Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Blaðsíða 80
76
þarf að sjá fyrir nægum áburði og vökvun þegar þörf gerist.
Garðinn á að hirða vel, illgresi má aldrei þróast þar að mun
eða fella fræ. í hverjum garði þarf að vera gróðrarstía eða
vermireitur, með því er hægt að lengja vaxtartíma jurtanna um
1—2 mánuði. Um matjurtarækt er hægt að lesa í bók Einars
Helgasonar, sem nefnist Hvannir, eða í bók Ingimars Sigurðs-
sonar, Um garðyrkjustörf o. s. frv.
Nú skulu taldar nokkrar matjurtir, sem þrífast hér:
Kál. — Blómkál þrífst víðast hvar um land mjög vel. Bezt af-
brigði eru: Erfurter Dværg og Snebold. Hvítkál þarf nokkru
lengri vaxtartíma. Góð tegund af því er Ditmarsker. Grœnkál
vex hér ágætlega um land allt. Góð tegund af því er lágvaxið,
smáhrokkið grænkál. — Auk hinna nefndu káltegunda má rækta
hér: Toppkál, rauðkál, savoykál o. fl. Allar káltegundir þurfa
næringarríkan jarðveg og mikinn áburð. Af búpeningsáburði
þarf að bera á gl. 10 þús. kg. eða 150 kg. garðáburð. Káli er
sáð í vermireiti og plönturnar gróðursettar í garðinn með 60 x
40 cm. bili. Grænkáli má þó sá í garðinn, það þolir að standa
úti fram á vetur.
Gulrófur. Gulrófum er annaðhvort sáð í garðinn eða gróður-
settar úr vermireit, sem er tryggara. Gulrófur þrífast bezt í
mildum jarðvegi, gott er að bera í rófnagarða gamlan búpen-
ingsáburð. Af garðáburði þarf að bera á um 100 kg. í gl. Bezt
afbrigði af gulrófum eru íslenzkar af gömlum stofni, gauta-
gulrófur og rússneskar gulrófur. Gulrófur eru látnar vaxa í
röðum með 60 x 30 cm. bili.
Jarðepli. Jarðeplin eru þýðingarmest allra matjurta sem hér
eru ræktaðar. Til neyzlu þurfa menn að hafa sem næst 2 tn. á
mann. Um ræktun þeirra skulu nefnd nokkur atriði. Jarðepli
þrífast bezt í sendnum jarðvegi, beztur áburður fyrir þau er
hrossatað eða sauðatað, kúamykju og sæþörunga má einnig nota.
Með sæþörungum og mykju er gott að bera á superfosfat um
60 kg. á gl. Af garðáburði þarf að bera á um 120 kg. Hér á
landi hafa verið reynd fjöldi jarðeplaafbrigða og er vandi um
að segja hvert þeirra er bezt Um það vantar ítarlegar tilraunir.
Hér skal bent á nokkur afbrigði, sem vel hafa reynzt. Af fljót-
vöxnum afbrigðum hafa Rosen og íslenzkar rauðar reynzt einna
beztar. Nokkuð seinvaxnari eru Marius, Up to date, Kerr’s Pink
eða Eyvindur, en lengstan vaxtartíma þarf Alpha, en sem gefur
mesta og bezta uppskeru, þar sem skilyrði eru góð. Mörg fleiri
afbrigði hafa verið ræktuð, en vér látum þetta nægja.