Fréttablaðið - 03.09.2022, Page 44

Fréttablaðið - 03.09.2022, Page 44
Sjómannadagsráð (SDR) leitar að framkvæmdastjóra eignasviðs. Helstu verkefni þess eru umsjón með fasteignum SDR og viðhaldi þeirra, rekstur leigufélagsins Naustavarar og umsjón með nýbyggingum. Framkvæmdastjóri eignasviðs heyrir undir stjórn Sjómannadagsráðs og starfar náið með formanni hennar. Helstu verkefni: • Ábyrgð á daglegri stjórnun og rekstri eignasviðs SDR. • Ábyrgð á viðhaldi fasteigna SDR. • Ábyrgð á rekstri og þróun leigufélagsins Naustavarar. • Ábyrgð á nýbyggingaframkvæmdum á vegum SDR. • Umfangsmikið samstarf og samskipti við innri og ytri hagaðila. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf, önnur menntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi. • Reynsla af nýframkvæmdum og/eða viðhaldi fasteigna. • Reynsla og færni í stjórnun, rekstri og samningagerð. • Leiðtogahæfileikar og rík samskiptahæfni. • Greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga. • Frumkvæði, skilvirk vinnubrögð, yfirsýn og lausnamiðuð viðhorf. • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknarfrestur er til og með 13. september næstkomandi. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is). Framkvæmdastjóri eignasviðs Sjómannadagsráð var stofnað af sjómanna­ félögum í Reykjavík og Hafnarfirði fyrir u.þ.b. 85 árum. Í dag rekur SDR m.a. Hrafnistu­ heimilin, hjúkrunarheimili fyrir aldraða, í fimm sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Íbúar Hrafnistuheimilanna eru um 800 talsins, en auk þeirra á SDR m.a. leiguíbúðir Naustavarar, Happdrætti DAS, Hraunborgir og húsnæði Laugarásbíós. Fasteignir í eigu SDR telja um 100.000 fermetra. Naustavör er óhagnaðardrifið leigufélag sem var stofnað árið 2001 í þeim tilgangi að byggja, og bjóða upp á sérútbúið húsnæði, með aðgengi að þjónustu og afþreyingu sem hentar sérstaklega vel fólki frá 60 ára aldri. Leiguíbúðir Naustavarar eru um 350 talsins. Fjarskiptastofa er sjálfstæð eftirlitsstofnun á sviði fjarskipta og netöryggis. Hún gegnir hlutverki landstengiliðs í netöryggismálum og leiðir samhæfingarvettvang eftirlits­ stjórn valda hvað varðar eftirlit með net­ og upplýsingaöryggi mikilvægra innviða hér á landi. Stofnunin er samhæfingaraðili þegar öryggisatvik eiga sér stað og ber að horfa til almannahagsmuna þegar kemur að fjarskipta­ öryggi. Stofnunin vinnur að framgangi þessara verkefna með framkvæmd áhættumata á fjarskiptamarkaði, úttekta á stjórnskipulagi upplýsingaöryggis á grundvelli fjarskiptalaga og laga um öryggi net­ og upplýsingakerfa mikilvægra innviða og útgáfu leiðbeinandi tilmæla. Hjá Fjarskiptastofu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði fjarskipta og netöryggis. Fjarskiptastofa leggur áherslu á að starf s­ menn fái tækifæri til að sinna áhugaverðum verkefnum, þróast í starfi og viðhalda jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Umsjón með starfinu hafa Jensína Kristín Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Garðar Ó. Ágústsson (gardar@vinnvinn.is). Sérfræðingar á sviði eftirlits með öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða Fjarskiptastofa leitar að sérfræðingum í eftirlit með net- og upplýsingaöryggi mikilvægra innviða á nýju sviði stafræns öryggis hjá stofnuninni. Um er að ræða spennandi starf í nýjum og vaxandi málaflokki innan stofnunarinnar sem nær til framtíðar fjarskiptaþjónustu og þjónustukerfa mikilvægra innviða hér á landi. Helstu verkefni og ábyrgð: • Ábyrgð á framkvæmd úttekta á sviði net- og upplýsingaöryggis fjarskiptafyrirtækja og mikilvægra innviða. • Þátttaka í samráðshópi stjórnvalda um eftirlit á grundvelli laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða. • Aðstoð við framkvæmd eftirlits annarra stjórnvalda á sviði net- og upplýsingaöryggis eftir því sem við á. • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði net- og upplýsingaöryggis eftir því sem við á. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða sambærilegu er skilyrði. • Þekking á stöðlum á sviði stjórnskipulags upplýsingaöryggis, þ.m.t. ISO 27001. Reynsla í beitingu þeirra er kostur. • Færni í að greina og meta upplýsingar tengdu stafrænu öryggi. • Samstarfs- og samskiptahæfileikar, jákvæðni, framsækni og heilindi. • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsóknarfrestur er til og með 15. september nk. Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.