Heilbrigðisskýrslur - 07.12.1982, Blaðsíða 21
3.0 ALDRAÐIR 0G HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA
í þessum kafla er gerð grein fyrir rannsóknum sem öldrunar-
þjónustunefnd hefur annað hvort staðið fyrir eða stuðst við
í mati sínu á heildarþörf fyrir hjúkrunarrými í Reykjavík.
3.1 Sjúklingatal í Reykjavík 31. mars 1981
Framkvæmdanefnd heilbrigðismálaráðs Reykjavíkurlæknishéraðs
stóð fyrir sjúklingatali á öllum sjúkrastofnunum í Reykjavík
31. mars 1981. Þessi athugun náði til Landspítala (ásamt Vífils
stöðum), Borgarspítala (ásamt Fæðingarheimilinu), Landakotsspít-
ala, Kleppsspítala, Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar, Hrafn
istu, Sjúkrastöðvar SÁÁ og sjúkrahótels Rauða kross íslands.
Þann 31. mars 1981 reyndust vera 1764 legusjúklingar og 120
dagsjúklingar á sjúkrastofnunum Reykjavíkurborgar. Eftir búsetu
skiptust þeir þannig, að tæp 63% þeirra áttu lögheimili í Reykja
vík, 1110 manns, eða sem svarar til 1,33% Reykvíkinga. Karlar
voru 721, en konur 1043. Skipting sjúklinga eftir tegundum
stofnana er sýnd £ töflu 3.
Tafla 3 Skipting sjúklinga eftir tegundum stofnana
Stofnanir/deildir Fjöldi sjúklinga Þar af 70 ára og eldri %
Almennar sjúkradeildir^ 871 294 33,8
Geðsjúkrahús og geðdeildir 367 45 12,3
Langlegudeildir 498 449 90,2
Sjúkrahótel R.K.l. 28 13 46,2
1764 801 45,4
1) Endurhæfingardeild Landspítalans og Grensásdeild taldar með
1 töflum 4 og 5 kemur fram aldursdreifing sjúklinga eftir stofn-
unum og tegund þjónustu.
19