Vasakver : með almanaki fyrir árin 1939-1943 - 01.01.1939, Blaðsíða 87
83
ar bendingar um fóðrun kúa eru í fóðurfræði Halldórs Vilhjálms-
sonar, hana ættu allir kúaeigendur að lesa og læra. Á sumrum
sækja kýrnar fóður sitt í hagana. Ef þeir eru sæmilega grösugir,
sem mest af valllendisgróðri, þá er þetta hið ljúffengasta fóður,
sem hefir að geyma öll næringarefni sem kýrnar þarfnast og auk
þess ógn öll af vitaminum. Það er mjög þýðingarmikið atriði að
hagamir séu góðir. Um það þarf engu síður að hugsa en vetrar-
fóðrið.
Kýmar eiga að vera í loftgóðum og björtum fjósum, það þarf
að hirða þær vel, bursta þær og þvo, svo að aldrei sjáist á þeim
fis eða óhreinindi. Mjaltafólk þarf að vera þrifalegt, í tandur-
hreinum fötum. Þá er búið er að miólka, þarf að bera mjólkina
strax út úr íjósunum og setja hana þar sem kaldara er. Við
flutning á mjólkinni og alla meðferð á mjólkurbúum, þarf að
viðhafa hið mesta hreinlæti.
Mjólkin er hið ágætasta fæðuefni, sem hver maður ætti að
neyta af 1—2 lítra á dag. 1 líter af mjólk er talið að samsvari
að næringargildi: 12 eggjum, eða 536 gr. af nautakjöti, eða 1015
gr. af heilagfiski.
Leiðarvísir um fóðrun mjólkurkúa.
Eftir Pál Zophóníasson, ráöunaut.
1. Viðhaldsfóður kýrinnar fer eftir stærð hennar, hve langt er
síðan hún fékk kálf, hvemig fjósið og hirðingin er o. fl.
Meðalkýr íslenzk þarf um 7 kg. af meðaltöðu í viðhaldsfóður.
2. Afurðafóðrið er misjafnt, eftir mjólkur- og fitumagni mjólk-
urinnar.
3. Fóðurþörfina má finna í töflunni á bls. 86. Hana ber að
nota þannig: Finna fyrst í fremsta dálki fitumagnið, þá út-
undan í sama nythæð í kg. á dag og er þá fóðurþörfin niður-
undan.
Dæmi: Fitan er 3,6, nythæðin 11 kg. í fjórðu línu er fitan
milli 3,50 til 3,75 og á því þessi kýr heima á því bili. Næst nyt-
hæð í töflunni í 7. dálki nythæðar 10.8 og niðurundan því
sést að sú kýr þarf 15 kg. af töðu, 7 til viðhalds og 8 til
afurða.
Dæmi: Fitan er 4%, nythæðin 15 kg. í 6. línu eru 4—4,25
pg í 11. mjólkurdálki er nythæðin 15 kg., niðurundan því er
fóðurþörfin fyrir þessa kú 7 kg. til viðhalds, 8 kg. til mjólkur
og 2 kg. af fóðurbæti.