjóra í stað Karls, en Sigurður
hafði þá þegar tekið þátt í fjöl
mörgum Áramótaskaupum. Sig
urður hafði svo samband við Karl
og bauð honum að gerast partur af
höfundateyminu.
„Ég varð auðvitað alveg grjótfúll
í smástund en fljótur að jafna mig
á því og þáði það. Þá varð til þessi
hópur; ég, Siggi, Örn Árnason, Rand
ver Þorláksson og Laddi. Við byrj
uðum að vinna saman og vinnan
var alveg óheyrilega skemmtileg. Við
skemmtum okkur öllum stundum
þótt við værum meira og minna að
vinna fram á nætur og stundum á
mjög óheilbrigðum tíma. Fljótlega
þegar fór að nálgast upptökur og
útsendingu á skaupinu var hópurinn
farinn að kalla sig Spaugstofuna.
Þess vegna lít ég þannig á að Spaug
stofan sé stofnuð í kringum Ára
móta skaupið 1985,“ segir Karl Ágúst.
Árið eftir var Karl svo ráðinn
leikstjóri Áramótaskaupsins 1986
og samhliða því náði hann að selja
Hrafni Gunnlaugssyni þá hugmynd
að sami hópur myndi gera fjóra
stutta grínþætti samhliða undir
nafninu Spaugstofan. Hrafn tók vel
í hugmyndina og þættirnir voru
gerðir og sendir út 1987.
Hafnað af Stöð 2
Nokkrum árum síðar tóku félag
arnir svo aftur upp þráðinn en í
millitíðinni höfðu þeir Karl Ágúst,
Örn Árna og Siggi Sigurjóns verið
með útvarpsþætti á RÚV sem hétu
Sama og þegið, þar sem þeir fóru
yfir fréttir vikunnar í gamansömum
stíl. Félagarnir fengu þá hugmynd
að gera sams konar þætti fyrir sjón
varp sem þeir kynntu fyrir Stöð 2
og var hugmyndinni tekið vel fyrst
um sinn.
„Síðan erum við mættir upp á
Stöð 2 til þess að skrifa undir samn
ing. Samningurinn er tilbúinn
og það eina sem vantar á hann er
nafnið á þættinum. Við vorum með
hugmynd að nafninu Imbakassinn,
það þótti svona ekki nógu jákvætt
og ekki hvetjandi til áhorfs. Þann
ig að við erum beðnir um að hugsa
þetta aðeins betur og gefum okkur
korter, tuttugu mínútur til að pæla
í þessu. Við sitjum og spjöllum og
á sama tíma er dagskrárstjórinn
kallaður út úr fundarherberginu.
Hann er í burtu í nokkrar mínútur
og þegar hann kemur inn aftur segir
hann: „Strákar, það er búið að blása
þetta af.““
Karl Ágúst segir þetta hafa komið
þeim í opna skjöldu enda sátu þeir
hreinlega með pennana í höndun
um og áttu bara eftir að skrifa undir.
„Þannig að við fórum svona
heldur þungbúnir út af þessum
fundi og héldum bara áfram okkar
daglega basli. Svo leið líklega eitt
ár og þá vorum við í einhverjum
stórum peningalegum vandræð
um. Þá vorum við farnir að leigja
vinnuhúsnæði ásamt Randver og
Pálma. Það þurfti að borga leigu og
peningar lágu ekkert alltaf á lausu.
Á endanum fórum við á fund með
Hrafni Gunnlaugssyni, dagskrár
stjóra RÚV, og buðum honum þessa
sömu hugmynd. Hann tók viðbragð
og sagði: „Þetta er skemmtilegt, ég
skal láta ykkur hafa fjóra þætti og ef
þeir heppnast vel skulum við skoða
hvort það verði framhald.“ Við
gerðum fjóra þætti á fjórum vikum
og svo var ekki hægt að stoppa.“
Ákvörðun RÚV kom á óvart
Spaugstofan varð svo eins og allir
þekkja einn vinsælasti grínþáttur
Íslands og var á dagskrá RÚV með
hléum til 2010 þegar þeir félagar
færðu sig yfir á Stöð 2 þar sem þeir
voru sýndir til 2014. Árið 2015 fögn
uðu Spaugstofumenn þrjátíu ára
starfsafmæli sínu með kveðjusýn
ingunni Yfir til þín í Þjóðleikhúsinu.
Alls voru 472 þættir framleiddir af
Spaugstofunni á yfir þrjátíu árum.
„Það kom mjög mörgum á óvart
að RÚV skyldi taka þessa ákvörð
un. Þeir höfðu að vísu aldrei viljað
ákveða neitt fram í tímann. Þeir
vildu alltaf sjá til, þannig að undir
vorið þegar vetrardagskránni var
að ljúka þá spurðum við alltaf hvort
þeir ætluðu að hafa okkur aftur
næsta vetur. Við fengum aldrei svör
við því nema: „Við skulum athuga
málin.“ Svo fengum við ekki að vita
þetta fyrr en bara kannski mánuði
áður en við áttum að byrja að vinna.
Fyrir vikið var ég aldrei fastráðinn
neins staðar og hafði í raun ekki
trygga vinnu nema í mesta lagi níu
mánuði fram í tímann,“ segir Karl
Ágúst.
Haldið þið félagarnir enn sam-
bandi?
„Við reynum að drekka kaffi
saman helst einu sinni í viku. Það
heppnast ekki alltaf en oft. Það fer
alltaf gríðarlega vel á með okkur.
Það er náttúrlega mikið lán að þessi
hópur skyldi vera svona í laginu,
hann gat alveg verið allt öðruvísi,
en við náðum ofsalega vel saman.
Við vorum ekkert alltaf sammála en
það varð samt aldrei til þess að við
gætum ekki átt eðlileg og heilbrigð
samskipti og skilað öllum verkum
þannig að við værum sáttir við.“
Vill votta leikhúsinu virðingu
Spurður um hvað taki við nú þegar
hann hyggst kveðja leiksviðið seg
ist Karl ætla að fara á fullt í skrifin.
Hann hefur alla tíð sinnt skrifum og
þýðingum samhliða leiklistinni og
þýddi til að mynda Hobbitann eftir
J.R.R. Tolkien ásamt föður sínum
Úlfi Ragnarssyni 1978. Karl hefur
auk þess gegnt stöðu formanns Rit
höfundasambands Íslands frá árinu
2018.
„Ég er náttúrlega búinn að vera
höfundur jafn lengi og leikari og
jafnvel enn lengur. Höfundurinn
hefur oft þurft að víkja fyrir leik
húsmanninum því það eru hlutir
sem heimta algjöran forgang. En
ég hef hug á að gefa rithöfundinum
fullt svigrúm og fara að sinna hans
störfum ótruflað,“ segir hann.
Hvað er svo næst á döfinni?
„Það sem gerist næst er það að
við Ágústa erum að fara að vinna
í Þjóðleikhúsinu sýninguna Hvað
sem þið viljið eftir Shakespeare
þar sem ég geri nýja þýðingu og við
gerum saman nýja leikgerð. En svo á
ég bara svo margar skúffur af hand
ritum sem ég hef ýmist byrjað á og
sum þeirra jafnvel fullskrifað en
aldrei komið frá mér. Nú þarf ég að
fara að opna þessar skúffur og for
gangsraða einhvern veginn. Það er
nóg af verkefnum fram undan.“
En þótt Karl Ágúst ætli að kveðja
sviðið sem leikari segist hann ekki
ætla að segja skilið við leikhúsið
fyrir fullt og allt: „Ég er ekkert endi
lega að segja skilið við leikhúsið en
ég vil votta því þessa virðingu mína
og ég vil enda leikaraferilinn minn
á viðeigandi hátt og á þann hátt sem
ég kýs sjálfur.“ n
30 Helgin 3. september 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið