Fréttablaðið - 12.11.2022, Side 26

Fréttablaðið - 12.11.2022, Side 26
bókin kom út. Ef þetta er ekki einsdæmi þá held ég að það séu alla­ vega ekki mörg tilfelli sem ég man eftir í sögunni þar sem þetta gerist svona hratt. Hann á nú allan heiður skilinn fyrir það,“ segir Ólafur, en hann man sterklega eftir því þegar Baltasar hafði upprunalega sam­ band við hann. „Hann hafði samband við mig og sagðist vilja gera bíómynd eftir henni. Ég man vel eftir þessu símtali þar sem hann sagði mér að ég hefði haldið vöku fyrir honum þangað til sjö um morguninn. Hann hafði verið að leita að svona sögu nokkuð lengi, en ekki fundið það sem hent­ aði eða snerti hann. En hann vildi ástarsögu sem Snerting einmitt er í grunninn,“ segir Ólafur. Oft getur það reynst erfitt fyrir höfunda að horfa upp á verkin sín taka breytingum fyrir hvíta tjaldið, en Ólafur segir að samstarf hans og Baltasars hafi gengið ótrúlega vel. „Við unnum mjög vel saman og við höfum sömu sýn á þetta verk. Það er verið að færa söguna yfir á tjald og þá verða menn að hnika til og sníða hlutina upp á nýtt. En þegar verið er að hugsa hvað virkar best og hvað virkar ekki og ekkert egó er fyrir, þá vinnur besta hug­ myndin og hægt er að henda á milli sín. Þetta hefur verið afskaplega farsælt samstarf,“ segir Ólafur, sem enn þá veitir ráðgjöf við ýmis atriði í myndinni og hefur verið kallaður til þess að veita innsýn sína í verkið meðan á tökum stendur. Heimur viðskiptanna Ólafur hefur einnig átt farsælan feril utan ritvallarins en hann fór út í viðskipti stuttu eftir að hann lauk námi í Bandaríkjunum frá Brandeis University í Massachusetts. „Svo þegar ég er búinn með námið vildi prófessorinn minn að ég héldi áfram og kláraði doktors­ nám, en ég hafði nú ekki eins mikið álit á mér sem raunvísindamaður og hann hafði. Þá var mér boðið fyrir tilviljun af forstjóra Sony í Banda­ ríkjunum að koma í starf,“ segir Ólafur, en starfið átti eftir að ganga ansi vel þar sem hann tók meðal annars þátt í þróun geisladisksins og notkun hans í tölvum og átti svo stóran þátt í að þróa fyrstu Play­ station­tölvuna. Viðskiptalífið tók hins vegar mik­ inn tíma frá ritstörfum hans og tíma með fjölskyldunni „Ég var alltaf að skrifa með á þessum árum, en sérstaklega á þeim árum þegar ég var að koma Play­ station í gang, þá var bara allt of lítill tími. Svo eftir að tölvan var komin út þá vorum við búin að eignast strákana okkar, í kringum ‘93 og ‘95, en ég var aldrei heima hjá mér,“ segir Ólafur sem sá fram á að hann kæmi ekki miklu ritstarfi í verk ef þetta héldi svona áfram. „Ég sá fram á að ég myndi lítið skrifa og sjá lítið af fjölskyldunni. Það gekk auðvitað allt saman mjög vel og það var mikill gangur, en síðan fór ég út úr fyrirtækinu árið 1996. Það voru aðstæður þá sem gerðu mér það auðveldara, þar sem sá sem réð mig var hættur og mér fannst ég búinn að vera þarna nógu lengi, enda búinn að vera þarna í tíu ár á þeim tíma.“ Breyttur taktur Ólafur hefur nú sagt skilið við við­ skiptin en hann starfaði allt til ársins 2018 hjá fyrirtækinu Time Warner, eftir tíma sinn hjá Sony. Hann segir þó að aðferðir hans við skrif hafi lítið breyst frá þeim tíma. „Ég skrifaði alltaf á morgnana og svo líka um helgar, en núna þarf ég ekkert að vera að flýta mér klukkan tíu á skrifstofuna. En ég skrifa samt ekki lengur en til hádegis. Ég þurreys mig. Ég er langbestur á morgnana og held mínu striki. Ég næ svona þremur til fjórum tímum og þá er það góður dagur. Það borgar sig alls ekki að reyna að mjólka þetta eitt­ hvað meira. Ég ber virðingu fyrir þeim sem geta skrifað lengur en ég er búinn eftir ákveðinn tíma.“ Mannlegt eðli Ólafur heldur nú ótrauður áfram ferli sínum rithöfundur, eftir að hafa sagt skilið við hraðan heim viðskipta og fjölmiðla. Hann segir þó að viðfangsefni sitt sé og verði áfram mannlegt eðli. „Það sem ég hef áhuga á er mann­ fólkið, líf okkar og hvernig við erum saman sett. Með öllum okkar kostum og göllum,“ segir Ólafur, en aðspurður hvort mannlegt eðli hafi breyst í aldanna rás eða hvort við séum enn sama fólkið, hefur hann þetta að segja: „Mannlegt eðli hefur kannski lítið breyst, en hegðun okkar hún breytist með tímanum og þeim gildum sem eru ríkjandi á hverjum tíma. Við sjáum það til dæmis í að það sem er forboðið í dag var ekkert forboðið fyrir kannski öld síðan. En við erum til dæmis þannig að þegar fólk flýgur yfir í annað tímabelti þá fer að segja til sín ferðaþreyta og svefnrugl í einhverja daga,“ segir Ólafur, sem telur mannfólk ekki endilega tilbúið fyrir nútímann með allri sinni tækni og þeim hraða sem honum fylgir. „Við erum ekkert búin til fyrir þetta. Tæknin er komin langt fram úr okkur. Við eigum í raun enn þá bara að labba. Ef við löbbuðum til Kaliforníu þá væri ekki neitt ferðarugl og f lugþreyta þegar við kæmum þangað.“ Ólafur segir að margt af því sem við upplifum í dag sé komið til vegna þess að tæknin hafi í raun tekið fram úr okkur í þróun sinni. „Það er margt í því sem við erum ekki búin að venjast líffræðilega. Því bæði heilinn í okkur og aðrir líkamshlutar taka engum stökk­ breytingum þótt tæknin geri það og líferni okkar. Við erum alltaf að fást við þetta frumstæða í mann­ legu eðli og þessa togstreitu sem myndast milli þess og siðmennt­ unar. Þetta er kokteill sem er mjög skemmtilegur fyrir menn sem hafa áhuga á að skrifa,“ segir Ólafur sem telur sig ekki þurfa að fara langt til þess að skapa framandi heima í skáldsögum sínum. „Ég þarf í raun ekki að skrifa um geimverur og fantasíur þar sem það er nóg af þeim bara í okkur mönn­ unum. Við erum nógu skrýtin. Ég þarf ekki að búa til eitthvað sem maður sér ekki á götunum,“ segir Ólafur að lokum. n Ólafur ásamt Agli Ólafssyni og Baltasar Kormáki, en Egill fer með lykilhlutverk í myndinni. MYND/LILJAJÓNS Pabbi studdi mig og hvatti mig áfram þegar ég byrjaði. Hann hafði áhrif eins og feður hafa áhrif á syni sína almennt, en það var aldrei verið að ýta mér út í þetta.  Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r ét t t il l eið ré tti ng a á sl íku . A th . a ð v er ð g et ur b re ys t á n fyr irv ar a. KANARÍ 6. DESEMBER Í 13 NÆTUR Sól fyrir jól 595 1000 www.heimsferdir.is 153.250 Flug & hótel frá 13 nætur Fagus ehf. í Þorlákshöfn til sölu Okkur hefur verið falið að bjóða Fagus ehf. til sölu. Fagus er þekkt og gott innréttinga fyrirtæki með gott orðspor og mikla möguleika. Góður vélakostur Hagstæð húsaleiga Stutt frá borginni Gæti hentað aðilum sem vilja byrja í bransanum eða aðilum sem sjá hag í að tengja eða sameina þetta við aðra starfsemi eins og byggingarfélag. Upplýsingar og fyrirspurnir veitir Axel S:8601122 eða axel@hegas.is HEGAS ehf. ...allt fyrir tréiðnaðinn 26 Helgin 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.