Fréttablaðið - 12.11.2022, Page 106

Fréttablaðið - 12.11.2022, Page 106
Þetta er víst fyrsti svona A-lista viðburður, sem er hug- tak í brans- anum, sem haldinn er á Íslandi. Kolefnisspor framkvæmda - Opinn fundur um áherslur og aðgerðir Hilton Reykjavík Nordica, miðvikudaginn 16. nóvember kl. 9 Skráning á landsvirkjun.is Unnsteinn Manúel Stefáns- son er listrænn stjórnandi Evrópsku kvikmyndaverð- launanna sem fara fram þann 10. desember í Hörpu. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland er gest- gjafi verðlaunanna. ninarichter@frettabladid.is Unnsteinn Manuel Stefánsson, tónlistarmaður og athafnamaður með meiru, er nýfluttur til Íslands frá Berlín. Hann segist hafa fengið beiðni frá Evrópsku kvikmynda- akademíunni um að koma í viðtal í tengslum við Evrópsku kvikmynda- verðlaunin og svo fór að hann land- aði starfi listræns stjórnanda. Verðlaunin eru samstarfsverkefni kvikmyndaakademíunnar, Reykja- víkurborgar, menntamálaráðu- neytisins, RÚV og Hörpu. „Ég fékk þetta símtal þegar ég var í sumar- fríi úti í Portúgal. Þau voru að leita að Íslendingi sem er með reynslu af sviði og bakgrunn í sjónvarpi, Íslend- ingi sem gæti tekið að sér þetta hlut- verk listræns stjórnanda.“ Hann segir að í samanburði við aðrar risavaxnar alþjóðlegar kvik- myndaverðlaunahátíðir skapi Evr- ópsku kvikmyndaverðlaunin sér sérstöðu með því að hafa árleg ham- skipti hvað umgjörðina varðar. „Evr- ópsku kvikmyndaverðlaunin eru kannski minna þekkt, en á hverju ári er verið að gera eitthvað glænýtt. Annað hvert ár er þetta haldið í Berl- ín en hitt árið er þetta haldið í ein- hverri gestaborg,“ segir Unnsteinn. Hátíðin átti að fara fram hér á landi fyrir tveimur árum en var frestað vegna heimsfaraldurs. Að sögn Unnsteins hefur þannig verið íslenskur blær á hátíðinni síðustu tvö ár. „Í fyrra þurfti að breyta þessu með viku fyrirvara. Allt í sóttvarna- hólf og engir gestir. Mitt hlutverk er að passa upp á að þessi þriggja tíma sjónvarpsþáttur komi sem allra best út. Það er á mína ábyrgð að finna listamenn, tónlistarfólk og mynd- listarfólk og kynna.“ Þátturinn er sýndur á tólf stöðvum í einu. „Það er tónlistarstjóri sem er búinn að vinna að þessu í tvö ár. Svo erum við með grunnteymi, allt fólk sem hefur atvinnu af kvikmyndum, sem er að vinna í öllu sjóinu. Það er tónskáld frá Inni-Music, kvikmynda- tónskáld. Sindri Már eða Sin-Fang og Kjartan Hólm,“ segir Unnsteinn. „Svo eru myndlistar- og kvikmynda- gerðarkonur sem eru með sjónræna samsvarandi parta. Tanja Leví lista- kona gerir alla grafík og listaverkin sem við sjáum í útsendingunni, ásamt Kolbrúnu Þóru Löve.“ Þá er Aldrei stærri hátíð á Íslandi til þessa Unnsteinn Manuel var í sumarfríi í Portúgal í sumar þegar Evrópska kvikmyndaaka- demían hafði samband. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIRGusGus einnig með tónlistaratriði. „Mér fannst líka mikilvægt að sýna þessa hlið á íslenskri músík. Í kringum þetta er heilmikið húll- umhæ úti um alla Evrópu,“ segir Unnsteinn og nefnir að í tengslum við það megi sjá hinar tilnefndu myndir í Bíó Paradís. „Það er líka verið að veita alls konar verðlaun eins og Young Audience Award og fleira.“ Sem stendur er ekki opinbert hverjir gegna störfum kynna í útsendingunni, en Unnsteinn hvet- ur fólk til að fylgjast vel með. Evrópsku kvikmyndaverðlaunin eru veitt í skugga stríðs í Evrópu og hvað þá nálgun varðar svarar Unn- steinn: „Kvikmyndaakademían, þessi samtök, voru stofnuð á sínum tíma í byrjun níunda áratugarins. Þau áttu meðal annars þátt í að hjálpa kvikmyndagerðarmönnum austantjalds sem urðu fyrir rit- skoðun.“ Hann segir að þarna megi vissu- lega sjá myndir um stríð og tengda hluti. Aðspurður hvort þungur taktur sé í tilnefndu myndunum í ár svarar hann: „Það er á vissan hátt þungur taktur í evrópskum myndum en það eru mjög fjöl- breyttar myndir tilnefndar,“ segir Unnsteinn. „Maður finnur vel fyrir því hvað er mikil flóra þarna. Ég var í morgun að fara yfir allar stuttmyndirnar og hver einasta mynd sem ég horfði á kom mér á óvart. Hún var alltaf að endurnýja stuttmyndaformið fyrir mér. En svo eru mismunandi flokkar. Frumraun ársins, grínmynd ársins og f leira.“ Hann segist hafa séð allar myndirnar á þessum tíma- punkti og hvetur fólk til að fara í Bíó Paradís og kynna sér myndirnar. Verðlaunin fara að sögn Unn- steins mikið fram á ensku en einn- ig á tungumálum þeirra ríkja sem koma að hátíðinni. „Þetta er víst fyrsti svona A-lista viðburður, sem er hugtak í bransanum, sem hald- inn er á Íslandi. Það er prótokoll og þessi dregill. En ég er bara að hugsa um þáttinn. Þetta er svo viðamikið verkefni.“ n ninarichter@frettabladid.is Örn Ýmir Arason, Aron Steinn Ásbjarnarson og Þorkell Helgi Sig- fússon skipa Tríóið Fjarka. Fjarkar bera vissulega nafn með rentu enda eru þeir að vinna með fjórða manni, Birki Blæ Ingólfssyni tónlistar- manni og rithöfundi. Fjögurra manna tríóið sendir frá sér lag í dag sem heitir Sóley frá síðasta vori. „Við erum búnir að vera að spila saman í dágóðan tíma síðan í menntaskóla, 20 ár eða eitthvað,“ segir Örn í samtali við Fréttablaðið. „Þetta byrjaði sem skapandi sumar- starf í Kópavogi. Þar vorum við að spila svona fiftís-sixtís tónlist. Svo fórum við að vinna svona þríradd- að, spila þrír saman með kontra- bassa, gítar og saxófón,“ segir hann. Að sögn Arnar hafa þeir síðan þróað samhljóm. Hann segir Sóley frá síðasta vori fara í nýja átt. „Við erum að semja meira sjálfir núna og aðeins að hætta að spila gömlu slagarana,“ segir hann og hlær. Örn segir Sóley frá síðasta vori vera meira vetrarlag en jólalag. „Þetta er um svona nostalgíutil- finningar, að hugsa um sumarið og vera enn þá með blóm í vasanum frá síðasta sumri. Jafnvel er þetta um gamla sumarást sem er farin. Það er svona smá söknuður í þessu,“ segir hann. Tvö jólalög eru væntanleg frá félögunum í desember. „Það er hefð hjá okkur í desember að gefa út jóla- lag og við höfum gert það síðastliðin fimm ár,“ segir hann. Sóley frá síð- asta vori og jólalögin má nálgast á streymisveitunni Spotify. n Fjögurra manna tríó með Sóley og jólalag Tríóið sendi frá sér lag á dögunum um söknuð eftir vorsins blóma. 62 Lífið 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.