Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Blaðsíða 94
90
fresti. Ef það er ekki gert, ryðgar járnið skjótt og eyðilegst. Vel
viðhaldið járnþak getur enzt ófyrirsjáanlega lengi. — Nægilegt
er að bika þök á hlöðum og útihúsum. Slíkt viðhaid kostar lítið
fé. — Timburþiljur innanhúss ætti ekki að mála. Nægir að þær
séu olíubornar.
Skipulag bœjarhúsa.
Látið húsin standa skipulega. Látið þau hafa hornrétta afstöðu
hvort til annars og dreifið þeim ekki út um tún og móa. Vel
getur farið á því að láta hliðar sumra þeirra liggja á sömu
Iínum. — íbúðarhúsið ætti ætíð að standa framar og vera nær
heimreið en aðrar byggingar, og dyr haughúsa og tæmingar
þurfa alltaf að vera í hléi og sem fjarst umferð. Hafið hlöðurnar
aldrei sambyggðar íbúðarhúsi. Af því stafar eldhætta og einnig
fer það illa. — Hafið hlið á görðum og girðingum traust og
smekkleg og með sterkum grindum, lokum og lömum. Traust og
myndarlegt hlið eykur svip heimilisins, enda jafnan merki um
hirðusemi.
Uppdrœttir.
Útvegið yður ætíð uppdrætti áður en þér farið að byggja.
Kynnið yður uppdrættina vel. Gerið yður ljóst um stærðir
herbergja, sambönd þeirra o. fl. Útvegið ykkur upplýsingar um
kostnaðarverð húsanna áður en þér ráðist í framkvæmdir, svo
tryggt sé að fyrirtækið verði viðráðanlegt. Teiknistofa landbún-
aðarins, sem er í Búnaðarbanka íslands í Reykjavík. gerir upp-
drætti að allskonar húsum fyrir bændur landsins. Munið að það
er skilyrði fyrir veitingum lána og styrkja, að teiknistofan hafi
fyrirfram samþykkt eða gert uppdrætti að þeim byggingum, sem
styrktar eru eða lánað til.
í handbók fyrir bændur er ritgerð um húsagerð — bls. 174—202
— og um rúmmál í peningshúsum — bls. 141—143.
Vér ráðum bændum til þess að lesa þessar greinar S. S.
Næringargildi nokkurra matvæla.
í matvælum eru næringarefni, sem eru nauðsynleg fyrir nær-
ingu manna Þeim má skipta í 6 flokka:
1. Vatn.
2. Eggjahvíta.
3. Fita.
4. Kolvetni.