Fréttablaðið - 03.09.2022, Síða 78

Fréttablaðið - 03.09.2022, Síða 78
Nýjasta mynd Ásu Helgu Hjörleifsdóttur, Svar við bréfi Helgu, er aðlögun sam- nefndrar skáldsögu sem sló rækilega í gegn fyrir um áratug. Aníta Briem, Hera Hilmarsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson fara fyrir öflugum leikhópi verksins. Sumar kvikmyndir tengja áhorfendur við sína eigin sögu. Sum verk gera þetta á hátt sem kemur jafn- vel aftan að þeim. Í Svari við bréfi Helgu er verklag og verk- kunnátta fyrri alda mjög áberandi, þar sem sagan gerist í sveit á fjórða áratug síðustu aldar. Þekking sem hefur glatast flestum nútíma Íslend- ingum. Þorvaldur Davíð með orf og ljá „Þetta eru forréttindin við starfið, að fá tækifæri til að prófa nýja hluti. Að ímynda sér að vera manneskja, búandi á þessum stað, í þessari sveit fyrir þetta mörgum árum síðan,“ segir Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari um vinnubrögð sem hann þurfti að tileinka sér fyrir hlutverk aðalpersónunnar Bjarna, sem er bóndi á Ströndum. Í myndinni má sjá Þorvald slá með orfi og ljá og meðhöndla sauðfé við fjárkláða, svo að dæmi séu nefnd. Þorvaldur segist hafa fengið smjörþefinn af sveitalífinu í gegnum leikstjórann Ásu, þegar hann vann við kvikmynd hennar Svaninn sem tekin var upp í heimasveit leik- stjórans í Svarfaðardal. „Já, þegar þú ert í sveit berðu þig öðruvísi, ef þú ert vinnandi maður á sveitabæ. Til að það sé trúverðugt á skjánum þarftu sjálfur að fara í gegnum ferlið að trúa því að þú getir gert þetta,“ segir Þorvaldur. Tilfinningalegt handrit „Ég held að girðingin standi enn þá, sem þú reistir,“ svarar Ása glettin. Leikstjórinn vill þó meina að ekki allt hafi breyst þó að heimurinn sé breyttur og sameiginlegan þráð megi finna kynslóð fram af kynslóð. „Mér finnst áhugavert, þar sem þetta er fyrsta períódumyndin sem ég geri, að skoða að hvaða leyti tilfinningalíf okkar er eins,“ segir hún. „Hver öld, hver tími og staður er með ákveðið tilfinninga- legt handrit sem þú mátt fylgja eða getur fylgt. Mig langaði með þess- ari mynd að gera það sem kallast á ensku emotionally contemporary period film, mynd sem væri til- finningalega nútímaleg,“ segir Ása og bætir við að þannig sé sagan ekki mjög framandi þó að hún sé sett í handrit þess tíma. Hún nefnir að ýkt dæmi um slíkt sé verðlauna- mynd Yorgos Lanthimos The Favo- urite. „Mér finnst það spennandi. Ég fór að hugsa um ömmur mínar og afa, og langömmu mína sem var sex barna móðir og ekkja 36 ára. Fólk var að díla við sömu hlutina og átti góða og slæma daga í hjónabandinu, var í tilvistarkreppu og óvisst um næstu skref í lífinu,“ segir hún. Helga í bókinni er auðvitað Helgan hans Bjarna. Mér fannst ég verða að gefa Helgu sína eigin rödd. Hera Hver öld, hver tími og staður er með ákveðið tilfinningalegt handrit sem þú mátt fylgja eða getur fylgt. Ása Helga Hjörleifsdóttir, leikstjóri Nútímatilfinningar og trúverðug vinnubrögð Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Aníta Briem og Hera Hilmarsdóttir fara fyrir öflugum leikhópi í nýjustu kvikmynd Ásu Helgu Hjörleifsdóttur, Svari við bréfi Helgu. Fréttablaðið/Ernir aðra rödd inn sem var svona, okkar Helga. Líka af því að Helga í bókinni er auðvitað Helgan hans Bjarna. Mér fannst ég verða að gefa Helgu sína eigin rödd,“ segir Hera. Tengir sjálf við allar persónur Ása segir að þegar hún hafi byrjað að aðlaga verkið hafi ástarþrí- hyrningurinn verið beinagrindin í handritinu. Bjarni, Helga og Unnur. Allir karakterar þyrftu þannig að hafa eitthvað til síns máls, eins og mótrök. „Þessir karakterar eru líka erki- týpur og standa fyrir ákveðin element. Helga er frelsi og hreyfing. Bjarni er jörðin og rótin,“ bætir Hera við. Orgelsena spunnin á staðnum Blaðamaður spyr hvort persóna Unnar, sem Aníta Briem leikur, standi mögulega fyrir hefðina. Ása segir að í því samhengi megi nefna senu þar sem persóna Unnar leikur á orgel. Senan kom til í spuna á setti. Upphaf lega hafi Ása og töku- maðurinn séð Anítu spila á orgelið milli sena og tekið það upp. „Svo vorum við í raunverulegum réttum í Árneshreppi og ég heyri Anítu syngja Blessuð sértu sveitin mín, eins og hún sé bara fædd og alin þarna upp,“ segir Ása. „Aníta er ættuð að norðan og það er fullt af prestum í ættinni hennar, og ég sá allt í einu einhverja hlið, karakter og hugsaði: Já, þetta! Þetta er svo- lítið Unnur. Prestsdóttirin Unnur. Þá endurskrifaði ég senuna, eftir að hafa séð þetta. Og bað Anítu að spila Blessuð sértu sveitin mín á orgelið.“ Blaðamaður sló á þráðinn til í Anítu Briem, sem er þessa dagana önnum kafin við tökur á nýjum sjónvarpsþáttum í leikstjórn Katr- ínar Björgvinsdóttur, As Long as We Live. Aníta skrifar handrit þáttanna og með önnur hlutverk fara, meðal annarra, Hilmir Snær og Martin Wallström. Áhugaverður leiðangur Í fyrstu las Aníta fyrir hlutverk Helgu, en síðan bað Ása hana að lesa fyrir hlutverk Unnar. „Þá útskýrði hún fyrir mér hvaða sögu hún vildi segja, sem var þessi þríhyrningur. Í bókinni er þetta meira saga Helgu og Bjarna, en við erum að kanna aðeins út fyrir það svæði,“ segir Aníta. Aníta bendir á að persóna Unnar sé í stöðu sem margar konur voru í á þeim tíma, sem giftust í annan landshluta og sáu jafnvel fjölskyldu sína aldrei aftur. „Hún er búin að slíta sig frá sinni jörð og fjölskyldu, kemur vestur og á engan að nema hann. Þess vegna er lífið í húfi fyrir þau öll, alltaf,“ segir hún. „Bjarni er fastur á milli þess hvað það er að fylgja hjartanu, og að fylgja því sem er hans fjölskylda og arfleifð, og hver hann er. Jörðin á hann og hans land og án þess veit hann ekki hver hann myndi verða.“ Aníta segir leitina að persónu Unnar hafa verið gefandi verkefni. „Það er áhugavert að fara í þennan leiðangur, hver Unnur er, sam- kvæmt þeim upplýsingum sem við höfðum úr bókinni. Eins og við nálgumst söguna er hún kona sem þjáist af alvarlegri áfallastreiturösk- un. En á þessum tíma voru engin orð yfir það og engin tækifæri til að díla við eitt eða neitt. Þar af leiðandi eru allir að burðast með sína sorg í sínu horni, og refsa sjálfum sér. Út úr því vex alls konar biturð og reiði, sársauki og sár sem ekki er talað um.“ nánar á Frettabladid.is Ekki hennar ær og kýr Hera svarar að þó að eldri kyn- slóðin ræði hlutina ekki endilega jafn opinskátt, sé oft um sömu stef að ræða. Hera fer með hlutverk Helgu, kon- unnar á næsta bæ sem Bjarni verður ástfanginn af. Helga og Bjarni eru bæði gift öðru fólki og persónurnar eiga í stormasömu forboðnu ástar- sambandi sem er meginstef mynd- arinnar. „Bjarni er algjör bóndi í mínum augum. Ég upplifði Helgu svona, eins og hún hefði draum um eitt- hvað stærra, borgina. Hún er meiri nútímakona,“ segir Hera. „Það er kannski það sem keyrir þau í sundur að miklu leyti,“ bætir Ása við. „Helga sér um býlið að miklu leyti sjálf, af því að Hallgrímur er alltaf í burtu. En þetta er samt ekki hennar passjón. Ég nálgaðist þessa vinnu þannig. Að þetta væru kannski ekki hennar ær og kýr,“ segir Hera og hlær. Þorvaldur segist sammála því og segir að það sé einmitt það sem persóna Bjarna elskar í fari Helgu. „Hún er öðruvísi og vill fara í borg- ina. Hugsar um bókmenntir og vill fara í huganum eitthvert annað,“ segir Þorvaldur. „Hann vill það líka en hann er svo bundinn jörðinni að hann getur ekki farið úr sveitinni. Þar er togstreitan.“ Vildi engu við bókina bæta Ása segir bók Bergsveins Birgisson- ar, sem myndin byggir á, vera mikið listaverk. „Og tungumál bókarinnar er stórkostlegt. Mér fannst ekkert við það að bæta í bíómyndinni. Ég var að skoða aðra hluti.“ „Þegar ég frétti af hugmyndinni um að gera kvikmynd úr þessu, þá hugsaði ég: Hvernig á það að fara að gerast?“ segir Þorvaldur og hlær. „En svo var ég með handritið hennar og var auðvitað búinn að vinna með henni áður, þannig að ég vissi að þetta væri í öruggum höndum.“ Hera segist hafa lesið bókina í fyrsta sinn þegar hún fékk hlut- verkið. „Mér fannst að einhverju leyti mitt hlutverk að koma með Nína Richter ninarichter @frettabladid.is 38 Helgin 3. september 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.