Fréttablaðið - 12.11.2022, Page 76
Það er ömurlegt að
vera í þeirri
aðstöðu að glíma við
ófrjósemi og að peningar
stjórni því hvort draum-
urinn um að eignast barn
verði að veruleika.
Erla Rut Haraldsdóttir
Hátún 6b, 105 Reykjavík / Sími 519 3223 / www.hudin.is
Meðferðin eykur raka í húð og kallar fram góðan
ljóma ásamt því að minnka fínar andlitslínur.
Einnig er hægt að bóka tíma í persónulega ráðgjöf.
Hjartanlega velkomin.
*gildir til 30. nóvember 2022
20% afsláttur
af Rauða dregils húðmeðferð
*
Vitundarvakning Tilveru,
félags þeirra sem glíma við
ófrjósemi, stendur nú yfir, en
félagið vinnur mikið, þarft
og þakklátt starf.
thordisg@frettabladid.is
„Við hjónin eigum að baki fimm
meðferðir og fimm uppsetningar
hér heima; þar af varð einn fóstur-
missir á níundu viku. Nú vorum
við að klára þrjár meðferðir
úti sem gengu ekki eins og við
óskuðum. Ég er bara með einn
eggjastokk og fæ því alltaf mun
færri egg en flestir, en samanlagt
höfum við varið tæpum sex millj-
ónum í tæknifrjóvgunarmeðferðir.
Sem betur fer höfum við fengið
fjárhagslega aðstoð frá fjölskyldu
og vinum; annars hefðum við
aldrei komist út og erum inni-
lega þakklát. Okkur langar í eina
meðferð enn, en því miður erum
við í þeirri ömurlegu aðstöðu að
vita ekki hvort við höfum ráð á því,
sem er auðvitað glatað. En þetta er
svo kostnaðarsamt og því er fram-
haldið óráðið í augnablikinu.“
Þetta segir Erla Rut Haraldsdótt-
ir, danskennari og stjórnarmaður í
Tilveru, samtökum um ófrjósemi.
Með henni í viðtalinu er Sigríður
Auðunsdóttir, einnig stjórnar-
meðlimur í Tilveru. Sigríður er
leikskólakennari og hefur á sjö ára
tímabili lagt út mikinn kostnað
vegna tæknifrjóvgunarmeðferða
sem ekki hafa borið árangur.
„Ég heyrði fyrst af Tilveru í
Facebook-hópi fólks sem glímir við
ófrjósemi. Það að hafa kaffihúsa-
spjall og Facebook-hópinn hafði
mjög góð áhrif á mig, ekki síst í
kringum meðferðir, að geta rætt
við fólk sem hafði sömu reynslu
og var í sömu sporum og ég,“ segir
Sigríður.
Erla tekur í sama streng.
„Eftir að hafa gengið í gegnum
margt vildi ég hjálpa öðrum og
gefa af mér. Því gekk ég í stjórn
félagsins því ég vildi bæði deila
reynslu minni og læra af reynslu
annarra, og leggja mitt af mörkum
í baráttunni. Það er einfaldlega
ómetanlegt að geta rætt við aðra í
sömu sporum.“
Ófrjósemi að aukast í heiminum
Talið er að eitt af hverjum sex
pörum á Íslandi glími við ófrjó-
semi.
„Samkvæmt nýjustu tölum frá
glasafrjóvgunarstofunni Livio
Reykjavík eru um 15 til 20 egg-
heimtur á viku, 10 til 15 uppsetn-
ingar á ferskum fósturvísum og
10 til 15 uppsetningar á frosnum
fósturvísum. Þá eru ótalin þau sem
leita erlendis, en fjöldi þeirra sem
fara utan í meðferðir er mikill,“
upplýsir Sigríður.
Í þessari viku er líka vitundar-
vakning hjá Fertility Europe sem
Tilvera er hluti af.
„Í Evrópu er talað um að 25
milljónir einstaklinga og para
glími við ófrjósemi. Ástæðurnar
eru margþættar, til dæmis PCOS og
endómetríósa, gæði eggja og sæðis.
Óútskýrð ófrjósemi er jafnframt
stór hluti af þessum tölum og aðrir
sjúkdómar geta valdið ófrjó-
semi. Að sögn CDC (Centers for
Disease Control and Prevention)
er ófrjósemi því miður að aukast
í heiminum. Bæði eru konur að
hefja barneignir síðar á lífsleiðinni
og eignast færri börn, en vestrænn
lífsstíll og umhverfisþættir hafa
þar líka mikil áhrif,“ segir Sigríður.
Bera harm sinn í hljóði
Að sögn Erlu og Sigríðar ríkir enn
almenn feimni um ófrjósemi.
„Með árunum hefur umræðan
þó aðeins opnast en því miður
berjast enn margir við ófrjósemi á
bak við luktar dyr. Við hjá Tilveru
leggjum áherslu á að þetta sé ekki
feimnismál og að fólk standi ekki
eitt í þessu og þurfi að bera harm
sinn í hljóði. Við viljum meiri og
opnari umræðu um þetta stóra
vandamál svo hægt sé að berjast
fyrir betri heimi og meiri aðstoð
fyrir alla,“ segir Erla.
Staða einstaklinga og para hafi
þó batnað með árunum þótt enn
sé langt í land.
„Á Íslandi er langur biðlisti enda
bara ein IVF-stofa. Aðgangur að
erlendum IVF-stofum hefur opnast
mikið og hópurinn sem leitar
utan stækkar ört. Tækninni hefur
líka fleygt fram og möguleikarnir
aukist til muna. Meðferðirnar hafa
líka batnað,“ upplýsir Erla.
Til að teljast glíma við ófrjósemi
og þurfa aðstoð þarf einstaklingur
eða par að hafa reynt að eignast
barn í eitt ár án árangurs, nema
aldur spili þar inn í; þá er mælt
með að koma sem fyrst.
„Á Íslandi er Livio eina stofan
sem sér um tæknifrjóvgunarmeð-
ferðir. Í fyrsta viðtali er farið yfir
hvaða meðferðum er mælt með.
Stundum er byrjað á tæknifrjóvg-
un eða farið beint í glasameðferð.
Sumir þurfa litla aðstoð til að
koma þessu í rétt ferli og heppnast
jafnvel í fyrstu tilraun á meðan
aðrir þurfa meiri aðstoð og miklu
fleiri meðferðir. Því leita margir
út sem þurfa meiri aðstoð þar sem
alls kyns rannsóknir og jafnvel
aðgerðir eru framkvæmdar til að
hjálpa til með ferlið og það getur
haft mikinn aukakostnað í för með
sér,“ greinir Erla frá.
Meiri niðurgreiðslu, takk
Tæknifrjóvgunarmeðferðir eru
dýrar og baráttan iðulega löng
með endurteknum og erfiðum
meðferðum.
„Ein glasameðferð kostar 590
þúsund krónur. Sjúkratryggingar
Íslands (SÍ) niðurgreiða fyrstu
fjórar meðferðirnar að hluta. Hluti
sjúklings fyrir fyrstu meðferð er
566.000 krónur og fyrir meðferðir
tvö til fjögur 278.000 krónur, en
innifalin er aðeins ein uppsetning.
Oft fær fólk fleiri en einn fósturvísi
en SÍ taka ekki þátt í uppsetningu
á frosnum fósturvísum og er
kostnaður við hverja uppsetningu
250.000, en verðskráin hefur
hækkað talsvert undanfarin ár,“
upplýsir Sigríður.
Ekki megi gleyma földum
kostnaði eins og vinnutapi, lyfja-
kostnaði, sálfræðimeðferð, auka
aðgerðum og fleiru.
„Ef fólk þarf að leita út fyrir
landsteinana eykst kostnaðurinn
enn, því það kostar flug, uppihald
og meira vinnutap. Það sama á við
um landsbyggðarfólk sem þarf að
koma til Reykjavíkur með tilheyr-
andi kostnaði. Af þessu öllu hlýst
að ekki er á allra færi að standa í
þessu og því miður þurfa mörg að
gefa upp draum sinn um að eignast
barn því þau eiga hreinlega ekki
fyrir því. Aðgengið er einfaldlega
ekki jafnt fyrir alla,“ segir Sigríður.
Þær Erla og Sigríður kalla eftir
meiri niðurgreiðslu hins opinbera.
„Í nágrannalöndunum eru
niðurgreiðslur mun hærri og þar
eru sömuleiðis ríkisreknar stofur
sem fólk getur leitað til. Hér er
einungis ein einkarekin stofa. Við
viljum sjá meiri niðurgreiðslu frá
ríkinu, betra utanumhald og meiri
samkeppni.“
Erfitt fyrir líkama og sál
Bið eftir barni og barátta við ófrjó-
semi tekur á alla hlutaðeigandi.
„Það er mikið álag á sambönd
að takast á við þetta risaverkefni
og mörg endast því miður ekki.
Hormónarússíbaninn hefur nefni-
lega ekki bara áhrif á líkamann
heldur tekur ferlið mikið á andlegu
hliðina. Biðin eftir því að taka
þungunarpróf, stanslaus nei og
missir, er fólki þungbært. Kostn-
aðarhliðin tekur líka sinn toll en
margir hafa þurft að taka pásur
eða hreinlega gefast upp vegna
peninga- eða andlegu hliðarinnar.
Flest þyrftu á faglegum stuðningi
að halda í gegnum svona ferðalag
en því miður er sálfræðiþjónusta
ekki allra vegna kostnaðar og svo
er biðin löng. Því hefur verið gott
að geta boðið félagsmönnum Til-
veru ókeypis sálfræðiþjónustu og
hún er líka vel nýtt,“ segir Erla.
Misjafnt er á milli stéttarfélaga
og vinnuveitenda hvort fólk fái
leyfi fyrir meðferðir sem taka yfir-
leitt fimmtán daga, eða fái að taka
það sem veikindaleyfi.
„Mjög algengt er að fólk fái ekki
að taka þetta af veikindarétti
sínum og dragi þetta af orlofsrétti
sínum eða noti sumarleyfin sín í
meðferðirnar. Fólk sem fer utan í
meðferð þarf að dvelja þar í minnst
tíu daga fyrir örvun, eggheimtu
og uppsetningu, og það er fljótt
að telja fyrir fólk sem þarf að fara
oftar en einu sinni,“ segir Erla.
Því miður vanti mikið upp á
stuðning stjórnvalda.
„Þetta er svo miklu stærra og
útbreiddara vandamál en þau
gera sér grein fyrir. Hér þarf að
bæta verulega í og sömuleiðis
bæta aðstöðu þeirra sem hafa
það verst í þessum aðstæðum,
þá sem eru í fjárhagsvanda eða
hafa þurft í margar meðferðir. Því
það er ömurlegt að vera í þeirri
aðstöðu að glíma við ófrjósemi
og að peningar stjórni því hvort
draumurinn um að eignast barn
verði að veruleika,“ segir Erla.
Því fleiri, því sterkari
Nú um helgina ætlar Tilvera að
kynna félagið í Kringlunni.
„Vitundarvakningin er til að
kynna og efla félagið, og vekja
athygli á stöðu fólks sem glímir
við ófrjósemi. Yfirskrift vitundar-
vakningarinnar er „(Ó)frjósemis-
vegferðin mín“ og munum við selja
lyklakippur eftir Hlín Reykdal
og jólahappadrættismiða, sem er
okkar helsta fjáröflun en ágóðann
notum við til að styðja við félags-
menn. Það er alltaf pláss í Tilveru
fyrir gott fólk og því fleiri sem við
verðum, því sterkari verðum við,“
segir Sigríður.
Á vefsíðu Tilveru má sjá að til
verða kraftaverkabörn.
„Þau hafa orðið til eftir glasa-
frjóvgunarmeðferðir eða komið
undir óvænt, en flest hafa þau
fæðst eftir mikla þrautseigju og
baráttu foreldranna sem lögðu allt
undir til að eignast kraftaverka-
börnin sín.“
Nánari upplýsingar á tilvera.is. n
Peningar stjórna draumnum um að eignast barn
Sigríður Auðunsdóttir og Erla Rut Haraldsdóttir sitja í stjórn TIlveru. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
6 kynningarblað A L LT 12. nóvember 2022 LAUGARDAGUR