Fréttablaðið - 12.11.2022, Qupperneq 45
www.ruv.is
Ríkisútvarpið ohf. er fjölmiðill í
almannaþágu. Hlutverk rúv er að
upplýsa og fræða, skerpa skilning
og þátttöku í samfélaginu, auka
ánægju og hreyfa við fólki á
uppbyggilegan hátt. Stefna
rúv lýsir hlutverki, gildum,
stefnuáherslum, og framtíðarsýn
til ársins 2026.
Umsóknarfrestur er til
og með 28. nóvember.
Sótt er um störfin á
www.vinnvinn.is
Umsjón með störfunum hafa
Hilmar G. Hjaltason
(hilmar@vinnvinn.is)
og Margrét Stefánsdóttir
(margret@vinnvinn.is)
Umsókn skal fylgja ferilskrá og
ítarlegt kynningarbréf á íslensku
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni umsækjanda til að gegna
starfinu.
Við hvetjum áhugasöm til að
sækja um starfið, óháð kyni,
uppruna, fötlun eða starfsgetu.
Öryggisstjóri
Samskipta- og kynningarstjóri
RÚV leitar að ábyrgum og drífandi einstaklingi í starf öryggisstjóra. Hlutverk öryggis stjóra
er að móta og fylgja eftir stefnu um öryggismál RÚV, þar á meðal upplýsingaöryggi.
HELSTU VERKEFNI
• Ábyrgð á mótun stefnu í
öryggismálum, eftirfylgni og
eftirlit með framkvæmd hennar.
• Ábyrgð á eftirliti með net- og
upplýsingaöryggi, tækjabúnaði,
aðgangsmálum og húsnæði.
• Innleiðing, þróun og eftirfylgni með
öryggismálum.
• Umsjón með innleiðingu viðeigandi
staðla og viðhaldi á vottuðu kerfi
upplýsingaöryggis.
• Ábyrgð á skrásetningu og
tilkynningum öryggisfrávika
og frumkvæði að lagfæringu
öryggisþátta.
• Umsjón með þjálfun og ferlavinnu
á sviði öryggismála.
• Upplýsingagjöf og ráðgjöf til
stjórnenda og starfsfólks.
HÆFNISKRÖFUR
• Menntun sem nýtist í starfi.
• Marktæk reynsla eða
þekking af rekstri og stjórnun
upplýsingatæknikerfa.
• Reynsla af innleiðingu og þróun
upplýsingatæknikerfa.
• Þekking á löggjöf og stöðlum fyrir
öryggi net- og upplýsingatæknikerfa.
• Mjög góð skipulags-, samskipta- og
samvinnufærni.
• Góð öryggisvitund og ögun í
vinnubrögðum.
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í
ræðu og riti.
• Þekking á gæðamálum er kostur.
RÚV leitar að framsýnum og skapandi einstaklingi til að stýra samskipta- og
kynningardeild og bera ábyrgð á þróun og framkvæmd samskipta- og kynningarmála.
HELSTU VERKEFNI
• Yfirumsjón með samskipta- og
kynningarmálum RÚV.
• Mótun og ábyrgð á stefnu og
markmiðasetningu samskipta- og
kynningardeildar.
• Daglegur rekstur og stjórnun
deildarinnar.
• Samskipti við dagskrárgerðarfólk
og dagskrárstjóra í tengslum við
kynningu á dagskrárefni.
• Samskipti við innlenda og erlenda
fjölmiðla.
• Ábyrgð á samskiptum og samningum
við samstarfsaðila.
• Yfirumsjón ímyndarmála og herferða
í samvinnu við útvarpsstjóra og
dagskrárstjóra.
• Utanumhald um útlit og ásýnd
kynningarefnis í samráði við
hönnunarstjóra.
• Ábyrgð á skrifum, framleiðslu og
bókun dagskrárkynninga fyrir
sjónvarp og útvarp.
HÆFNISKRÖFUR
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Árangursrík reynsla af samskipta- og
kynningarmálum.
• Góð þekking á rekstri og stjórnun.
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi
hæfni í mannlegum samskiptum.
• Góð skipulagshæfni, metnaður og
ögun í vinnubrögðum.
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í
ræðu og riti.
• Reynsla af stefnumótun og
markmiðasetningu er kostur.