Fréttablaðið - 12.11.2022, Síða 36
Naný er matráður á leikskólanum
Hagaborg, þar sem hún leggur
mikla rækt við matargerðina og
vinnur allt frá grunni. Hún nýtir
þekkingu sína frá heimalandinu og
notar mikið grænmeti og ávexti.
Naný segist elska starfið sitt og
fær sífellt þakklæti frá börnunum,
sem gefa henni myndir eða senda
henni skilaboð um góða matinn
hennar. Það þykir henni vænt um.
„Það er besti maturinn í mínum
leikskóla,“ segir hún brosandi og
bætir við að það sé svo frábært
hversu börnin séu ánægð. „Öll
þekkja þau Naný,“ segir hún, en
sjálf á hún tvö börn, dóttur og
son. Naný var spurð um eftirlætis-
matinn í leikskólanum og svaraði
að grænmetispasta væri alltaf vin-
sælt. „Ég nota eingöngu heilhveiti-
pasta, síðan er það dóminískur
kjúklingaréttur, karrífiskur og svo
bara fiskur í raspi. Ég er óspör á að
nota framandi krydd og krökk-
unum líkar það,“ segir hún.
Sem matráður í eldhúsi er ekki
þægilegt að glíma við hárlos. Naný
segir að hún hafi verið komin með
miklar áhyggjur af því. Hún segist
ekki vita ástæðuna en kannski sé
það heita vatnið á Íslandi sem hún
er óvön og svo veðrabrigðin. „Ég
er ekki með neina eina skýringu á
þessu,“ segir hún.
Fór í prófanahóp
Þegar Naný er spurð hvernig hún
hafi kynnst Nourkrin, svarar hún:
„Ég sá umfjöllun í Fréttablaðinu
um góðan árangur hjá notanda
Nourkrin og þar stóð að OJK-ÍSAM
væri að bjóða fólki í prófanahóp
með Nourkrin vörum. Ég ákvað
að slá til og var valin í hóp sem í
voru átta manns. Ég var forvitin
að vita hvort Nourkrin myndi
stöðva hárlosið og hjálpa mér með
þetta vandamál,“ segir hún. „Ég
tek tvær töflur af Nourkrin á dag,
eina á morgnana og aðra á kvöldin.
Einnig nota ég sjampó og næringu
frá sama merki og ég sé hversu
miklu minna hár fer í niðurfallið.
Það var eiginlega ótrúlegt hversu
fljótt ég fann mikinn mun,“ segir
hún. „Hárið er allt annað eftir að
ég byrjaði að nota þessar vörur,
bæði mýkra, þykkara og fallegra,“
segir Naný og er mjög þakklát fyrir
að hafa kynnst Nourkrin. Mælt
er með að fólk sem finnur fyrir
hárlosi geri eitthvað í því vanda-
máli sem fyrst því þá næst besti
árangurinn.
„Ég er búin að taka Nourkrin í
sex mánuði og ætla að halda því
eitthvað áfram. Þetta hefur gefið
mér svo mikið, erfitt að vera sífellt
með áhyggjur,“ segir hún. „Ég mæli
með að fólk prófi Nourkrin ef það
er að glíma við hárlos og ef hárið er
að þynnast. Þetta hjálpar mikið,“
segir hún.
Á stóra fjölskyldu í Karíbahafi
Naný er alin upp í hitabeltislofts-
lagi í Karíbahafinu þar sem alltaf
er sól og sumar. Hún segist ekki
sakna heimahaganna. Miklu betra
sé að búa á Íslandi þótt veðurfar sé
annað. Naný kom hingað til lands
fyrst til að heimsækja vini sem
bjuggu hér. Hún heillaðist strax
af landinu og fékk löngun til að
setjast hér að. Eftir tvo mánuði á
Íslandi var hún komin með vinnu
og þá var ekki aftur snúið.
Í sumar fór Naný í heimsókn til
fjölskyldu sinnar í Dóminíska lýð-
veldinu en þá hafði hún ekki hitt
hana í sautján ár. Hún á foreldra
á lífi sem eru 77 og 85 ára svo það
voru fagnaðarfundir þegar dótt-
irin kom loks í heimsókn. Naný á
tíu systkini svo fjölskyldan er stór.
Þótt það hafi verið gaman að koma
í heimsókn, segir Naný að hér vilji
hún frekar búa. Ástandið er ekkert
sérstaklega gott í heimalandinu,
fátækt mikil og allt hafi versnað frá
því sem áður var. „Hér er ég með
skemmtilega vinnu og vil hvergi
annars staðar vera,“ segir Naný
og upplýsir hlæjandi að hún hafi
reyndar aldrei getað vanist því að
ganga í sokkum.
Nourkrin virkar vel gegn hárlosi
Rannsóknir sýna að Nourkrin
bætiefnið vinnur gegn hárlosi og
stuðlar að eðlilegum hárvaxtar-
hring. Hárlos getur haft ýmsar
orsakir en Nourkrin nærir hár-
sekkina svo þeir geti viðhaldið
eðlilegum hárvaxtarhring.
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Naný er vinsæll
kokkur í leik-
skólanum Haga-
borg. Krakkarnir
elska matinn,
sem hún gerir
frá grunni.
Svona var hárið á Naný þegar hún fór í prófanahópinn. Og eftir sex mánaða meðferð er það svona.
Hár er mikilvægur partur af
útliti okkar og sjálfstrausti. Þetta
kemur enn frekar fram þegar upp
koma hárvandamál eða hármissir
og þá gera sérstaklega konur sér
enn frekar grein fyrir mikilvægi
hársins. Hárvandamál eru algeng
en talað er um að allt að 60 prósent
kvenna upplifi óeðlilega mikið
hárlos einhvern tímann á lífs-
leiðinni.
Oft er þetta mikið feimnismál
og því lítið rætt og reynt að láta
sem minnst á því bera. Það er því
gaman að geta sagt frá Nourkrin
hárbætiefninu, sem hægt er að
sýna með klínískum rannsóknum
að virki.
Byltingarkennt bætiefni
Eðlileg hringrás hárvaxtar
líkamans kallast hárvaxtar-
hringur. Í eðlilegum hárvaxtar-
hring eru 85–90% háranna á
vaxtarstigi á meðan 10–15% þeirra
eru á hvíldarstigi eftir að hafa náð
fullum vexti. Þegar hárlos á sér
stað brenglast hinn hefðbundni
hárvaxtarhringur vegna þess að
hársekkirnir fá ekki réttu nær-
ingarefnin. Helstu ástæður hárloss
eru meðal annars stress, veikindi,
sykursýki, lyf, reykingar, með-
ganga, fæðing, hármeðhöndlun og
fleira.
Nourkrin hárbætiefni fyrir
konur og karlmenn hefur verið
selt á Íslandi síðan 2018, en verið
til á heimsvísu síðan 1986 og er
margverðlaunað hárbætiefni, það
vinsælasta í Bretlandi. Nourkrin
hárbætiefnið er 100% lyfjalaust
og eina hárbætiefnið sem byggir
á fjölda klínískra rannsókna sem
birtar hafa verið í ritrýndum vís-
indatímaritum.
Nourkrin inniheldur hið
byltingarkennda Marilex bæti-
efni sem er einkaleyfisvarið efni,
unnið úr þykkni úr fiskbeinum og
inniheldur rétt hlutfall af svoköll-
uðum próteóglýkönum, sem næra
hársekkina svo þeir geti viðhaldið
eðlilegum hárvaxtarhring.
Nourkrin er algjörlega öruggt
og allir mega nota það, nema
þeir sem hafa ofnæmi fyrir fiski
og skelfiski, þar á meðal ófrískar
konur og konur með barn á brjósti.
Hefðbundin meðferð er tvær töflur
daglega í sex mánuði.
Ástæðan fyrir lengd með ferð-
ar innar er sú að það tekur hár-
vaxtarhringinn sex mánuði að ná
jafnvægi. Hársekkirnir geta verið á
misjöfnum stað í sínum hring þegar
meðferð hefst og því tekur þetta
þennan tíma.
Góður árangur í prófun
OJK-ÍSAM hefur verið með nokkra
prófanahópa fyrir Nourkrin frá því
að varan kom á markað. Hárvanda-
mál fer ekki í manngreinarálit og í
þessum prófanahópum hefur verið
fólk á öllum aldri úr mörgum starfs-
stéttum þjóðfélagsins. Ástæður
hárloss hjá þátttakendum eru
misjafnar en flest höfðu glímt við
hárlos í töluverðan tíma og prófað
margt til að minnka það.
Niðurstöður hópanna hafa sýnt
að allir þátttakendur fundu mun
á hárinu eftir að hafa tekið inn
Nourkrin.
Helstu ástæður hárloss í þessum
hópum eru:
n Vanvirkur skjaldkirtill
n Sjálfsofnæmi (Alopecia)
n Legslímuflakk
n Sykursýki 2
n Hjarta- og lungnasjúkdómar
n Skortur á B-12
n Gigt
n Lyf
n Álag, stress
Einnig hafa nýleg gögn sýnt fram á
að Nourkrin virkar mjög vel á fólk
sem hefur lent í hárlosi í kjölfar
Covid-19.
Á næstunni koma Nourkrin
sjampó og Nourkrin hárnæring í
sölu í apótekum. Þessar hárvörur
gefa hárinu mikið líf og glans.
Frábær viðbót með Nourkrin töfl-
unum og líka hægt að nota einar
og sér. n
Nourkrin fæst í öllum helstu apó-
tekum. Nánari upplýsingar á isam.
is/nourkrin
2 kynningarblað A L LT 12. nóvember 2022 LAUGARDAGUR