Leikhúsmál - 01.03.1963, Blaðsíða 5
l.tbl. l.árg. marz!963
I RITINU ER MEÐAL ANNARS:
Um Harald Björnsson og Leikhúsmál ............. 3
Sveinn Einarsson: Andorra og Eðlisfrœingarnir 4
Viðtal við Sigurð Róbertsson .................... 8
Gagnrýnd gagnrýni .............................. 10
Hvernig á gagnrýnandi að vera? (viðtöl) ........ 12
Frumsýningar í Reykjavík (leikdómar) ........... 19
Útvarp: talað mál .............................. 34
Kvikmyndir ..................................... 40
Innlendar fréttir .............................. 42
Leiklist á liðnum árum ......................... 48
Thor Vilhjálmsson: Um Albee o. fl............... 54
LEIKRIT
Edward Albee: Saga úr dýragarðinum, þýð.:
Thor Vilhjálmsson ............................ 57
LAí'l rtSÁ: ii
248118
ÍSLANDS
0
Til lesenda
Jú.
Jökull Jakobsson
Gunnar Eyjólfsson
Edward Albee
Kœru lesendur!
Margir munu hafa rekið upp stór augu, er þeir fréttu,
að leiklistarblaðið „Leikhúsmál" vœri að vakna af hinum
13 ára þyrnirósarblundi sínum. Á öðrum stað gerir Har-
aldur Björnsson grein fyrir því, hvers vegna og hvernig
svefninn seig á óskabarn hans, og síðan hvernig málum
er nú háttað. Um leið og við, sem fengum það tœkifœri
að endurvekja það, þökkum auðsýnt traust, gerum við
okkur jafnframt Ijóst, að vandi fylgir hverri vegsemd.
Vonumst við til að vera þeim vanda vaxnir, þannig að
enn megi blaðið dafna og verða þáttur í leiklistarlífi
borgarinnar.
I fyrsta blaði birtum við frekar efni um það, sem
safnazt hefur saman á yfirstandandi leikári, umsagnir og
dóma, og er það cerið nokkuð. Einnig birtist fyrsti hluti
greinar eftir Sigurð Grímsson um það helzta, sem borið
hefur við í leikhúsmálum á þeim árum, sem „Leikhúsmál"
lágu niðri. Þykir okkur rétt að slá einhverja brú yfir þetta
tímabil. í nœstu heftum mun Haraldur Björnsson einnig
birta endurminningar sínar, einn þátt í hverju blaði. Kynn-
umst við í þeim þáttum ekki aðeins œvi eins brautryðj-
anda íslenzkrar leiklistar, heldur einnig öllu leiklistarlífi
á þeim árum.
I blaðinu munum við ávallt hafa vissa þœtti um kvik-
myndir og útvarpstúlkun. Yfirleitt er œtlunin að birta sem
víðtœkast efni um túlkun hins talaða orðs á hvaða sviði
sem er. Jafnframt er œtlunin að birta einn einþáttung
eða hálft leikrit í hverju hefti. Fyrsti þátturinn er marg-
umtalað leikrit en margumtalaðra skálds, Edward Albees,
sem nú er að ryðja sér rúm sem fremsta leikritaskáld
Bandaríkjanna af yngri kynslóðinni, í ágœtri þýðingu
Thors Vilhjálmssonar.
Einnig verða að sjálfsögðu greinar um komandi leik-
rit í leikhúsunum, almennar greinar, skemmtigreinar og
margt fleira. Einkum þykir okkur akkur í að geta birt
grein eftir Svein Einarsson, þann ágœta leikhúsmann, um
Andorra og Eðlisfrœðingana.
Við munum leggja mikið uppúr því að birta sem mest
umsagnir um það, sem er að gerast úti á landsbyggðinni
og vœntum þess að njóta góðs samstarfs við leikfélögin
víðsvegar um land.
Höfum þessa tölu ekki lengri að sinni og vonum, að
allir megi hafa nokkra ánœgju af lestri þessa rits.
Útgefandi: Leikhúsmál
Ritstjórn: Ólafur Mixa (ábm.)
Oddur Björnsson
Þorleifur Hauksson
Framkvœmdastj. Gísli Alfreðsson
Klemenz Jónsson
Augl. og uppsetning: Garðar Gíslason
Ljósmyndari: Andrés Kolbeinsson
Heimilisfang: Aðalstr. 18 (Uppsölum)
Sími: 35274
Prentsmiðja Jóns Helgasonar
Með beztu kveðjum frá ritstjórn.
HFORSÍÐUMYNDIN er af Haraldi Björnssyni í hlutverki Eisenrings í leikritinu Bieder-
mann og brennuvargarnir, sem leikið var hjá leikflokknum Grímu. Þótti okkur til-
hlýðilegt að birta í fyrsta blaði eftir endurnýjun ,,Leikhúsmála" forsíðumynd af
stofnanda þess blaðs. Og einkum þótti okkur tilhlýðilegt að birta mynd af þessari
leikhúskempu í hlutverki hjá nýjum leikflokki ungs fólks, þar sem hann vann enn
einn eftirminnilegan leiksigur, — meðal unga fólksins. Sýnir það, að Haraldur er
síður en svo dauður í öllum œðum, heldur má enn búast við, að hann hressi af og
til uppá íslenzkt leiklistarlíf. — Sjá grein um Harald á bls. 3. — Myndina tók
Andrés Kolbeinsson.