Fréttablaðið - 03.09.2022, Blaðsíða 44
Sjómannadagsráð (SDR) leitar að framkvæmdastjóra eignasviðs. Helstu verkefni þess eru
umsjón með fasteignum SDR og viðhaldi þeirra, rekstur leigufélagsins Naustavarar og umsjón
með nýbyggingum. Framkvæmdastjóri eignasviðs heyrir undir stjórn Sjómannadagsráðs og
starfar náið með formanni hennar.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á daglegri stjórnun og rekstri eignasviðs SDR.
• Ábyrgð á viðhaldi fasteigna SDR.
• Ábyrgð á rekstri og þróun leigufélagsins Naustavarar.
• Ábyrgð á nýbyggingaframkvæmdum á vegum SDR.
• Umfangsmikið samstarf og samskipti við innri og ytri hagaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf, önnur menntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi.
• Reynsla af nýframkvæmdum og/eða viðhaldi fasteigna.
• Reynsla og færni í stjórnun, rekstri og samningagerð.
• Leiðtogahæfileikar og rík samskiptahæfni.
• Greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga.
• Frumkvæði, skilvirk vinnubrögð, yfirsýn og lausnamiðuð viðhorf.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 13. september næstkomandi.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Auður
Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) og
Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is).
Framkvæmdastjóri eignasviðs
Sjómannadagsráð var stofnað af sjómanna
félögum í Reykjavík og Hafnarfirði fyrir u.þ.b.
85 árum. Í dag rekur SDR m.a. Hrafnistu
heimilin, hjúkrunarheimili fyrir aldraða, í fimm
sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og í
Reykjanesbæ. Íbúar Hrafnistuheimilanna eru um
800 talsins, en auk þeirra á SDR m.a. leiguíbúðir
Naustavarar, Happdrætti DAS, Hraunborgir og
húsnæði Laugarásbíós. Fasteignir í eigu SDR
telja um 100.000 fermetra.
Naustavör er óhagnaðardrifið leigufélag sem
var stofnað árið 2001 í þeim tilgangi að byggja,
og bjóða upp á sérútbúið húsnæði, með
aðgengi að þjónustu og afþreyingu sem hentar
sérstaklega vel fólki frá 60 ára aldri. Leiguíbúðir
Naustavarar eru um 350 talsins.
Fjarskiptastofa er sjálfstæð eftirlitsstofnun
á sviði fjarskipta og netöryggis. Hún gegnir
hlutverki landstengiliðs í netöryggismálum
og leiðir samhæfingarvettvang eftirlits
stjórn valda hvað varðar eftirlit með net og
upplýsingaöryggi mikilvægra innviða hér á
landi. Stofnunin er samhæfingaraðili þegar
öryggisatvik eiga sér stað og ber að horfa til
almannahagsmuna þegar kemur að fjarskipta
öryggi. Stofnunin vinnur að framgangi þessara
verkefna með framkvæmd áhættumata á
fjarskiptamarkaði, úttekta á stjórnskipulagi
upplýsingaöryggis á grundvelli fjarskiptalaga
og laga um öryggi net og upplýsingakerfa
mikilvægra innviða og útgáfu leiðbeinandi
tilmæla.
Hjá Fjarskiptastofu starfar fjölbreyttur hópur
sérfræðinga á sviði fjarskipta og netöryggis.
Fjarskiptastofa leggur áherslu á að starf s
menn fái tækifæri til að sinna áhugaverðum
verkefnum, þróast í starfi og viðhalda
jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Umsjón með starfinu hafa Jensína Kristín
Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og
Garðar Ó. Ágústsson (gardar@vinnvinn.is).
Sérfræðingar á sviði eftirlits
með öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða
Fjarskiptastofa leitar að sérfræðingum í eftirlit með net- og upplýsingaöryggi mikilvægra innviða
á nýju sviði stafræns öryggis hjá stofnuninni. Um er að ræða spennandi starf í nýjum og vaxandi
málaflokki innan stofnunarinnar sem nær til framtíðar fjarskiptaþjónustu og þjónustukerfa
mikilvægra innviða hér á landi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Ábyrgð á framkvæmd úttekta á sviði net- og upplýsingaöryggis fjarskiptafyrirtækja
og mikilvægra innviða.
• Þátttaka í samráðshópi stjórnvalda um eftirlit á grundvelli laga um öryggi net- og
upplýsingakerfa mikilvægra innviða.
• Aðstoð við framkvæmd eftirlits annarra stjórnvalda á sviði net- og upplýsingaöryggis
eftir því sem við á.
• Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði net- og upplýsingaöryggis
eftir því sem við á.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk-, tækni- eða tölvunarfræði
eða sambærilegu er skilyrði.
• Þekking á stöðlum á sviði stjórnskipulags upplýsingaöryggis, þ.m.t. ISO 27001.
Reynsla í beitingu þeirra er kostur.
• Færni í að greina og meta upplýsingar tengdu stafrænu öryggi.
• Samstarfs- og samskiptahæfileikar, jákvæðni, framsækni og heilindi.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 15. september nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.