Fréttablaðið - 12.11.2022, Qupperneq 2
Mér fannst þetta bara
vera now or never.
Sigurður Bjóla
Fjörutíu ára fögnuður
Prúðbúnir gestir flykktust í gærkvöldi á Gala tónleika í Hörpu þar sem fagnað var fjörutíu ára afmæli Íslensku óperunnar. Þar steig landslið söngvara á svið,
meðal annars Sigrún Hjálmtýsdóttir og Kristján Jóhannsson, og fluttu þekktar perlur ásamt hljómsveit óperunnar. „Það eru allir fullir eftirvæntingar. Þetta
verður yndislegt kvöld,“ sagði Níels Thibaud Girerd, kynnir á tónleikunum, stuttu áður en þeir hófust. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sigurður Bjóla og Björgvin Gíslason hafa ekkert að fela. FRÉTTABLAÐIÐ/GARÐAR
Rokkgoðsagnirnar Björgvin
Gíslason og Sigurður Bjóla
hafa sent frá sér vínylplötuna
Jarðarbungu. Þetta er fyrsta
sameiginlega plata tónlistar-
mannanna tveggja sem hafa
fyrir löngu markað djúp spor í
íslenska tónlistarsögu.
odduraevar@frettabladid.is
TÓNLIST „Hann sendi mér hljóðbút
úr einu lagi sem var magnaður og við
slógum bara til,“ segir Björgvin Gísla-
son spurður að því hvernig til kom að
hann og Sigurður Bjóla Garðarsson,
vinir frá fornu fari, stilltu loksins
saman saman strengi sína. Björgvin
er einn þekktasti gítarleikari lands-
ins og Bjóla varð landsfrægur með
Spilverki þjóðanna og Stuðmönnum.
„Við erum búnir að þekkjast síðan
á áttunda áratugnum en höfðum
aldrei gert neitt saman og mér fannst
þetta bara vera now or never,“ segir
Bjóla.
Á plötunni Jarðarbungu eru tíu lög
sem Björgvin og Bjóla sömdu í félagi
og eru yrkisefnin margvísleg. Þeir
fengu svo landslið tónlistarmanna
sér til liðsinnis, meðal annars Mug-
ison og Dísu Jakobs. Vináttan skín í
gegn hjá þeim félögum.
„Við settumst niður og fengum
okkur kaffibolla hjá Sigga úti á
Stokkseyri. Þar horfðum við yfir
hafið og það varð eiginlega bara til
lag svona,“ segir Björgvin og smellir
fingrum. „Þegar svona staður stend-
ur til boða þá getur maður eiginlega
ekki verið annars staðar en þarna
við þessar aðstæður,“ segir Sigurður
Bjóla.
Platan kemur út í 300 merktum
eintökum og er hægt að panta hana
hjá þeim félögum á samnefndri vef-
síðu plötunnar.
„Ég hef aldrei búið til tónlist í
neinum öðrum tilgangi en að reyna
að búa til eitthvað fallegt og koma
einhverju jákvæðu til skila. Það er
mótorinn en ekki sölumennskan
eða tískustraumar eða að verða
frægur,“ segir Sigurður.
Björgvin tekur undir: „Við erum
náttúrulega ekkert að elta eitt eða
neitt.“ Sigurður segir nafn plöt-
unnar og titillagið vísa til kjarnans.
„Það er boginn, hann tekur stefnu,
minnir kannski á kvenlíkamann.
Konuna, móðurina, moldina, þetta
er kjarninn.“
„Þetta er bara eins og málverk og
þú sérð eitthvað út úr því,“ skýtur
Björgvin inn í. Þeir félagar hafa
þegar hafist handa við gerð næstu
plötu enda á sömu bylgjulengd.
„Við erum báðir jafn skrítnir,“
segir Björgvin hlæjandi.
„Maður stillir sig alltaf inn
saman,“ bætir Bjóla við. „Auðvitað
skeður það að svo kemur bara í ljós
að þessi mynd sem maður hefur gert
sér af fólki er bara ekki rétt. Þú hefur
ábyggilega komist að því með mig.
Þú hefur haldið að það væri eitthvað
spunnið í mig en svo bara hefur eitt-
hvað annað komið í ljós,“ segir hann
hlæjandi við Björgvin.
„Ég upplifði þig bara alveg eins
og ég ímyndaði mér,“ svarar Björg-
vin. „Þegar ég sendi þennan lag-
stúf þá hugsaði ég nú: Nei, æi, hann
nennir nú aldrei að gera neitt með
manni,“ svarar Bjóla Björgvini sem
svarar sjálfur til baka: „Það er þessi
fílingur, hann getur troðið þessum
tjakk upp í rassgatið á sér,“ og hlæja
þeir félagar báðir dátt. n
Óður tveggja goðsagna í
þrjú hundruð eintökum
Reiknaðu með meira
plássi á rymi.is.
Er hilluplássið
á þrotum?
erlamaria@frettabladid.is
SAMFÉLAG Daníel E. Arnarson,
framkvæmdastjóri Samtakanna
‘78, áætlar að samtökin hafi fengið
á tólftu milljón króna í styrki frá
fyrirtækjum og einkaaðilum und-
anfarna mánuði. Í vikunni styrkti
bílaumboðið Brimborg samtökin
um þrjár milljónir króna.
„Þetta er náttúrulega bara algjör
lífsbjörg. Við erum félagasamtök
og núllið er það sem við horfum
á. Allt okkar rekstrarfé er bundið í
samningum og verkefnum, bæði við
sveitarfélög og ríki. En að fá þessa
peninga, þá getum við farið í ein-
hver þróunarverkefni, kynningar-
starf og sértæk verkefni sem er ekki
verið að fjármagna annars staðar
frá. Það er algjörlega ómetanlegt.“
Umsvif Samtakanna ‘78 hafa auk-
ist til muna síðustu árin.
„Við erum að velta yfir 100 millj-
ónum á þessu ári, í samanburði
við 2016 þegar við veltum 16 millj-
ónum. Þetta er náttúrulega orðið
miklu stærra batterí og það er bara
aukin þjónusta. Þannig að þessir
styrkir halda okkur algjörlega á
floti,“ segir Daníel. n
Hafa fengið á tólftu milljón í fjárstyrki
Daníel Arnarson. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
kristinnpall@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Tímamót urðu í stríðinu
í Úkraínu í gær þegar heimamenn
náðu borginni Kherson á sitt vald
á ný frá Rússum. Albert Jónsson,
fyrrverandi sendiherra og prófess-
or í alþjóðastjórnmálum, segir þetta
til marks um slæma stöðu herflota
Rússa.
„Þó að staðan sé enn f lókin er
þetta enn eitt áfallið fyrir Rússa í
innrásinni. Þetta endurspeglar alla
þá veikleika innan rússneska hers-
ins sem hafa komið í ljós frá því að
innrásin hófst. Það virðist allt vera
í lamasessi hjá þeim,“ segir Albert,
spurður hvaða þýðingu þessi áfangi
hafi.
„Við skulum ekki gera lítið úr
því að þetta er gríðarlegt áfall fyrir
Rússa og framhald á fyrri hrakför,“
segir Albert. SJÁ SÍÐU 14
Enn eitt áfallið
fyrir her Rússa
Albert Jónsson er sérfræðingur í
utanríkis- og varnarmálum.
2 Fréttir 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ