Fréttablaðið - 03.09.2022, Síða 33
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 3. september 2022
Ólafía Kvaran, hjúkrunarfræðingur og heimsmeistari í Spartan, segir að þurrkublettir hafi horfið eftir að hún byrjaði að taka inn AstaSkin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þurrkublettirnir horfnir
og húðin mun heilbrigðari
Ólafía Kvaran, sem er 52 ára, leggur mikla áherslu á að viðhalda góðri heilsu og heilbrigð-
um lífsháttum. Hún stundar íþróttir af kappi og finnst bætiefni skipta gríðarmiklu máli til
að styðja við heilsu og útlit. Hún segir að AstaSkin sé best geymda leyndarmálið.
Ólafía Kvaran, hjúkrunarfræð
ingur og heimsmeistari í Spartan
hindrunarhlaupi, hugar vel að
því hvaða bætiefni hún notar til
að ná hámarksárangri í íþróttum
og einnig hvaða bætiefni hafa
styrkt almenna húðheilsu hennar.
Ólafía er búin að taka AstaSkin
daglega í nærri 4 ár. „Fyrst tók ég
AstaSkin til að auka endurheimt
eftir æfingar og það hefur virkað
afar vel á kroppinn minn en stóri
bónusinn var sá að ég finn að
húðin er mun heilbrigðari. Þurrku
blettir hafa horfið og glansinn í
andlitinu minnkað til muna. Ég hef
aldrei tekið mikinn lit í sól og hef
ávallt verið viðkvæm en eftir að ég
byrjaði að taka AstaSkin er ég farin
að taka lit og hann endist lengur.“
Ólafía bætir við að hún hafi
orðið vör við mörg önnur jákvæð
áhrif. „Rakinn í húðinni er mun
meiri en áður. Ég vann lengi
vel sem hjúkrunarfræðingur á
skurðstofu og því fylgir mikill
handþvottur og skrúbb. Áður en
ég tók AstaSkin var ég háð hand
áburði vegna sprunginnar húðar á
höndum en í dag nota ég hand
áburð örsjaldan. Þess má geta að
áður fyrr valdi ég húðvörur fyrir
viðkvæma húð en nú þarf ég þess
ekki lengur því húðin mín hefur
aldrei verið eins heilbrigð og
sterk.“
Bjórhlaupið fer fram í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
sandragudrun@frettabladid.is
Bjórhlaup RVK Brewing CO fer
fram í Nauthólsvík í dag. Hlaupin
verður bjórmíla sem er um 1,6
kílómetrar. Þrjár drykkjarstöðvar
eru í hlaupinu og keppendur
verða að ljúka einum bjór á hverri
stöð. Bjórinn er léttur og ferskur
og bruggaður sérstaklega fyrir
hlaupið. Bjórhlaupið snýst ekki
bara um að vera fyrstur í mark
heldur að hafa gaman og koma í
mark með vinum sínum. Keppend
ur hafa hingað til mætt í skemmti
legum búningum og vinahópar oft
tekið sig saman um búninga sem
setja svip sinn á þetta skemmtilega
hlaup.
Fjör í Nauthólsvík
Þau sem hafa áhuga á að taka þátt
og hafa ekki enn skráð sig geta gert
það á bjorhlauprvk.is. Dagskráin
hefst klukkan 14.00 þar sem DJ
Hlynur Jakobs þeytir skífum.
Upphitun hefst klukkan 15.30 og
hlaupið 16.00. Klukkan 17.00 er
svo verðlaunaafhending. Aðstand
endur keppninnar segja að til að
hlaupa til sigurs þurfi að ná hinu
fullkomna jafnvægi milli hlaupa
forms og hæfileikans til að inn
byrða vökva á stuttum tíma. Þetta
er fyrsta bjórhlaupið frá árinu 2019
þar sem þurfti að fresta því tvö ár í
röð, en þá tóku 600 hlauparar þátt.
Það hafa því eflaust mjög margir
hlauparar beðið lengi eftir þessum
viðburði og óhætt er að fullyrða
að það verður rífandi stemning í
Nauthólsvíkinni í dag. n
Bjórhlaupið snýr
loksins aftur