Fréttablaðið - 03.09.2022, Qupperneq 80
Þrátt fyrir að f lest okkar
hafi ekki efni á að klæðast
hátískufatnaði dagsdaglega
höfum við mörg gaman af
því að skoða slíkan fatnað
og láta okkur dreyma. Með
því að skoða stíl stjarnanna,
f letta tískublöðum og skrolla
á Instagram getum við fengið
innblástur og hugmyndir og
þannig þróað okkar eigin stíl.
birnadrofn@frettabladid.is
Harry Styles, Díana prinsessa,
Grace Jones, Rihanna og André
Leon Talley eiga það sameiginlegt
að vera það sem við köllum tísku-
fyrirmyndir.
Þau hafa öll sinn sérstaka stíl, eru
óhrædd við að klæðast hverju sem
er og sjálfstraust er einkennandi
fyrir þau öll. n
Lafði Diana Spencer, betur þekkt sem Díana prins-
essa, var aðeins 36 ára gömul þegar hún lést en er
þrátt fyrir stutta ævi sína af mörgum talin eitt mesta
tískuíkon sögunnar. Díana var þekkt fyrir tímalausan
og klassískan klæðnað en prinsessan er ein mest
myndaða kona heims. Þá var hún þekkt fyrir að tjá sig
í gegnum fatastíl sinn sem var litríkur og glaðlegur og
að sögn margra tískusérfræðinga afhjúpaði fatastíll
hennar hlýlegan og sjarmerandi persónuleika hennar.
Goðsögnin og brautryðjandinn André Leon Talley
lést í janúar á þessu ári, 73 ára gamall. Talley þykir
ólíkur öllum öðrum þegar kemur að klæðaburði,
tískuvitund og stíl. Hann á sér marga aðdáendur og er
einkenni hans stórir víðir kjólar, jakkar og úlpur.
Talley er sérfræðingur þegar kemur að tísku og
starfaði hann meðal annars sem listrænn stjórnandi
bandaríska Vogue og var hann lengi hægri hönd Önnu
Wintour, ritstjóra tímaritsins. Hann er sagður hafa
rutt brautina fyrir svartar fyrirsætur í tískubrans-
anum og aukið fjölbreytileika innan bransans.
Tónlistarkonan Rihanna frá Barbados er af mörgum í tískuheiminum kölluð kamelljónið. Þar er vísað til þess
að hún er afar fjölbreytt þegar kemur að fatavali, breytir oft um háralit og er gjörn á að koma fólki á óvart.
Rihanna er alltaf með puttann á púlsinum þegar kemur að tísku og er sögð geta borið hvaða föt sem er. Hún er
mikill áhrifavaldur, svo mikill að á tímabili var hún með skærrautt hár og í kjölfarið fór að bera á ungu fólki um
heim allan sem skartaði slíkum háralit. Rihanna elskar stórar gallabuxur, strigaskó og há stígvél á sama tíma og
hún ber galakjóla og kvenlegar flíkur afar vel. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Fáðu innblástur
frá stjörnunum
Fyrirsætan, leik- og söngkonan Grace Jones fæddist árið 1948 á Jamaíka.
Hún hefur í gegnum tíðina verið í miklu uppáhaldi hjá hönnuðum sem
vilja með hönnun sinni sýna óttaleysi og kynþokka og hefur hún verið
þeim mörgum innblástur. Grace Jones klæðist því sem hana langar og ber
fötin vel, þá er hún þekkt fyrir sjálfsöryggið sem af henni skín. Á áttunda
og níunda áratugnum var Grace Jones kölluð drottning diskósins og var
hún aðalpían í Studio 54 í New York.
Söngvarinn Harry Styles var afar ungur þegar hann varð heimsfrægur
með hljómsveitinni One Direction. Harry er þekkur fyrir djarfan fata-
stíl og undanfarið hefur hann vakið athygli fyrir að brjóta kynjaviðmið
þegar kemur að fatavali. Hann er ekki hræddur við að stíga út fyrir
ramma tvíhyggjunnar, klæðist kjólum, pilsum, korselettum og notar
naglalakk jafnoft og hann klæðist hefðbundnum jakkafötum, galla-
buxum og skyrtum. Harry Styles slær í gegn hvar sem hann kemur og
hefur mikil áhrif á klæðaburð og tískuvitund ungs fólks.
40 Helgin 3. september 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ