Fréttablaðið - 03.09.2022, Side 104
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Almenn bólusetning við hlaupa-
bólu hófst í byrjun árs 2020 og náði
til barna sem fæddust árið 2019
og síðar. Eldri dóttir mín er fædd
2014 svo við hjónin keyptum sjálf
bóluefni og létum bólusetja hana
eftir ábendingu frá vinkonu.
Svo liðu árin. Ronja fæddist
í október 2018 og fékk því ekki
„sjálfkrafa“ boð í bólusetningu.
Þegar við hjónin áttuðum okkur
á því reyndum við að bóka í bólu-
setningu síðasta vor en þá var ekki
til bóluefni. Það var eins og við
manninn mælt – nokkrum vikum
eftir að ég fór að leita að bóluefni
fékk Ronja hlaupabólu.
Hvílíkur djöfulsins viðbjóður.
Að þessi bólusetning hafi ekki
verið komin inn í kerfið fyrr er
ömurð. Barnið fékk um hundrað
blöðrur. Undir fæturna, milli
fingra, í augnkrókana, hársvörð
og nárann. Hún gat engan veginn
legið vegna sára. Hún fór tvisvar
á heilsugæsluna og endaði með
sýkingu uppi á barnaspítala –
einangruð, því hlaupabóla er mjög
smitandi.
Sýklalyf, sár grátur nótt eftir
nótt, hún hríðhoraðist og nú
mörgum mánuðum seinna er hún
enn með holur og ör eftir sárin.
Þessi veikindi tóku þrjár vikur.
Sparnaðurinn fyrir kerfið við að
bólusetja ekki fyrr en 2019 er ein-
hver – en hvað ætli þetta spítala-
brölt okkar hafi kostað, fyrir utan
sársaukann?
Ég hef verið temmilega mikið
með þetta á heilanum síðan og
spyr því, í tíma og ótíma, ókunn-
uga í sundi og á róló: „Jii, hvað hún
er skemmtilegt barn. Hvenær er
hún fædd? Já, 2018. Einmitt. Er hún
bólusett við hlaupabólu?“
Krossa svo fingur og vona að við
getum sleppt sem flestum börnum
við þessum andstyggilegu og
óþarfa veikindum. n
Barn fætt 2018
Tobbu
Marinós
n Bakþankar
Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is̵
VEITINGASTAÐURINN
Nú á matseðli ̵
gríptu tækifærið
1.095,-
Lambaloka
með frönskum
©
Inter IKEA System
s B.V. 2022
Reykjavík • Mörkin 3 | Akureyri • Undirhlíð 2
FJÖLSKYLDU
HÁTÍÐ
Í MÖRKINNI OG UNDIRHLIÐ
VEITINGAR • TILBOÐ • SKEMMTUN
Í D A G L A U G A R D A G