Fréttablaðið - 12.11.2022, Síða 80
Við erum ánægðir
með að við erum ekki
gleymdir og gríðarlega
ánægðir með móttök-
urnar.
Þráinn Árni Baldvinsson,
gítarleikari Skálmaldar
Þann 6. nóvember fór fram
sannkallaður Íslendingaslag-
ur í dönsku úrvalsdeildinni
þegar FCK mætti lærisveinum
Freys Alexanderssonar í
Lyngby. Um kvöldið var svo
slegið í rokkklárinn þegar
Skálmöld spilaði á Gimle.
Matthías Finns tók upp
linsuna og smellti af.
Það var rífandi stemning í
Kaupmannahöfn um síð-
ustu helgi þar sem Íslend-
ingar voru í aðalhlutverki
víða um borgina. Fyrst var
Kaupmannahafnarslagur FCK og
Lyngby þar sem fjórir Íslendingar
komu við sögu og sá fimmti, Alfreð
Finnbogason, sat meiddur uppi í
stúku. Leiknum lauk með sigri FCK
3–0 og skoraði Skagamaðurinn
Hákon Arnar Haraldsson eitt marka
FCK. Góðvinur hans af Skaganum,
Ísak Bergmann, kom inn á sem
varamaður þegar átta mínútur
voru eftir. Í liði Lyngby lék Sævar
Atli Magnússon allan leikinn fyrir
Lyngby en Freyr Alexandersson
stýrir liðinu af hliðarlínunni.
Óheppnin hefur elt Lyngby alla
leiktíðina en liðið hefur verið lamið
niður á lokasekúndunum nánast
allt mótið. Þeir hafa ekki enn unnið
leik og fengið á sig mörk seint í leikj-
unum. Freyr, Sævar og Alfreð Finn-
bogason sitja í neðsta sæti með
fimm stig.
FCK, sem er núverandi meistari,
er komið upp í þriðja sætið og spá
flestir að liðið muni endurtaka leik-
inn og lyfta bikarnum. Með liðinu
leika þeir uppeldisbræður af Skag-
anum Hákon Arnar og Ísak Berg-
mann og þá hefur hinn ungi Orri
Steinn Óskarsson fengið nokkrar
mínútur. Þeir voru töluvert betri í
leiknum gegn Lyngby en þeir Hákon
og Ísak byrjuðu báðir á bekknum.
Þeir komu inn á og skoraði Hákon
annað mark FCK í 3–0 sigri liðsins.
Þegar lokaflautið gall var komið
að því að keyra í veislu fyrir eyrun
því Skálmöld spilaði á Gimle
klúbbnum. Þar var kveðið og rímað
að íslenskum sið undir myljandi
gítarriffi og bassatrommum. Fjöl-
margir Íslendingar fóru á báðar
sýningarnar. Fyrst á fótboltaleikinn
og svo að sjá okkar bestu rokkhunda
Íslendingar
í kóngsins
Köben
Skálmöld á ferð og flugi
Dagskráin næstu viku
Dagur: 12. nóvember
Borg: Orbe
Land: Sviss
Staður: Le Puisoir
Dagur: 13. nóvember
Borg: Worgl
Land: Austurríki
Staður: Komma
Dagur: 14. nóvember
Borg: Stuttgart
Land: Þýskaland
Staður: Im Wizemann
Dagur: 15. nóvember
Borg: Prag
Land: Tékkland
Staður: Futurum Music Bar
Dagur: 16. nóvember
Borg: Berlín
Land: Þýskaland
Staður: Hole 44
Dagur: 17. nóvember
Borg: Varsjá
Land: Pólland
Staður: Proxima
Dagur: 18. nóvember
Borg: Kraká
Land: Pólland
Staður: Kwadrat
Dagur: 19. nóvember
Borg: Graz
Land: Austurríki
Staður: JUZ Explosiv
Staðan í dönsku deildinni
Leikir Stig
1. Nordsjælland 16 32
2. Viborg 16 29
3. FC Copenhagen 16 24
4. Silkeborg 16 24
5. OB 16 23
6. Randers 16 23
7. AGF 16 22
8. Midtjylland 16 22
9. Horsens 16 21
10. Brøndby 16 21
11. AaB 16 14
12. Lyngby 16 5
Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby, horfir á leikinn á meðan Hákon Arnar gerir sig tilbúinn að koma inn á. MyNDiR/MAttHíAS FiNNS
Björgvin
Sigurðsson
söngvari mun
rymja sem óður
maður næstu
daga enda segja
þeir Skálm aldar
menn að frí
eyðileggi góða
rútínu.
Sævar Atli
Magnússon,
leikmaður
Lyngby, gerir
sig tilbúinn fyrir
leikinn með
örlitlum vatns
sopna. Sævar
hefur skorað tvö
mörk í dönsku
deildinni það
sem af er vetri.
Þráinn Árni Baldvinsson plokkar gítarinn.
sem eru að ferðast um Evrópu til 11.
desember. Þeir byrjuðu í Stokk-
hólmi þann 3. nóvember og spila
alla daga til 11. desember þegar þeir
ljúka túrnum í Hollandi.
Frídagar eyðileggja rútínu
„Þetta eru 39 tónleikar á 39 dögum.
Enginn frídagur. Frídagar eyðileggja
rútínu þannig að við viljum ekkert
slíkt,“ segir Þráinn Árni Baldvinsson
gítarleikari Skálmaldar.
Hljómsveitin var nýkomin til
Hannover í Þýskalandi en finnska
þungarokkshljómsveitin Finntroll
spilar með þeim.
„Þetta er helvíti gaman,“ segir Þrá-
inn, en venjulegur dagur rokkstjörnu
á ferð og flugi er kannski ekki alveg
eins og venjulegur dagur.
„Það sem við erum að reyna búa
okkur til í bandinu, ekki allir samt,
er að skríða fram úr þegar bíllinn
leggur í nýrri borg. Labba og finna
okkur gott kaffi á kaffihúsi. Erum
rólegir þar til við komumst inn þar
sem við fáum mat. Svo þarf að setja
upp hljóðfæri, trommusett og þvílíkt
magn af djöfulsins drasli á sviðið.
Svo þarf að prófa og gera sándtékk
áður en beðið er eftir gigginu sjálfu.
Þá er kvöldmatur og gigg áður en við
förum fram og hittum fólk. Förum í
sturtu og svokallaðan aftershow-mat
áður en farið er upp í rútu og farið á
nýjan stað. Þetta er svo endurtekið.“
Hann viðurkennir að þetta sé hálf
furðuleg rútína en sé alveg fárán-
lega skemmtilegt. „Það voru margir
Íslendingar í Skandinavíu en það
hefur komið okkur svolítið á óvart
hvað okkur er vel tekið hér í Þýska-
landi. Það er fólk í Skálmaldarbolum
úti um allt. Við erum ánægðir með að
við erum ekki gleymdir og gríðarlega
ánægðir með móttökurnar.“
Hann segir að rútan sem þeir
ferðist í sé ágæt. Ekkert mikið meira.
„Það er verið að laga hana aðeins
núna. Það er ekki vika búin og hún
er komin í yfirhalningu,“ segir hann
og hlær.
Þráinn segir að mórallinn sé góður
og það sé mikil stemning í hópnum.
„Við erum orðnir svolítið eldri en
fyrir tíu árum og það er bara eitt
rauðvínsglas og svo að sofa.“ n
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas
@frettabladid.is
36 Helgin 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið