Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Blaðsíða 73
69
fræi, jlema það sé áSur vel þurrkað. Aldrei má brjóta land til
túnræktar, án þurrkunar, nema gróður þess sé hreinn þurr-
lendisgróður. Að þurrka landið fyrst eftir að það hefir verið
unnið, veldur venjulega margföldum kostnaði.
Þurrkað með opnum skurðum. Þar sem jarðvegur er óhent-
ugur fyrir lokræsi, verður að þurrka með opnum skurðum. Með
tilliti til allrar vélavinnu á landinu, er bezt að skurðimir séu
sem lengstir (spildurnar á milli þeirra langar). Sé hallinn mikill,
liggi skurðirnir meira eða minna þvert við honum. Millibil skurða
20—40 m. (oftast 25 m.); dýpi 100—150 cm. (ekki minna en 80
cm.); botnbreidd 30—40 cm. (á aðalskurðum, sem safna vatni
úr tveimur eða fleiri skurðum, sé botnbreiddin meiri); flái 1 : %
til 1 : % á mýrum, 1 : 1 til 1 : 1% í holta- eða melajörð (skurð-
fláinn þá þakinn eða sáð í hann grasfræi).
Þurrkað með lokrœsum (jarðræsi, hnausræsi). Skurðirnir, sem
lokræst er í, liggi eftir mesta halla landsins, svo ræsa megi í þá
frá báðum hliðum, nema hallinn sé það mikill að skurðirnir
„grafi sig“. Dýpt 140—200 cm. (aldrei minni en 120 cm. Því
blautara sem landið er, því dýpri skurði, en þeir grynnast þegar
landið sígur. Botnbreidd og flái eins og að ofan getur. Lokræsin
liggi meira eða minna þvert við mesta hallanum. Millibil þeirra
sé: í þurrviðrasveitum Norðurlands og á Héraði 14—20 m., ann-
arstaðar á landinu 8—16 m. (oftast 12 m.). Eftir því sem halli
landsins er meiri, því þéttari ræsi; á hallalitlu landi verka ræsin
bezt. Dýptin sé gjarnan 120—130 cm., en má vera 100 cm., þar
sem jarðdýpi leyfir ekki meira. Hættulaust getur verið að efri
endi ræsis sé aðeins 80 cm. á dýpt. Lengdin sé venjulega ekki
yfir 70—80 m., og þar sem mikið járn er í jörðu („mýrarauði")
er hyggilegra að fara ekki upp úr 40—50 m.
Þegar þurrka á mjög blauta mýri, skal líða að minnsta kosti
1 ár frá því að skurðum er lokið og þar til að byrjað er á lok-
ræsum. Vanur maður, fullgildur, grefur 12—16 rúmmetra í skurði
& 10 tímum, á góðu landi, og fullgerir 20—30 m. í hnausaræsum
á sama tíma.
Þurrkun garðlendis gerist með sama hætti og að ofan getur,
Aema hvað hún þarf að vera enn fullkomnari: Styttra á milh
skurða eða ræsa og dýpt þeirra fari ekki í lágmark.
ÁBURÐUR.
Uppskerumagnið fer að miklu eftir því að jarðvegurinn sé
naeringarríkur, hæfilega rakur og eigi of þéttur. Úr næringar-