Fréttablaðið - 12.11.2022, Síða 42
Svo nær brosið líka
langt, nærveran og
að sjá krakkana okkar
leika saman.
Hanna Sirrý Ragnarsdóttir
Hjónin Hanna og Alex eru
leiðsöguvinir hjá Rauða
krossinum, sem þýðir að
þau hitta flóttafjölskyldu
mánaðarlega. Börnin þeirra
leika sér saman og þau veita
fjölskyldunni félagslegan
stuðning í nýju landi.
Hanna Sirrý Ragnarsdóttir segir
að þau hafi farið saman í þetta
verkefni sem fjölskylda. Þess vegna
komi börnin þeirra Alexanders
alltaf með þegar þau hitta fjöl-
skylduna sem Rauði krossinn
úthlutaði þeim.
„Við hittumst með börnin okkar
tvö en fjölskyldan er með þrjú
börn. Við hittumst einu sinni í
mánuði og gerum alls konar hluti
með þeim. Við höfum til dæmis
farið í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inn og á leikvöll. Við höfum oftast
hist einhvers staðar úti og reynt að
finna eitthvað sem er skemmtilegt
fyrir börnin. Svo spjöllum við við
fjölskylduna og spyrjum hvernig
gengur og reynum að svara ef þau
hafa einhverjar spurningar. Ef við
getum ekki svarað þeim, þá vísum
við þeim áfram til Rauða krossins,“
segir Hanna, spurð að því hvernig
fjölskyldurnar verja tíma saman.
Spurð hvort tungumálaörðug-
leikar séu hindrun í samskiptum
fjölskyldnanna, segir Hanna að
hún noti mikið Google translate
þegar hún talar við konuna í fjöl-
skyldunni.
„Svo nær brosið líka langt, nær-
veran og að sjá krakkana okkar
leika saman,“ bætir hún við.
„En fjölskyldufaðirinn talar
góða ensku og hann og maðurinn
minn ná vel saman og geta talað
mikið saman.“
Vildu láta gott af sér leiða
Hanna og Alexander hafa hitt
fjölskylduna mánaðarlega frá því
í sumar, en verkefnið er hugsað til
sex mánaða. Hanna segir að ástæða
þess að þau skráðu sig til þátttöku
hafi verið að þau langaði að gera
eitthvað gott saman sem fjölskylda.
„Maðurinn minn byrjaði að
skoða hvað væri hægt að gera á
Íslandi til að hjálpa flóttamönn-
um. Hann skoðaði fyrst hvað hann
gæti gert sem einstaklingur en sá
þá að þetta var í boði og spurði
mig hvort við gætum ekki gert
þetta saman, öll fjölskyldan,“ segir
Hanna.
Hún ákvað að slá til og þau báru
þetta undir dætur sínar sem voru
alveg til í að hitta börn frá öðru
landi og leika sér við þau.
„Ég held það sé alltaf hollt og
gott að koma sér í aðstæður þar
sem við getum ekki leyst allt með
tungumálinu og þurfa að finna
aðrar leiðir til að tjá sig. Líka fyrir
stelpurnar okkar að læra að við
erum ekki öll eins, en þær þurfa
líka að tjá sig við börnin þeirra
með öðrum leiðum en tungumál-
inu. Það er auðmýkjandi að vera í
kringum fjölskylduna og að heyra
sögu hennar,“ segir Hanna.
Til að taka þátt í verkefninu
sóttu hjónin um hjá Rauða kross-
inum og fóru svo á tvö námskeið
þar.
„Fyrsta námskeiðið var almennt
um flóttamenn og hvað fólk
hefur gengið í gegnum og upp-
lifað. Svo fórum við meira út í
hvað eru viðeigandi spurningar
og hvernig fundunum okkar á að
vera háttað. Það var svo tengiliður
okkar hjá Rauða krossinum sem
hafði samband og sagði að við
værum komin með fjölskyldu. Við
hittumst í fyrsta skipti í húsnæði
Auðmýkjandi að heyra sögu fjölskyldunnar
Alex, Hanna
og dætur
þeirra tvær eru
leiðsöguvinir
flóttafjölskyldu
á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Rauða krossins með tengiliðnum,
en eftir það hefur það verið undir
okkur komið að tala saman og
plana næsta hitting,“ segir Hanna.
„Ég veit ekki hvort Íslendingar
átti sig á því að þetta er eitthvað
sem hægt er að gera. Að Rauði
krossinn bjóði upp á þetta. En ég
held að það sé mjög mikilvægt
að Íslendingar hjálpi öðrum að
aðlaga sig.
Við vitum að það er erfitt að
f lytja milli landa yfirhöfuð, og
sérstaklega undir þessum for-
merkjum, sem flóttamenn.“ n
Í allri þjónustu sem
við veitum skiptir
okkur miklu máli að
notendur upplifi virð-
ingu og hlýju í sinn garð.
Ylja er neyslurými þar sem
einstaklingar geta notað sín
eigin vímuefni undir eftirliti
starfsfólks. Rýmið er skaða
minnkunarúrræði með það
að markmiði að fyrirbyggja
skaða af vímuefnanotkun.
Skilgreiningin á neyslurými er:
Lagalega verndað rými þar sem
einstaklingar yfir 18 ára geta
komið og notað sín eigin vímu-
efni undir eftirliti starfsfólks og
þar sem sýkingavarna og öryggis
notenda er gætt. Ylja neyslurými
var opnað 10. mars á þessu ári, en
það er færanlegt neyslurými í sér
útbúnum sendiferðabíl sem stað-
settur er miðsvæðis í Reykjavík.
„Ylja er fyrsta neyslurýmið sem
er opnað á Íslandi. Þetta er til-
raunaverkefni til eins árs en mark-
mið okkar er að kortleggja þörf
fyrir neyslurými á Íslandi, til fram-
tíðar,“ segir Margrét Dís Yeoman,
hjúkrunarfræðingur hjá Ylju.
„Ylja er skaðaminnkunarúrræði
en það felur í sér að reyna að fyrir-
byggja skaða sem getur fylgt vímu-
efnanotkun frekar en að reyna að
fyrirbyggja sjálfa notkunina.“
Margrét Dís útskýrir að hugsun-
in bak við skaðaminnkun sé sú að
ekki er alltaf hægt að fyrirbyggja
notkun vímuefna. Það er vitað
að hópur fólks notar vímuefni og
þeim hópi þurfi að mæta á þeim
stað.
„Ávinningurinn af Ylju er að
koma í veg fyrir skaða eins og
sýkingar og ofskammtanir og
bregðast við ef þess þarf. Með Ylju
erum við líka að draga úr vímu-
efnanotkun í almenningsrýmum
og um leið að minnka líkurnar á að
notaður búnaður verði eftir þar,“
útskýrir hún.
Frá opnun hefur starfsfólk Ylju
fargað 125 lítrum af notuðum
sprautubúnaði frá einstaklingum
sem hafa notað efnin sín í neyslu-
rýminu.
„Þetta er búnaður sem hefði
annars geta orðið eftir í almenn-
ingsrýmum eins og almennings-
salernum, bílakjöllurum, húsa-
sundum eða stigagöngum. Eða
verið hent með almennu rusli, en
það er ekki örugg leið til að farga
notuðum sprautubúnaði,“ upplýsir
Margrét.
„Við viljum skapa öruggan og
hlýjan stað fyrir notendur Ylju.
Við viljum vera staður þar sem þau
geta komið og tjáð sig opinskátt
um vanda sinn án þess að verða
fyrir fordómum og geta komið
málunum í farveg. Við erum alltaf
með heitt á könnunni, veitum
sálrænan stuðning og sinnum
lágmarksheilbrigðisþjónustu en í
Ylju er alltaf hjúkrunarfræðingur
á vakt.“
Eftirspurnin eykst
Ylja er opin frá 10–16 alla virka
daga en Margrét segir að opnunar-
tíminn hafi verið ákveðinn út frá
opnunartíma neyðarskýlanna, en
þau eru lokuð frá 10–17 á daginn.
„Það er hópur fólks sem hefur
ekki í nein hús að venda á þeim
tíma, en það þarf samt á skömmt-
unum sínum að halda. Staðan er
sú að þá er fólk oft að nota þau í
almenningsrýmum,“ segir Mar-
grét og bætir við að Ylja hafi verið
notuð strax frá fyrsta degi og eftir-
spurnin hafi aukist.
„Frá opnun höfum við sinnt um
100 notendum í 900 heimsóknum.
Aðstæður Ylju leyfa að hámarki
tvo notendur í einu, svo það segir
sig sjálft að við náum ekki að þjón-
usta öll sem vilja. Þetta plássleysi,
takmarkað aðgengi og þjónusta, er
ókostur við færanleg neyslurými.
Það er samt kostur að við getum
staðsett okkur í nærumhverfi not-
endanna. Aðstæðurnar í rýminu
stuðla að góðri tengslamyndun á
milli starfsfólks og notenda og gefa
gott tækifæri til að veita skaða-
minnk andi fræðslu og sálrænan
stuðning. Hver heimsókn verður
persónuleg og dýrmæt,“ segir hún.
Frá því úrræðið var opnað hafa
myndast 150 biðraðir eftir að
komast í rýmið og meðalbiðtími
hefur verið um 30 mínútur að sögn
Margrétar.
„Þetta eru bara þær biðraðir sem
við náum að skrá. Við vitum að
ekki allir notendur banka þegar
þeir sjá að rýmið er upptekið. Í 78
skipti hafa notendur ekki þolað
biðina og við vitum að þá nota þau
efnin sín í almenningsrými. Við
finnum líka að þegar þau koma
ítrekað að lokuðum dyrum hefur
það áhrif á aðsóknina. Fólkið er oft
að koma fótgangandi til okkar og
þarf að bíða úti í íslenskri veðráttu.
Það hefur áhrif,“ segir Margrét og
bætir við að helst myndi starfsfólk
Ylju vilja fá húsnæði fyrir starf-
semina.
„Það er mikilvægt að úrræðið sé
áreiðanlegt og notendur hafi greitt
aðgengi að því. Að notendur geti
notað vímuefnin sín í öruggu rými
og líka að þeir hafi rými á daginn
til að sinna sínum grunnþörfum,
að nærast og hvílast og þvo sér. Það
væri líka tilvalið að lækka á sama
tíma þröskulda til að sækja sér
nauðsynlega þjónustu og hafa fjöl-
breytta þjónustu í þeirra nærum-
hverfi í sama úrræði.“
Komu í veg fyrir andlát
Margrét segir að ofskömmtun
sé að aukast með árunum og að
helsta orsök þess að fólk deyr úr
ofskömmtun sé að það notar efnin
eitt og enginn geti gripið inn í ef
eitthvað kemur upp á.
„Með því að nota neyslurými
getur starfsfólkið brugðist við.
Starfsfólk Ylju hefur nú þegar
brugðist við einni ofskömmtun og
komið í veg fyrir enn eitt andlátið.
Við erum ótrúlega þakklát fyrir
að sá einstaklingur hafi komið
til okkar að taka skammtinn sem
hann hefði annars tekið annars
staðar,“ segir hún.
„Í allri þjónustu sem við veitum
skiptir okkur miklu máli að not-
endur upplifi virðingu og hlýju í
sinn garð, þrátt fyrir að þau séu
að berskjalda sig með athöfnum
sem samfélagið samþykkir ekki og
hefur ýtt þeim út á jaðarinn ára-
tugum saman. Notendurnir okkar
eru alls konar einstaklingar með
mismunandi bakgrunn, reynslu,
áhugamál og drauma en þau eiga
það öll sameiginlegt að vera mann-
eskjur eins og ég og þú. Þau koma
okkur starfsfólkinu til að brosa á
hverjum degi en á sama tíma geta
aðstæður þeirra í samfélaginu
verið ómannúðlegar.“ n
Mikilvægt að notendur upplifi virðingu
Margrét Dís Yeoman hjúkrunarfræðingur hjá Ylju neyslurými. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
4 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURhjálpin